Fréttablaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 10
14. mars 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Síðumúli 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is Verslun opin mán - fös 8.30 - 17.00 Glös fyrir stór og smá tilefni Hjá Fastus fæst mikið úrval af glösum fyrir stóra og litla veitingastaði. Komið í verslun okkar að Síðumúla 16 og látið fagmenn hjálpa ykkur við að velja réttu glösin. FA S TU S _H _0 7. 03 .1 4 www.volkswagen.is Fullkominn ferðafélagi Tiguan kostar aðeins frá 5.360.000 kr. Volkswagen Tiguan eyðir aðeins frá 5,8l /100 km Volkswagen Tiguan Í Volkswagen Tiguan sameinast fullkomið fjórhjóladrif, sparneytin dísilvél og einstakir aksturseiginleikar sem veita þér algjört ferðafrelsi. BlueMotion tæknin frá Volkswagen leggur áherslu á lágmarks eyðslu eldsneytis og hámarks umhyggju fyrir umhverfinu. Kynntu þér kosti Volkswagen Tiguan og veittu þér sannkallað frelsi til að ferðast. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði A uk a b ún a ð ur á m yn d : á lfe lg ur , s va rt ir þ a kb og a r og lj ós ka st a ra r í f ra m st uð a ra . TIL SÖLU VANDAÐAR EIKARINNRÉTTINGAR SELST MEÐ 50% AFSLÆTTI hannaðar af einum vinsælasta innanhússarkitekt landsins eldhúsinnrétting, baðinnrétting, lítil þvottahúsinnrétting, fataskápar í 3 herbergi og forstofu og 4 innihurðir einnig gluggar og útihurðir - hvít t og mahogny TIL SÝNIS Í ÁRMÚLA 15 Í DAG FÖSTUDAG FRÁ KL.10 - 16 VIÐSKIPTI Skipti hf. birti ársreikn- inginn fyrir árið 2013 í gær. Þar kemur fram að bókfært tap félags- ins fyrir árið 2013 nam tæpum 17 milljörðum króna samanborið við 3,4 milljarða tap árið áður. Í tilkynningu er tapið sagt skýr- ast af alls 19,6 milljarða gjald- færslu eftirtalinna liða: Rúmlega 14 milljarða virðisrýrnunar við- skiptavildar, ríflega þriggja millj- arða niðurfærslu á kröfu á hendur Glitni hf. og 2,6 milljarða gjald- færslu í varúðarskyni vegna end- urákvörðunar skatta. „Varðandi tapið þá er lang- stærsti einstaki þátturinn þar nið- urskrift á viðskiptavild. Það var búið að skrifa niður viðskiptavild um meira en 19 milljarða á und- anförnum árum, en aldrei í svona stórum skrefum eins og núna,“ segir Orri Hauksson, forstjóri Símans, í samtali við Fréttablaðið. Orri segir ástæðu niðurfærsl- unnar vera þá að félagið hafi vilj- að setja fram forsendur sem eru varúðarfyllri en áður miðað við hvernig afkoma þess hafi þróast milli áranna 2012 og 2013. „Það voru mótuð framtíðarplön hérna 2010 og þau hafa gengið ágætlega eftir, það er að segja það er að ganga betur í rekstr- inum, en það hægist síðan á því hversu afkomubatinn er mik- ill. Þess vegna vildum við núna, í staðinn fyrir að gera ráð fyrir fyrri áætlunum um afkomubata, frekar sýna aðeins meiri varúð,“ segir Orri. Rekstrarhagnaður Skipta á síð- asta ári fyrir afskriftir og fjár- magnsliði (EBITDA) nam 8,3 milljörðum króna samanborið við 7,4 milljarða árið áður. Eiginfjárhlutfall Skipta er 45,0% og eigið fé er 26,4 milljarð- ar króna. Eigið fé var 7,9 millj- arðar í lok árs 2012 og eiginfjár- hlutfall 10,2%. Sala nam 29,9 milljörðum króna samanborið við 28,9 milljarða árið áður og er aukningin 3,6%. Rekstrarkostnað- ur lækkar um 79 milljónir króna milli ára og er 9.467 milljónir króna. Mikið hefur verið rætt um skráningu Símans á aðalmarkað Kauphallarinnar. Orri segir að ekki þurfi að uppfæra margt til að hægt verði að demba sér í þá vinnu, en það liggi fyrir hjá bæði eigendum og stjórn að stefnt sé að því að fara á markað. „Það er ekki búið að ákveða tímasetningu, það er að koma aðal- fundur núna og það bíður stjórnar að ákveða hvernig þessu verður háttað,“ segir Orri sem telur það munu gerast á næstu tólf til þrett- án mánuðum. fanney@frettabladid.is Síminn tapar sautján milljörðum milli ára Orri Hauksson, forstjóri Símans, segir uppgjörið einkennast af mikilli virðisrýrnun óefnislegra eigna sem valdi verulegu tapi hjá samstæðunni. Félagið stefnir á skráningu á aðalmarkað Kauphallarinnar á næstu tólf til þrettán mánuðum. VARÚÐARFYLLRI FORSENDUR Orri Hauksson, forstjóri Símans, segir félagið hafa viljað sýna varúð vegna hægari af- komubata undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.