Fréttablaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 32
Forstjóri ÍSOR, Ólafur G. Flóv enz, ritaði nýlega grein í Fréttablaðið sem hann nefndi „Villandi
fréttamennska Ríkisútvarpsins“. Þar
skammaði hann RÚV fyrir að leyfa
sér að tala við eðlisfræðing og fyrr-
verandi yfirmann stjórnsýslu Orku-
stofnunar um nýtingu jarðhita.
Í fyrri greinum um nýtingu jarð-
hita á Reykjanesskaganum benti ég
á að í rammaáætlun séu skilgreind
18 virkjunarsvæði á skaganum, þar
af tíu á Hengilssvæðinu. Svæðin séu
allt of mörg því þau skarist og hægt
sé að nýta svæðið með sjálfbærum
hætti með færri virkjunum. Raunar
sé Hellisheiðarvirkjun of stór og
þegar að soga til sín orkuna úr fimm
virkjunarsvæðum, þ.e. Innstadal,
Hellisheiðarvirkjun, Gráuhnjúkum,
Bitruvirkjun og Hverahlíð og sjái ekki
fyrir endann á því.
Greinarnar voru skrifaðar af sjón-
arhóli eðlisfræðingsins. Nú hefur
forstjóri ÍSOR bannað fjölmiðlum að
hafa nokkuð eftir undirrituðum sem
eðlisfræðingi og fyrrverandi starfs-
manni Orkustofnunar og titlar mig
innri endurskoðanda. Ég tek áskorun
forstjórans og leita sem innri endur-
skoðandi svara við spurningunni:
Hver er stefna ÍSOR í nýtingu jarð-
hita og hvernig hefur hún reynst?
Stefna ÍSOR
Um sjálfbæra nýtingu jarðhita segja
sérfræðingar ÍSOR í fyrstu grein
sinni meðal annars:
„Sérfræðingar ÍSOR hafa um ára-
tuga skeið haldið fram því sjónar-
miði að heppilegast sé að virkja
jarðhita í smáum skrefum og láta
reyna á það hægt og rólega hver
eru mörk sjálfbærrar vinnslu. Þessi
sjónarmið koma m.a. fram í grein
Valgarðs Stefánssonar og fleiri frá
Orkuþingi árið 1991 sem ber heitið
„Ný viðhorf til virkjunar jarðhita til
raforkuframleiðslu“. Gunnlaugur
tekur undir þessi sjónarmið í grein
sinni. Sjálfbærnimörkin eru aldrei
þekkt fyrirfram og það getur tekið
mjög mörg ár að finna þau. Stundum
hefur leið hægfara uppbyggingar
verið farin eins og á Nesjavöllum og
í Svartsengi, en hratt var farið í stóra
áfanga á Reykjanesi og á Hellisheiði.
Það getur samt verið að fjárhagsleg
rök leiði til þess að heppilegra sé að
byrja stórt og sætta sig síðan við að
langtímaframleiðslan verði minni í
staðinn.“
Hvað segir þetta um stefnu ÍSOR í
nýtingu jarðhita? ÍSOR segir að það
geti verið heppilegt hvort heldur
sem er að virkja í smáum skrefum
eða í einu stóru stökki. Sem innri
endurskoðanda finnst mér þessi
stefna mjög óljós. ÍSOR segir að vilji
kúnninn gæta hagkvæmni, forðast
áhættu og láta náttúruna njóta vaf-
ans og virkja varlega á sjálfbæran
hátt þá sé það heppilegast. Vilji
kúnninn hins vegar taka áhættu
og virkja stórt þá sé það heppilegra
enda hafi kúnninn ávallt rétt fyrir
sér!
Stefna ÍSOR í nýtingu jarðhita
og meint yfirburðaþekking æðstu
manna fyrirtækisins á forðafræði
kom ekki í veg fyrir að Hitaveita
Reykjavíkur ofmat virkjanlegt
afl í Henglinum eða ofmat Hita-
veitu Suðurnesja á virkjanlegu afli
á Reykjanesi. Óljós stefna ÍSOR
varðandi nýtingu jarðhita gæti hafa
stuðlað að því að samið var um kaup
á allt of mörgum vélum til raforku-
framleiðslu með jarðhita bæði á
Hengilssvæðinu og Reykjanesi og
samið var við Norðurál um sölu á
mun meiri raforku og afli til álfram-
leiðslu en hægt var að standa við á
hagkvæman hátt. Þetta hefur valdið
orkufyrirtækjunum og sveitarfélög-
unum sem þau áttu milljarða tjóni.
Orkufyrirtækin urðu nær gjaldþrota.
Nú standa hálfbyggð mannvirki
Norðuráls við Helguvík sem minnis-
merki um ofmat á afli jarðhitasvæð-
anna á Reykjanesi og í Henglinum.
P.S.
Höfundur hefur lengi haft áhuga
á hagkvæmri nýtingu innlendrar
orku til hagsældar fyrir þjóðina.
Hann telur hana mjög mikilvæga
efnahagslega og geta tryggt orku-
öryggi Íslands til margra alda. Hann
er fylgjandi því að efla raforkukerfi
landsins á hagkvæman hátt og auka
nýtingu jarðvarma. Hann telur hins
vegar að með skilgreiningu 18 virkj-
anasvæða á Reykjanesskaga hafi
rammaáætlun farið út af sporinu
og birti því greinar þar um. Hann
telur að skoðanafrelsi og prentfrelsi
sé tryggt með lögum. Í grein sinni
nefndi hann hvorki einstaklinga,
fyrirtæki né stofnanir og skilur því
ekki hvers vegna ÍSOR sá sig knúið
til þess að ráðast á persónu höfund-
ar, skoðanir hans og skamma RÚV
fyrir að flytja fréttir af þeim.
Hver er stefna ÍSOR í nýtingu jarðhita
og hvernig hefur hún reynst?
Gunnlaugur H.
Jónsson
fv. innri endur-
skoðandi
Nú standa hálfbyggð mann-
virki Norðuráls við Helguvík
sem minnismerki um ofmat
á afli jarðhitasvæðanna á
Reykjanesi og í Henglinum.
LAUGARDAGA
FIMMTUDAGA FÖSTUDAGA
MIÐVIKUDAGA
FÖSTUDAGA
MIÐVIKUDAGA
SUNNUDAGA
MÁNUDAGAÞRIÐJUDAGA
FIMMTUDAGA
ÞRIÐJUDAGA
ÞRIÐJUDAGA MÁNUDAGA
Það verður boðið upp á margt nýtt og spennandi á Stöð 3 í vetur. Á dagskrá verður fjöldi nýrra spennu- og
grínþátta sem enginn má missa af. Vertu með okkur í vetur, þú finnur örugglega þætti við þitt hæfi á Stöð 3.
HEILL HELLINGUR AF
NÝJUM ÞÁTTUM Á STÖÐ 3
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
365.is Sími 1817
STÖÐ 3 + ENDALAUST TAL + 1 GB Í GSM = 1.990 kr. til 1. nóvember
Fáðu Stöð 3 á betra verði í haust
HEFST Í DAG!
1 5 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F I M M t U D A G U r32 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð I ð