Fréttablaðið - 16.05.2015, Page 30

Fréttablaðið - 16.05.2015, Page 30
16. maí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30 Tökur standa yfir á þriðju seríu sakamálaþáttanna Réttar. Baldvin Z sér um leikstjórn og handrits-höfundar eru Þorleifur Örn Arnarsson og Andri Óttarsson. Serían er frumraun þeirra í handritsgerð fyrir sjón- varp. Þorleif kannast margir við úr leikhúsgeiranum þar sem hann hefur leikstýrt fjölda verka, meðal annars Sjálfstæðu fólki og Englum alheimsins, og starfað í leikhúsum í Þýskalandi. Aðkoma Andra er óhefðbundnari, hann kemur úr heimi lögfræði og pólitíkur en ákvað fyrir um fimm árum að láta drauminn rætast og einbeita sér að skrifum. Skrifin veita lífsánægju „Þetta hefur alltaf blundað í mér og á einhverjum tímapunkti fór ég að gera mér betur og betur grein fyrir því að þetta var það sem veitti mér mesta lífsánægju. Það leiddi til þess að ég fór að þreifa mig áfram og fikta við skáldskapinn,“ segir Andri og bætir við að hann hafi í kjölfarið komist að því að honum þóttu skáldskaparskrifin skemmti- leg. „Lífið er einhvern veginn allt of stutt og skemmtilegt til þess að vera að gera eitthvað annað en það sem maður hefur mesta ánægju af því að gera.“ Áralöng vinátta Andri og Þorleifur hafa verið vinir lengi, raunar svo lengi að þeir eiga í erfiðleikum með að rifja upp ára- fjöldann. Andri hefur aðstoðað Þor- leif á bak við tjöldin í hans verk- efnum, lesið yfir efni og jafnvel ferðast á milli landa til að rétta hjálparhönd. Þorleifur var því fljótur að stinga upp á að þeir skrifuðu handritið að Rétti 3 saman þegar honum bauðst verkefnið. „Það meikaði sens að við tveir myndum skrifa þetta, annar úr leikhúsinu og svo Andri úr lögfræð- inni sem hafði líka þessa hæfileika,“ segir Þorleifur og bætir við: „Samtalið við SagaFilm um að fá Andra um borð tók í alvöru þrjár mínútur,“ segir Þorleifur og hælir hugrekki SagaFilm, að þora að veðja á nýja höfunda og gefa þeim frelsi til að enduruppgötva seríuna. Feikilega gott teymi Þeir eru ólíkir í fasi og framkomu en augljóst er að þarna er eitthvað sem virkar. Einhvers konar jin-jang orka þar sem þeir vega hvor annan upp. Þeir eru sammála um að þeir skipi gott teymi, samvinnan hefur gengið vel og jafnvel styrkt vinátt- una. „Okkur gengur rosalega vel að vinna saman. Ég held að reynsla Dodda sem leikstjóra hjálpi okkur mikið. Hann getur alltaf hámarkað möguleikana sem hver sena hefur og er algjörlega óhræddur við að benda á að senan gæti verið betri. Þó að þetta sé eitthvað sem aðrir myndu segja að væri mjög gott, þá sér hann alltaf það sem hægt er að bæta ofan á hana í gæðum. Sem er ómetanlegt. Ég held að þetta komi að einhverju leyti úr leikstjórninni,“ segir Andri og beinir þessum vanga- veltum að vini sínum sem fellst á það. Þorleifur segir markið hafa verið sett hátt, enda þýði ekkert annað. „Við ákváðum að skrifa besta hand- rit sem hefur komið í íslensku sjón- varpi og sögðum að það yrði enginn afsláttur gefinn,“ segir Þorleifur á meðan Andri brosir út í annað yfir ákefðinni. Þorleifur heldur hlæjandi áfram. „Já, eða ég er alltaf búinn að vera að tala um það og ég bara trúi því. Það hvort manni tekst það eða ekki er ekki endilega aðalatriðið, en maður verður að stefna á það.“ Að handritinu hafa þeir unnið í rúm tvö ár og kastað því á milli. Minna úr réttarsalnum Réttur fjallar um lögfræðistofuna Lög og rétt og þær flækjur sem upp koma. Fyrri handrit skrif- uðu Sigur jón Kjartansson og Mar- grét Örnólfsdóttur og aðalhlutverk eru í höndum Magnúsar Jónsson- ar sem Loga og Jóhönnu Vigdísar Arnardóttur í hlutverki Brynhildar. Verkefnið var því spennandi að tak- ast á við, sér í lagi þar sem um er að ræða frumraun þeirra beggja í sjónvarpi. Sögusviðinu breyttu þeir að því leyti að minna er í réttarsaln- um og meiri áhersla á íslenskan veruleika. „Ég var ofboðslega fljótur að útskýra fyrir fólki að íslensk- ir réttar salir eru svona sirkabát leiðin legasta sjónvarpsefni sem til er í heiminum,“ segir Andri sposk- ur á svip. Eftir þá ákvörðun kviknuðu spurningar um umfjöllunarefni þáttanna en þeir félagar áttuðu sig fljótt á að starf lögmanna snert- ir marga fleti íslensks samfélags. Afraksturinn er samfelld saka- málasaga úr íslenskum raunveru- leika þar sem dregin er upp yfirlits- mynd af ofbeldismálum. Umfjöllunarefnið er kynferðis- ofbeldi gagnvart ungum einstak- lingum í neyslu og hinn duldi heimur internetsins þar sem sam- félagsmiðlar koma við sögu. Þeir sönkuðu að sér upplýsing- um um málaflokkinn, þó ekki um einstakt mál, og lögðu upp með að þættirnir væru raunverulegir og drægju ekkert undan. „Það er varla að það komi þarna inn sena eða atvik sem á sér ekki hliðstæðu eða jafnvel enn öfgafyllri útgáfu í íslenskum raunveruleika í dag. Ekki í LA eða einhvers stað- ar í Simbabve, heldur hér,“ bætir Þorleifur við ákveðinn og segir sjónvarpsseríuformið henta vel til þessa en í handritinu eru margar sögur fléttaðar saman yfir langan tíma. „Við vorum ákveðnir í því eigin- lega frá fyrstu mínútunni að það væri vannýtt tækifæri ef við færum að skrifa þessa seríu ein- göngu út frá skemmtanagildi, það yrði að vera einhver þjóðfélagsleg skírskotun,“ segir Andri og bætir við að ánægjulegt sé að vilji sé til að skapa efni með sterkum skila- boðum og skírskotun í raunveru- leg og aðkallandi málefni. Kjarni vináttunnar Þarna tekur Þorleifur til máls og segir að það sé einmitt þessi köllun þeirra beggja sem sé kjarni vinátt- unnar. „Við viljum báðir hafa áhrif á samfélagið. Andri áður í gegnum pólitískt starf og lögmennsku og ég í gegnum leikhúsið,“ segir Þorleifur. „Við fórum í gegnum sameigin- legt ferli og ég held að við höfum báðir komist að því að í listinni hafi maður að mörgu leyti tækifæri til, þó að þú sjáir það ekki alveg svart á hvítu, að hafa djúpstæðari aðgang að fólki. Þetta eru níu þættir sem munu kannski rúlla í gegnum þrjá mánuði. Ef okkur tekst vel upp þá geta þessi málefni verið á milli tannanna á fólki í fleiri mánuði,“ segir Þorleifur og það er augljóst að umfjöllunarefnið er þeim hjart- ans mál. Tökur á þáttunum standa yfir fram í júlí en stefnt er á að sýning- ar hefjist á Stöð 2 í október. „Við erum búnir að sjá svolítið úr tökunum, fáum sendar senur og senur, og þetta lítur alveg svaka- lega vel út. Við erum mjög spenntir, alveg eins og krakkar í dótakassa,“ segir Þorleifur ánægður og bætir við að það sé magnað að sjá tveggja ára vinnu vakna til lífsins. Andri er sammála og bætir við: „Það er alltaf erfitt að afhenda sköp- unarverkið í hendurnar á einhverj- um öðrum en eftir fyrsta fundinn með Baldvin Z vissum við að hand- ritin gætu ekki verið í betri höndum, hann deilir sömu sýn á verkefnið og er í raun eins og hugur okkar á setti. Við erum búnir að mæta nokkrum sinnum á settið og sjá þessar fyrstu tökur. Það sem við erum búnir að sjá er enn þá betra en það sem maður þorði að vona,“ segir hann. Þegar þeir eru inntir eftir því hvort þetta verkefni sé upphafið að frekara samstarfi þeirra eru svörin skýr: „Það er ljóst að við munum halda þessu áfram,“ segir Andri ákveð- inn og Þorleifur tekur í sama streng: „Þetta var bara upphitun.“ Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is Tilvísun í hræðilegan veruleika Þorleifur Örn Arnarsson og Andri Óttarsson, gamlir vinir sem gætu virst ólíkir en skipa gott teymi, skrifuðu handritið að Rétti 3, sakamálaþætti. Serían verður talsvert ólík þeim sem á undan hafa komið og er sögusviðið fært úr réttarsalnum. SAMEINA KRAFTA SÍNA Andri Óttarsson og Þorleifur Örn Arnarsson hafa unnið að handritinu að Rétti 3 í rúm tvö ár. Þeir eru gamlir vinir og segja handritið upphafið að frekara samstarfi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Lífið er einhvern veginn allt of stutt og skemmtilegt til þess að vera að gera eitthvað annað en það sem maður hefur mesta ánægju af því að gera. Andri Óttarsson Við erum búnir að sjá svolítið úr tökunum, fáum sendar senur og senur, og þetta lítur alveg svakalega vel út. Við erum mjög spenntir, alveg eins og krakkar í dótakassa. Þorleifur Örn Arnarsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.