Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 22

Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 22
16. maí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22 Þetta hefur verið að vaxa mikið ár frá ári og er orðinn fastur liður í við-burðadagatali Reykja-víkur,“ segir Martin L. Sörensen, viðburða- stjóri TEDxReykjavík. Viðburð- urinn TEDxReykjavík verður haldinn í fimmta skipti í dag í Tjarnarbíói. Um er að ræða viðburð sem færir áhorfendum nokkra áhuga- verðustu hugsuði, listamenn og frumkvöðla sem Ísland hefur upp á að bjóða. Þá munu tveir er lendir mælendur flytja erindi. Hvor þeirra mun flytja stutt en inni- haldsríkt erindi um málefni sem brennur á honum eða henni. Þema viðburðarins í ár er „Ljós og skuggar“ og er markmiðið að einblína á atriði sem við sem sam- félag kjósum oft að horfa ekki á en með því að taka erfiðum málum með opnum örmum verðum við sterkari. TEDxReykjavík er byggt á sömu gildum og hugsjón og TED en TED er árlegur atburð- ur þar sem leiðandi hugsuðum og athafnamönnum í heiminum er boðið að deila eldmóði sínum með öðrum. „TED“ stendur fyrir „technology“, „entertainment“ og „design“ eða tækni, skemmtun og hönnun. HELGIN 16. maí 2015 LAUGARDAGUR Hugsuðir miðla reynslu TEDxReykjavík fer fram í fi mmta sinn í Tjarnarbíói í dag. Fjöldi hugsuða og athafnamanna tekur þar til máls og reyna að miðla sinni reynslu og hugsun. Gísli Ólafsson hjálparstarfs- maður veitir fólki innsýn í veruleika hjálpar- starfsmannsins, sem oft er hjúpaður dýrðarljóma í hugum fólks. Selma Hermannsdóttir deilir reynslu sinni af því að vera ítrekað lögð í einelti og hugarfarinu sem gerir henni kleift að höndla það og verða sterkari fyrir vikið. Búi Aðalsteinsson frumkvöðull leiðir gesti í allan sannleika um hvers vegna við ættum öll að neyta skordýra í meira mæli. Hann og fleiri standa um þessar mundir fyrir framleiðslu orkustykkis úr skordýrapróteini. Kyra Maya Philips, frumkvöðull og rithöfundur, fjallar um leynd hagkerfi og menningu í jaðarhópum samfélagsins, en bók hennar og Alexu Clay, The Misfit Economy, kemur út í júní. Arnoddur Magnús Danks, leikari, kennari og sviðsbardagamaður, flytur erindi um mikilvægi þess að gefast ekki upp og hvernig hann beitir þeim lærdómi í starfi sínu með börnum. Hermann Jóns- son, faðir Selmu, segir frá sýn sinni á foreldrahlut- verkið og hvernig hann einsetti sér að vera besti pabbi í heimi. Birgitta Jóns- dóttir, þingskáld og pírati, deilir með gestum sýn sinni á framtíð lýðræðisins. Páll Ólafsson félagsráðgjafi hefur sterk skilaboð að færa for- eldrum: Hættum að æpa á börnin okkar. Við þurfum að sjá þau og hlusta á þau. Steve Fuller, prófessor við War- wick-háskóla í Englandi, viðrar nýjar kenningar sínar um hvernig hugmyndafræði og stjórnmál geta gjörbreyst í nálægri framtíð. Kári Halldór Þórsson leiklistar- kennari fer með gesti í ferðalag um heim ímyndunarafls, tjáningar, samskipta og orku. Einnig kemur Linda Ósk Valdi- marsdóttir fram. Hún hefur unnið að þróun eigin dansstíls, EXMO (Experimental Movement). ÞEIR SEM TAKA TIL MÁLS ERU MIKILL HUGSUÐUR Ólafur Stefánsson handboltakappi fjallaði í fyrra um hvaða lærdóm mætti draga af handbolta í lífinu. MYND/ ROMAN GERASYMENKO Gunnar Leó Pálsson gunnarleo@frettabladid.is Staðsetning Tjarnarbíó. Verð 6.000 krónur. Tími Í dag klukkan 10.00. ➜ TEDxReykjavík Afgreiðslutími Mán. til fös. frá kl. 10–18 Laugardaga frá kl. 11–16 www.dorma.is Holtagörðum 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100 REST heilsurúm Fyrir þínar bestu stundir MEIRA Á dorma.is COMFORT heilsurúm LUXURY heilsurúm Nature’s Luxury dýna með Classic botni Stærð cm Dormaverð 120x200 129.900 kr. 140x200 155.900 kr. 160x200 169.900 kr. 180x200 189.900 kr. • Svæðaskipt poka- gormakerfi • Burstaðir stálfætur • Sterkur botn • 320 gormar pr fm2 • Góðar kantstyrkingar • Svæðaskipt poka- gormakerfi • Burstaðir stálfætur • Sterkur botn • 320 gormar pr fm2 • Steyptar kantstyrkingar • Svæðaskipt poka- gormakerfi • Þrýstijöfnunar yfirdýna • Burstaðir stálfætur • Sterkur botn • 320 gormar pr fm2 Nature’s Comfot dýna með Classic botni Stærð cm Dormaverð 100x200 99.900 kr. 120x200 119.900 kr. 140x200 138.900 kr. 160x200 149.900 kr. 180x200 164.900 kr. Nature’s Rest dýna með Classic botni Stærð cm Dormaverð 90x200 68.900 kr. 100x200 72.900 kr. 120x200 79.900 kr. 140x200 92.900 kr. 160x200 99.900 kr. 180x200 117.900 kr. Þórunn Erna Clausen, tónlistar- og leikkona Vinna, skóli og kaffi Þessi helgi er troðfull af vinnu og skóla hjá mér. Ég er í söng- og raddþjálfaranámi í Kaupmannahöfn. Í dag syng ég á tónleikum þar og hitti frábæra vini. Á morgun er ég í skólanum allan daginn. Benedikt Valsson fjölmiðlamaður Slakar á og horfi r á fótbolta Ég ætla að slaka mjög mikið á um helgina. Ég ætla svo að fara á KR-völlinn á sunnudagskvöld. Ég geri ekki ráð fyrir þremur stigum en mikið svakalega væri það gaman! Hanna Rún Bazev Óladóttir dansari Farðar skvísur og hefur það huggulegt Í dag fæ ég nokkrar skvísur í förðun til mín og mun svo halda í hefðina, og fara á vídeóleiguna, taka mynd og kaupa nammi og hafa það huggulegt með fjölskyldunni. Kíki svo í kaffi til ömmu og afa á morgun, en annars mun helgin að mestu fara í að pakka búslóðinni niður þar sem við ætlum að flytja af landi brott í júlí og förum til Rússlands í frí bráðum. Þá verðum við að finna tíma um helgina til að kaupa gjafir til að hafa með okkur út. Margeir Ingólfsson, DJ Margeir Æfi r splittið „Ég verð náttúrulega að spila í kvöld á klúbbakvöldi á Dolly. Deginum verður því varið í að dusta rykið af gömlum vínyl- plötum. Á sunnudag ætla ég að slaka á og æfa splittið mitt, ég verð að halda mér heitum.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.