Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 8
16. maí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
08.30–08.40
08.40–08.50
08.50–09.10
09.10–09.30
09.30–09.50
09.50–10.10
10.10–10.30
10.30-10.45
10.45-11.00
11.00–11.20
11.20–11.40
11.40–11.50
11.50–12.00
SETNING Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður ÖBÍ
ÁVARP Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra
STAÐA FATLAÐS FÓLKS Á VINNUMARKAÐI Í EVRÓPU Dr. Stefan C
Hardonk, Rannsóknasetri í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands
REYNSLUSÖGUR
KAFFI
VINNUMARKAÐUR FYRIR ALLA Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar
SAMVINNA ER LYKILORÐIÐ - FRAMLAG SVEITARFÉLAGA TIL
ATVINNUMÁLA FATLAÐS FÓLKS Tryggvi Þórhallsson, lögfræðingur
hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
REYNSLUSAGA ATVINNUREKANDA Sigrún Björk Jakobsdóttir,
hótelstjóri Icelandair hótels Akureyri
REYNSLUSAGA KONU MEÐ SKERTA STARFSGETU Svanhildur Anna
Sveinsdóttir, starfsmaður Icelandair hótels Akureyri
HRINGSJÁ OG HVAÐ SVO? Helga Eysteinsdóttir, forstöðumaður
Hringsjár náms- og starfsendurhæfingar
GAGNKVÆMUR ÁVINNINGUR - UM VINNUMARKAÐ ÁN
AÐGREININGAR Ketill Berg Magnússon, framkvæmdastjóri
Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð fyrirtækja og kennari í
viðskiptasiðfræði og samfélagsábyrgð við Háskólann í Reykjavík
STEVIE WONDER SKIPTIR UM STARFSVETTVANG Hugleiðing
Kolbrúnar Daggar, MA nema í fötlunarfræði
MÁLÞINGSSLIT Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður
Landssamtakanna Þroskahjálpar
MÁLÞINGSSTJÓRI Steinunn Þóra Árnadóttir, alþingismaður
Málþingið er ætlað öllu áhugafólki um efnið, stjórnendum fyrirtækja og
stofnana, bæði í einkageiranum og ekki síst hjá ríki og sveitarfélögum.
EKKERT ÞÁTTTÖKUGJALD.
Skráning og upplýsingar um túlkun eru á vef Öryrkjabandalags Íslands,
WWW.OBI.IS. Síðasti skráningardagur er 20. MAÍ 2015.
ATVINNA FYRIR ALLA
– ALLRA HAGUR
MÁLÞING UM ATVINNUMÁL FÓLKS MEÐ SKERTA STARFSGETU
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015, KL. 8.30 – 12.00
GRAND HÓTEL REYKJAVÍK
KJARAMÁL Starfsgreinasam-
band Íslands, SGS, er ekki að slá
af kröfum sínum þótt ákveðið
hafi verið að fresta fyrirhuguðu
tímabundnu verkfalli tíu þúsund
félagsmanna aðildarfélaga þess
sem boðað hafði verið 19. og 20.
maí og ótímabundnu verkfalli frá
26. maí. Þetta segir Björn Snæ-
björnsson, formaður SGS.
Næstu aðgerðir eru nú boðaðar
28. og 29. maí og svo ótímabundið
frá 6. júní verði ekki samið fyrir
þann tíma.
„Við erum bara að gefa Samtök-
um atvinnulífsins tækifæri til að
koma með eitthvað almennilegt
tilboð til þess að það verði hægt
að klára þessa samninga. Þetta
þýðir ekki að við séum að slá af.
Við veitum frest og skorum á SA
að nýta hann. Þetta er gert til að
veita umþóttunartíma.“
Spurður hvort Starfsgreina-
sambandið sé með þessu einnig
að reyna að verða samferða VR,
Landssambandi íslenskra versl-
unarmanna og Flóabandalag-
inu í aðgerðum segir Björn: „Það
yrði auðvitað meiri þungi þegar
kannski 80 þúsund manns fara í
verkfall á sama tíma en það var
ekki endilega pælt í því þegar við
vorum að taka þessa ákvörðun.“
Björn segir boltann vera hjá
Samtökum atvinnulífsins að nálg-
ast skynsamar og ábyrgar kröfur
Starfsgreinasambandsins. Næsti
samningafundur SGS og SA hefur
verið boðaður á mánudaginn.
Fundur BHM og samninga-
nefndar ríkisins í gær breytti litlu,
að sögn Páls Halldórssonar, for-
manns samninganefndar Banda-
lags háskólamanna, BHM. „Við
komumst voða lítið á þeim fundi.
Við erum enn að ræða saman en
alls ekkert að klára eitt eða neitt.“
Páll nefnir að bæði sé verið að
fást við upphæðir og kerfi. „Kerfið
getur aldrei tekið mið af samning-
um annarra. Þeir geta ekki verið
að bíða eftir samningum við aðra.
Við leggjum ríka áherslu á að ná
fram samningi sem hentar okkur
og við viljum koma þeim viðræð-
um almennilega í gang.“
Næsti fundur BHM og samn-
inganefndar ríkisins verður á
mánudag.
VR og Flóabandalagið luku
átta klukkustunda fundi samn-
inganefnda félaganna í gær. „Við
vorum að ræða saman um hvort
það væri hægt að vinna með eitt-
hvað í tilboðum SA,“ segir Ólafía
B. Rafnsdóttir, formaður VR.
„Við erum enn að tala saman og
munum halda áfram fundarlot-
unni á sunnudaginn.“ Aðspurð
segir Ólafía að frestun á verk-
falli Starfsgreinasambandsins
hafi ekki verið til að stilla saman
strengi með verkfallsaðgerðum
annarra verkalýðsfélaga. „Ég
frétti bara af þessu í fjölmiðlum
í morgun,“ segir hún.
ibs@frettabladid.is
stefanrafn@frettabladid.is
Sláum ekki
af kröfum
með frestun
Starfsgreinasamband Íslands hefur frestað verk-
föllum. Vill veita Samtökum atvinnulífsins tækifæri
til að koma með almennilegt tilboð. Lítill árangur af
fundi samninganefndar ríkisins og BHM.
PÁLL
HALLDÓRSSON
BJÖRN
SNÆBJÖRNSSON
HJÁ RÍKISSÁTTASEMJARA Formenn félaga launamanna vilja almennileg tilboð.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MENNTUN Hvíta-Rússlandi var
veitt aðild að Bologna-ferlinu á
fundi menntamálaráðherra ríkja
sem eiga aðild að samstarfinu.
Ríkinu er gert að auka sjálf-
stæði háskóla sinna og auka
réttindi stúdenta til að geta átt
fulla aðild að samstarfinu. Hvíta-
Rússland hefur áður sótt um
aðild en var hafnað vegna frelsis-
sviptinga á stúdentum í kjölfar
forsetakosninga í landinu.
Bologna-ferlið er verkefni sem
tryggir samevrópskt háskóla-
svæði og aukinn hreyfanleika á
milli námsmanna í Evrópu.
Illugi Gunnarsson mennta-
málaráðherra stýrði fundi
menntamálaráðherra þeirra
ríkja sem eiga aðild að Bologna-
samstarfinu í Armeníu. Fund-
inum lauk í gær.
„Samstarfið hefur verið hvatn-
ing fyrir nemendur og starfs-
menn til að flytja sig á milli
landa með viðurkenndar náms-
og starfsaðferðir í farteskinu,“
sagði Illugi í ávarpi sínu. - srs
Menntamálaráðherra stýrði ráðherrafundi um þróun Bologna-samstarfsins:
Hvíta-Rússlandi veitt aðild
SAMSTARF Illugi lofaði Bologna-sam-
starfið. MYND/MENNTAMÁLARÁÐUNEYTI ARMENÍU
STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin sam-
þykkti í gærmorgun að veita
fjórar milljónir króna af ráðstöf-
unarfé sínu til hátíðardagskrár
sem haldin verður á Arnarhóli
sunnudaginn 28. júní næstkom-
andi.
Hátíðin er haldin í tilefni þess
að hinn 29. júní næstkomandi
verða 35 ár liðin frá kjöri Vig-
dísar Finnbogadóttur í embætti
forseta Íslands. Fjöldi stofnana
stendur fyrir viðburðinum.
- vh
35 ár frá kjöri Vigdísar:
Styrkur til
hátíðarhalda
PALESTÍNA Ísraelskar öryggis-
sveitir beittu táragasi, vatns-
sprautum og skutu gúmmíkúl-
um á palestínska mótmælendur
í gær.
Palestínubúar minntust þess
að 67 ár eru frá stofnun Ísraels-
ríkis og efndu til mótmæla.
Sautján manns slösuðust í átökum
í Ramallah og Nablus. Ísraelsher
fylgdi fjölda pílagríma að graf-
hýsi Jósefs í Nablus og gerðu pal-
estínskir mótmælendur hróp að
þeim og grýttu grjóti að þeim. - srs
Átök í Ramallah og Nablus:
Skutu á mót-
mælendur