Fréttablaðið - 16.05.2015, Síða 4
16. maí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
STJÓRNMÁL „Þarna eru áhugaverðar hugmyndir.
Sumar sem hafa verið ræddar áður og aðrar ekki,“
sagði Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra velti upp
hugmyndum á Facebook-síðu sinni í gær um miklar
breytingar á þingsköpum Alþingis til að auka afköst
þingsins.
„Þessi mál eru til meðhöndl-
unar í nefnd hérna í þinginu sem
tekur á þingsköpunum. Ég geri
ráð fyrir að þetta verði rætt þar,“
sagði Einar.
„Ég fagna öllum umræðum
um þingsköpin sem miða að því
að auka skilvirkni þingsins og
tryggja rétt minnihlutans.“
Bjarni segir að núverandi verk-
lag bjóði upp á rifrildi og mal
fram á nótt sem tefji fyrir vinnu þingsins.
Hann viðurkennir að hann hafi setið báðum
megin borðs þegar kemur að þessum starfsháttum
en leggur til umbætur sem ættu að gagnast öllum.
Þá vill hann til dæmis auka völd forseta þingsins
til að stöðva mál og setja tímamörk á umræðu mála.
Á móti vill hann efla vernd minnihluta þingsins og
opna á þann möguleika að flytja mál á milli þinga en
slíkt krefst stjórnarskrárbreytinga.
Þess má geta að fyrir þinginu liggur frumvarp
Pírata um breytingar á þingsköpum sem gerir þing-
málum kleift að lifa á milli þinga. - srs
Forseti Alþingis tekur vel í hugmyndir um breytingar á þingsköpum:
Vill bylta þingsköpum Alþingis
EINAR K
GUÐFINNSSON
VILL KOMA Í VEG FYRIR MAL Bjarni vill auka skilvirkni og
tryggja rétt minnihlutans. FRÉTTABLAÐIÐ/BALDUR HRAFNKELSSON
11.05.2015 ➜ 17.05.2015
70.000
í starfsliði sínu.
1 framhaldsskóli af 31 hefur
SKÓLASÁLFRÆÐING
11.000 Íslendingar
hafa flutt til útlanda
frá aldamótum sé horft á fjölda
brottfluttra umfram aðflutta.
111 þúsund
fermetrar af
malbiki
verða lagðir á rúma 16 kílómetra
gatna í Reykjavík í sumar.
af Norðfjarðargöngum
hafa verið grafin
eða 6.397 metrar.
VITA er lífið
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
ÍSLE
N
SK
A SIA
.IS
VIT 74530 05/15
Mallorca
Sólarprís fyrir börnin
Frítt flug fyrir fyrsta barn!*
50% afsláttur fyrir annað og þriðja barn.*
Tilboðið gildir frá hádegi á föstudag, 15. maí
til hádegis á þriðjudag, 19. maí.
Sjá nánar á vita.is *2–11 ára
SAUÐARGÆRUR
verða seldar frá fyrirtæki
á Blönduósi til Hong Kong,
gangi samningur eftir.
40 SMÁBÁTAR
losnuðu frá flotbryggju á
Rifi á Snæfellsnesi í
óveðri í vikunni.
84,6%
STJÓRNSÝSLA Samkeppniseftir-
litið hefur ákveðið að leggja 650
milljóna króna stjórnvaldssekt á
Byko vegna umfangsmikils ólög-
mæts samráðs við gömlu Húsa-
smiðjuna.
Rannsókn málsins hefur staðið
yfir allt frá árinu 2011, en ákvörð-
un Samkeppniseftirlitsins var birt
í gær. Þar kemur fram að Sam-
keppnis eftirlitið telur að brot Byko
séu mjög alvarleg og hafi verið
framin af ásetningi. Brotin hafi
verið til þess fallin að valda hús-
byggjendum og almenningi öllum
umtalsverðu tjóni. Sektin er lögð á
móðurfélag Byko, Norvík.
Rannsókn málsins hófst eftir að
Múrbúðin sneri sér til Samkeppnis-
eftirlitsins og upplýsti um tilraunir
Byko og Húsasmiðjunnar til að fá
Múrbúðina til þess að taka þátt í
ólögmætu samráði. Auk þess upp-
lýsti Múrbúðin um verðsamráð
milli Byko og Húsasmiðjunnar.
Að undangengnu mati á þessum
upplýsingum ákvað Samkeppnis-
eftirlitið að kæra nokkra einstak-
linga, starfsmenn Byko og Húsa-
smiðjunnar, til lögreglu vegna
gruns um brot gegn samkeppnis-
lögum. Í kjölfarið var framkvæmd
húsleit hjá Byko og Húsasmiðj-
unni þann 8. mars 2011. Í samræmi
við ákvæði sam keppnis laga hefur
Samkeppnis eftirlitið rannsakað
þátt fyrirtækjanna og lögregla þátt
starfsmanna þeirra.
Steinull hf., sem áður hét Stein-
ullarverksmiðjan, er einnig sektuð
um 20 milljónir króna fyrir að hafa
veitt Húsasmiðjunni upplýsingar
um viðskiptakjör Múrbúðarinnar.
Með því braut Steinull gegn skil-
yrðum sem sett voru vegna kaupa
Byko, Húsasmiðjunnar og Kaup-
félags Skagfirðinga á eignarhlutum
í Steinullarverksmiðjunni. Skilyrð-
unum var ætlað að vinna gegn því
að sameiginleg eignaraðild Byko og
Húsasmiðjunnar að Steinull myndi
takmarka samkeppni.
Í ákvörðun Samkeppniseftirlits-
ins kemur fram að brot þessa máls
tengjast ekki núverandi rekstrar-
aðilum Húsasmiðjunnar. Rannsókn
á þætti Húsasmiðjunnar í mál-
inu lauk í júlí á síðasta ári. Fyrr-
verandi rekstraraðili Húsasmiðj-
unnar, Holtavegur 10 ehf., segir að
gamla Húsasmiðjan hafi gert sátt
við Samkeppniseftirlitið og viður-
kennt að hafa átt í ólögmætu sam-
ráði við Byko.
Þann 9. apríl síðastliðinn var
kveðinn upp dómur í Héraðsdómi
Reykjaness í sakamáli sem embætti
sérstaks saksóknara höfðaði gegn
starfsmönnum Byko og Húsa-
smiðjunnar. Þeim dómi hefur nú
verið áfrýjað til Hæstaréttar. Sam-
keppniseftirlitið segir að sakamál-
ið hafi ekki áhrif á niðurstöðu Sam-
keppnis eftirlitsins.
Byko hefur ákveðið að kæra
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins
til áfrýjunarnefndar Samkeppnis-
mála. Sakar Byko stofnunina um
áróður með uppsetningu á upplýs-
ingasíðu sem sett hefur verið upp
vegna málsins. jonhakon@frettabladid.is
Brot Byko alvarleg og ollu
almenningi öllum tjóni
Samkeppniseftirlitið sektaði Byko í gær um 650 milljónir króna vegna ólöglegs samráðs. Stjórnendur Byko saka
Samkeppniseftirlitið um áróður og segja ákvörðunina vera í andstöðu við niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness.
BYKO Rannsókn málsins hófst eftir að Múrbúðin sneri sér til Samkeppniseftirlitsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
■ Reglubundin, yfirleitt vikuleg, samskipti við gömlu Húsasmiðjuna um
verð, birgðastöðu og fleira í því skyni að hækka verð/vinna gegn verðlækk-
unum á svonefndum grófvörum, svo sem timbri, steinull og stáli.
■ Samráð við gömlu Húsasmiðjuna um að hækka verð í öllum tilboðum á
grófvöru í áföngum.
■ Samráð við gömlu Húsasmiðjuna um að vinna gegn verðsamkeppni í sölu
á pallaefni á aðalsölutíma þeirrar vöru og reyna þess í stað að hækka verð.
■ Samráð við gömlu Húsasmiðjuna um að hækka verð á miðstöðvarofnum.
■ Að hafa gert sameiginlega tilraun með gömlu Húsasmiðjunni til að fá
Múrbúðina til að taka þátt í samráði um verð á grófvöru og með því að
hafa ákveðið með gömlu Húsasmiðjunni að fylgjast með aðgerðum Múr-
búðarinnar á markaðnum.
Byko er sektað fyrir eftirfarandi brot
BRETLAND David Cameron, for-
sætisráherra Bretlands, ferð-
aðist til Skotlands á fund Nicola
Sturgeon, forsætisráðherra Skot-
lands.
Skoski þjóðarflokkurinn, flokk-
ur Sturgeon, vann mikinn sigur í
þingkosningunum í síðustu viku
sem þótti vera til marks um það
að áherslur flokksins um aukin
völd til Skotlands ættu upp á pall-
borðið.
Cameron sagði í lok fundar að
á stefnu ríkisstjórnar hans yrði
frumvarp um aukin völd til Skot-
lands en í frumvarpinu er gert ráð
fyrir því að flytja völd til skatt-
lagningar yfir til Skotlands. - srs
Cameron fundar í Skotlandi:
Vilja aukin völd
til Skotlands
LÖGGÆSLA Varðskipið Þór er við
eftirlit á úthafskarfamiðunum
við 200 sjómílna mörk efnahags-
lögsögunnar á Reykjaneshrygg.
Veiðarnar máttu hefjast síðasta
sunnudag, samkvæmt samningi
Norður-Atlantshafsfiskveiði-
nefndarinnar (NEAFC).
Þá voru á svæðinu 27 skip, þar
af þrjú íslensk. Auk varðskips-
ins Þórs var á svæðinu spænskt
varðskip á vegum Evrópusam-
bandsins.
Varðskipið Þór verður við
eftirlit á svæðinu á næstunni, en
þegar hefur verið farið til eftirlits
um borð í erlend veiðiskip. - shá
Varðskipið Þór vaktar veiðar:
Við eftirlit á
karfamiðunum
VARÐSKIPIÐ ÞÓR Er við eftirlit á
úthafskarfamiðunum. MYND/LHG