Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 41
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSÖLUFULLTRÚAR Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Leikskólinn Aðalþing starfar í anda hugmyndafræði Malaguzzi frá Reggio Emilia og
við leggjum mikið á okkur við að gera góðan skóla strax, því börn hafa ekki tíma til
að bíða, þau eldast bara og fara frá okkur. Við reynum að upplifa ævintýrið í
sérhverjum degi og leitum að fleiri leikskólakennurum til að njóta þess með okkur.
Vilt þú vinna með mörgum öðrum leikskólakennurum á deildinni?
Væri það ekki draumur?
Við viljum ráða leikskólakennara sem elska að vinna í anda Reggio
eða hafa löngun til að kynnast skapandi starfi,
uppeldisfræðilegum skráningum
og lýðræðsilegum þankagangi í öllu starfi skólans.
Leikskólakennari eða
LEIKSKÓLINN
AÐALÞING
Umsóknarfrestur er til 10. júní eða eftir samkomulagi. Hafðu samband við Hörð
skólastjóra ef þig langar að forvitnast um starfsmöguleika í Aðalþingi. Síminn er
7703553 og netfangið er hordur@adalthing.is
starfsmaður með aðra frábæra háskólamenntun sem nýtist í
starfi, óskast til starfa með okkur í frábærum leikskóla, frá og
með haustinu eða fyrr…
Við óskum eftir faglærðum rafvirkja, vélvirkja eða vélstjóra með góða þjónustulund
sem staðsettur verður á starfsstöð okkar í Kópavogi. Um er að ræða sérhæfða
þjónustu, sem þarfnast þekkingar á vél- og rafbúnaði, við dælukerfi um allt land.
Nánari upplýsingar veitir: Árni Gíslason • arni@hamar.is • 660 3602
Við leggjum áherslu á :
• að starfsfólk þekki starfsemi okkar
• gæða- og öryggisstefnu fyrirtækisins
• skemmtilegan starfsanda og vinnugleði
• að hæfni ráði vali á starfsfólki
• hvetjandi og öruggt starfsumhverfi
• samkeppnishæf laun
Ráðningarferli:
Val á starfsfólki byggir á faglegum vinnubrögðum.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðargögn.
Umsóknarfrestur er til og með 31.05.2015
Vinsamlegast fyllið út starfsumsókn á heimasíðu
okkar www.hamar.is
Véltæknimaður
hamar.is
Vinnumálastofnun
Frá atvinnuleysi til starfa
Vinnumálastofnun auglýsir eftir til boðum í
virkni- og náms úr ræði fyrir atvinnuleitendur
sem tryggðir eru innan at vinnu leysis trygg-
inga kerfis ins sbr. 12. gr. laga nr. 55/2006.
Í starfsáætlun þessa árs leggur Vinnu mála stofnun
sérstaka áherslu á atvinnu leitendur af erlendum
uppruna, konur, há skóla mennt aða og ungt fólk, auk
þess sem staða ófag lærðra er ávallt áherslu atriði í
vinnu markaðs að gerðum stofn unar innar.
Leitað er eftir tilboðum í virkni úrræði / nám skeið sem
styðja við at vinnu leit endur og styrkja stöðu þeirra á
vinnu markaði.
Áhersla er á virkni- og námsúrræði
á eftirfarandi sviðum:
• Sjálfsstyrkingar- og starfsleitarnámskeið
fyrir tiltekna markhópa.
• Notkun samfélagsmiðla í atvinnuleit.
• Tölvunámskeið.
• Námskeið í að stofna og reka fyrirtæki.
• Íslenskunám fyrir atvinnuleitendur af erlendu bergi.
• Starfstengd námskeið sem hafa það að markmiði að
hvetja þátttakendur til að endurskoða viðtekin viðhorf
til kvenna- og karlastarfa.
Jafnt einstaklingum sem fyrirtækjum er boðið að
leggja inn tilboð. Gerð er krafa um sérmenntun
leiðbeinenda og reynslu af námskeiðshaldi.
Vinnumálastofnun áskilur sér rétt til að taka eða
hafna öllum tilboðum og verða þjónustusamningar
gerðir við þá bjóðendur sem samþykkt verður að
ganga til samstarfs við.
Óskað er eftir tilboðum sem tilgreina tilgang og
markmið námskeiðs, tímalengd, verð pr. tímaeiningu,
námsgögn, staðsetningu og annað sem tilboðsgjafar
telja mikilvægt að komi fram.
Tilboðum merkt „Tilboð í virkni- og námsúrræði“
skal skilað fyrir 31. maí 2015 til:
Vinnumálastofnunar, Kringlunni 1, 103 Reykjavík
Vinnumálastofnun Kringlunni 1, 103 Reykjavík Sími 515 4800 www.vmst.is
Fyrirmyndarþjónusta Virðing Áreiðanleiki