Fréttablaðið - 16.05.2015, Blaðsíða 95
LAUGARDAGUR 16. maí 2015 | LÍFIÐ | 63
„Það má eiginlega segja að við
séum að fagna lóunni, þessi við-
burður er kominn til að vera,“
segir Benedikt Freyr Jónsson,
betur þekktur sem Benni B Ruff.
Hann er einn af skipuleggjendum
klúbbaveislu sem kallast Lóan. Um
er að ræða einstakan viðburð sem
fram fer í Gamla bíói en þar koma
fram hvorki fleiri né færri en
nítján plötusnúðar. „Þetta eru allt
frekar ólíkir plötusnúðar en hópa
sig samt saman þannig að þetta
verður spennandi og skemmti-
leg blanda. Það mætti alveg kalla
þetta árshátíð plötusnúða,“ bætir
Benedikt við. Þeir sem koma fram
undir hverjum hópi:
Tetriz – (B-Ruff & Finga-
print), Blokk – (Housekell, Intro-
beats, Viktor Birgiss, Jónbjörn,
Jón Regin bald, Símon fknhndsm,
Ómar E, Moff & Tarkin), Plútó –
(Kocoon, Tandri, Skeng, Gunni
Ewok, Julia Ruslanovna, Skurður,
Maggi B, Hlýnun Jarðar, Ozy) og
Yamaho – (Dj Yamaho).
Tetriz spilar gullaldarhipphopp
frá 93-97, Blokk spilar hús & teknó,
Plútó spilar grime, juke, footwork,
hipphopp, haglabyssuhúsog teknó
og svo ætlar Yamaho að spila hús
& teknó.
„Hver og einn hópur spilar í
klukkutíma þannig að þetta verð-
ur 4 tíma keyrsla,“ bætir Benedikt
við.
Lóan fer fram í Gamla bíói í
kvöld og hefst klukkan 22.00. „Ég
lofa hörku góðu kvöldi og verður
Corona í boði fyrir þá sem mæta
tímanlega.“ - glp
Plötusnúðar fagna
lóunni í Gamla bíói
Klúbbaveisla þar sem nítján plötusnúðar koma fram.
LOFAR GÓÐU FJÖRI Benedikt Freyr Jónsson, betur þekktur sem Benni B Ruff, er
einn af skipuleggjendum klúbbaveislunnar.
KEMUR FRAM Introbeats er einn af
þeim sem koma fram í kvöld.
DANS ★★★ ★★
Svartar fjaðrir
Dansverk
Listrænn stjórnandi /danshöfundur
Sigríður Soffía Níelsdóttir
Dansarar/Leikendur Atli Rafn Sigurðar-
son, Ásgeir Helgi Magnússon, Dóra
Jóhannsdóttir, Hannes Egilsson, Lovísa Ósk
Gunnarsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,
Ingvar E. Sigurðsson, Oddur Júlíusson, Saga
Garðarsdóttir og Sigríður Soffía Níelsdóttir.
Tónlist Jónas Sen og Valdimar Jóhannsson
Búningar Hildur Yeoman
Leikmynd Daníel Björnsson og Helgi Már
Kristinsson
Texti Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
Opnunarverk Listahátíðar í ár
var dansverkið Svartar fjaðrir
eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur.
Smart byrjun á hátíðinni verð ég
að segja að hafa dansverk eftir
unga íslenska konu.
Í verkinu fjallar Sigríður Soffía
um Davíð Stefánsson frá Fagra-
skógi, ljóðin hans og hann sem
persónu. Um dansverk er að ræða
en að vanda leikur Sigríður Soffía
sér að því að þenja út listformið
og ögra hugmyndum um mörk list-
greina. Að þessu sinni með því
að dansa ljóð og flytja ljóð með
hreyfingu. Til fulltingis við sig
hefur hún fengið eðallistamenn,
dansara og leikara sem eins og
í mörgum samtímadansverkum
nýttu fagþekkingu sína í túlkun
og tjáningu, auk þess að takast á
við tjáningarleiðir listformsins.
Eitthvað sem er vandmeðfarið en
gekk oftast upp eins og í falleg-
um flutningi Atla Rafns leikara
og Ásgeirs Helga dansara á ljóð-
inu Ofstjórn með hreyfingum og
orðum.
Samtímis því að vera flutn-
ingur á ljóðum Davíðs í orðum
og hreyfingum er verkið tilraun
til að draga upp mynd af skáld-
inu sjálfu. Til þess nýtir Sigríður
Soffía hefðbundið frásagnarform
en leikararnir Saga Garðars dóttir
og Oddur Júlíusson túlkuðu á
skemmtilegan hátt samferðafólk
Davíðs og sögðu sögur af honum.
Í þessum innskotum var oft stutt í
grínið sem náði vel til salarins en
braut að sama skapi upp stemm-
inguna.
Svartar fjaðrir hófst með yndis-
legu atriði þar sem eitthvað sem
við fyrstu sýn virtist vera svart-
ur steinn sem lá í þokuslæðingi á
sviðinu lifnaði við og hreyfðist um
sviðið í ótrúlega fíngerðu og við-
kvæmu flæði. Grípandi mynd sem
gaf fyrirheit um hrífandi kvöld. Í
kjölfarið fylgdi aftur á móti klisja,
berleggjaðar konur í háhæluðum
skóm sem reyna að tengjast kol-
svartri verunni sem sló á vænt-
ingarnar. Samspil Lovísu Óskar
og Hannesar (verunnar) var mjög
fallegt í þessu atriði en ekki fleiri
fáklæddar konur í háhæluðum
skóm að reyna að þóknast karl-
mönnum í dansverk, takk.
Í framhaldinu komu margir
góðir kaflar bæði í ljóðaflutningi
og frásögn eins og áðurnefndur
flutningur á Ofstjórn, flutningur
Ingvars E. Sigurðssonar á Moldin
angar og ekki síður framsetning
sama ljóðs í dansi og flutningur
Odds á ölæðistexta frá Davíð sjálf-
um. Atriði sem hefði þó mátt vera
blæbrigðameira. Fyrir utan upp-
hafssenuna þá var það þó ekki fyrr
en í lokin í túlkuninni á Að skýja-
baki og Er árin færast yfir sem
töfrarnir birtust á ný. Tjáning Lilju
Guðrúnar og túlkun á þessum text-
um var mjög sterk og samspil list-
formanna, hreyfinganna, notkunar
orða og söngs var hrífandi. Hvern-
ig textanum var haldið lifandi í Að
skýjabaki var fallegt og dúett Lilju
Guðrúnar og Lovísu Óskar var
ótrúlega flott gerður og áhrifaríkur
Útlit og umgjörð sýningarinn-
ar gekk mjög vel upp. Notkunin á
svarta og hvíta litnum rímaði vel
við hugmyndir Davíðs sjálfs um að
það væru hans litir en undirrituð
saknaði þess að rauði liturinn fengi
líka sinn sess í takt við orð skálds-
ins, „að kvæði mín eru blóð af mínu
blóði …“ Búningarnir komu ágæt-
lega út í heildina og tónlistin/hljóð-
heimurinn var mjög flottur, fjöl-
breyttur og fullur af stemmingu.
Í heild var sýningin tæknilega
vel útfærð og allir þátttakendur
stóðu sig með prýði en það vant-
aði upp á listræna útfærslu og leik-
stjórn. Það var verið að gera of
margt í einu þannig að verkið var
of langt og brotakennt og skildi því
ekki eins mikið eftir sig og efni
stóðu til. Sesselja G. Magnúsdóttir
NIÐURSTAÐA: Stórhuga verk
stútfullt af góðu efni en þarfnaðist
slípunar og fágunar.
Ofgnótt af alls kyns dýrindum
SVARTAR FJAÐRIR Opnunarverk Listahátíðar í ár var dansverkið Svartar fjaðrir eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur.
MYND/HÖRÐURSVEINSSON
➜ Tjáning Lilju Guðrúnar
og túlkun á þessum text-
um var mjög sterk og sam-
spil listformanna, hreyf-
inganna, notkunar orða og
söngs var hrífandi.
Lokaverkefni sem nemendur í grunnnámi
við tölvunarfræðideild HR hafa unnið í samstarfi við
íslensk fyrirtæki verða kynnt dagana 18. og 19. maí.
NEMENDUR Í
TÖLVUNARFRÆÐI
KYNNA LOKAVERKEFNI
Verkefni Samstarfsaðili Stofa Dags. Tími
Viðskiptagreind Marel M104 18. maí 08:30
MMOs for Science MMOS, CCP, CADIA M105 18. maí 09:15
Boggan Landsbjörg M104 18. maí 10:00
Birdie M105 18. maí 10:45
Stoðkerfi fyrir námsleiki Costner ehf. M104 18. maí 11:30
Graphical recipe automation Gracipe M105 18. maí 12:45
DATI Tern Systems M104 18. maí 13:30
Fanaments app Viking software M105 18. maí 14:15
Authenteq ID Authenteq M104 18. maí 15:00
HR umræður Háskólinn í Reykjavík M105 18. maí 15:45
Pöntunarkerfi bílaleigu í Dynamic Ax Annata V102 18. maí 16:30
HiPOS for Windows Handpoint M104 19. maí 08:30
Heimir skráningasíða Borgun M105 19. maí 09:15
KPMG skráningar KPMG M104 19. maí 10:00
Saga samskiptastaðall Cadia M105 19. maí 10:45
Applicon-Fussball Applicon M104 19. maí 11:30
Vegabréfaumsóknir Advania Advania M105 19. maí 12:15
Thrifter M104 19. maí 13:45
Tempo Mobile Tempo M105 19. maí 14:30
Advania áætlanir Advania M104 19. maí 15:15
Oturgjöld Valitor M105 19. maí 16:00
Interactive design of the Gracipe user interface CRESS - rannsóknarsetur HR V102 19. maí 13:00
Social Questing in Deckbattana CADIA - rannsóknarsetur HR V102 19. maí 13:30
Visual Evaluation of User Reaction in VR CADIA - rannsóknarsetur HR V102 19. maí 14:00
GUI design for the P3 photo browser CRESS - rannsóknarsetur HR V102 19. maí 14:30
WebAPI for the O3 media server CRESS - rannsóknarsetur HR V102 19. maí 15:00