Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 88

Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 88
16. maí 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 56 Það er ótækt að fólk sem er í forsvari fyrir stofn- un sem rekin er að stórum hluta fyrir almannafé nýti sér vísvitandi glufu í lagaramma um sjálfseignarstofn- anir til að firra sig ábyrgð og undanskilja ferla og verklag frá stjórnsýslulögum. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Arnbjörg María Danielsen er ung kona sem er að hasla sér völl í evrópskum menningarheimi en er minna þekkt hér heima fyrir. Arn- björg María býr í Berlín og starfar sem framleiðandi, listrænn stjórn- andi og leikstjóri í veröld alþjóð- legrar óperu, tónlistar- og menn- ingarviðburða sem nær þó vart utan um allt sem hún fæst við frá degi til dags. Arnbjörg María tekur engu sem gefnu heldur er í sífellu leitandi í framleiðslu sinni sem og listsköp- un, sem er búið að vera viðburða- ríkt ferðalag. Gruflarinn „Tónlist og leikhús hafa ávallt skipað stóran sess í lífi mínu en ég stefndi frekar að því að læra list- fræði, fornleifafræði, stjórnmála- fræði eða eitthvað slíkt. Var komin til Ítalíu til þess að læra listasögu og alþjóðleg stjórnmál og að vinna sem fararstjóri þegar áhugi minn á óperu leiddi mig í minn fyrsta söngtíma, hjá Kristjáni Jóhanns- syni. Hlutirnir gengu hratt fyrir sig og ég átti dýrmæt ár með Alinu Dubik og fleira stórkostlegu fólki í Tónlistarskólanum í Reykjavík, sem undirbjó mig fyrir masters- nám í óperu og tónlistarleikhúsi við Mozarteum-háskólann í Salz- burg. Þó að mér gengi vel að syngja, einkenndist tíminn í Mozarteum af miklum sjálfsefa. Ég eyddi mikl- um tíma á bókasafninu í saman- burði við aðra söngvara og sótti meira og meira í samtímatónlist og framúrstefnulegri sviðsfram- setningar og listform. Þegar kom að því að hrökkva eða stökkva sem söngvari varð ég að horfast í augu við það að ég saknaði þess of mikið að hugsa og grufla. Hafði meiri áhuga á hugmyndavinnunni og öllu því sem að baki liggur, frek- ar en að standa sjálf í sviðsljós- inu. Fannst aðrir eiga miklu meira erindi á fjalirnar en ég.“ Ný hugsun Arnbjörg María söðlaði um og fór í annað mastersnám í háskól- anum í Zürich og flutti sig þann- ig yfir á svið listrænnar stjórn- unar, dramatúrgíu og framleiðslu. Námið í Zürich var sérsniðið að rekstrarþörfum opinberra list- stofnana með megináherslu á leikhús og óperuhús. Það var sam- tvinnað af húmanísku fögunum, heimspekideildinni og hagfræði- deildinni í samstarfi við stóru óperuhúsin, leikhúsin, hátíðir og söfn í Evrópu. Flestir sem komust að voru talsvert eldri og reyndari, sem hjálpaði Arnbjörgu að mynda gríðar sterkt tengslanet innan menningarheimsins. „Þarna fékk ég tækifæri til þess að vinna með færum fagaðilum á jafningjagrunni því stjórnendur námsins og nemendur voru marg- ir hverjir í ábyrgðarstöðum eða að stýra stórum húsum og listvið- burðum. Það voru miklir hugsjónamenn sem stóðu á bak við þetta því námið var í sjálfu sér sprottið upp úr ákveðinni krísu sem snýr að réttlætingu á fjármögnun og stöðu opinberra leikhúsa í Evrópu í dag. En þarna lærði maður að fara nýjar leiðir og hvernig á að vinna af heilindum með hagsmuni listar- innar og samfélagsins í öndvegi.“ Far North Í dag vinnur Arnbjörg María mest í Þýskalandi og víða á Norðurlönd- unum. „Þetta eru fjölbreytt verk- efni. Ég vann til að mynda sem listrænn stjórnandi að 1864 sem var samstarf á milli Danmerkur og Þýskalands til að minnast loka Slésvíkurstríðsins, og nú í vetur sem listrænn stjórnandi 150 ára afmælis danska tónskáldsins Carls Nielsen. Ég verð næstu árin að vinna að svipuðum músíkdrama- tískum verkefnum og óperum í Þýskalandi og víðar. Mér þykir spennandi að vinna með sinfóníu- hljómsveitum á sviðsrænan hátt og gera tilraunir með rýmið. Þetta er flókið form og krefst mikillar útsjónarsemi og nákvæmni í fram- kvæmd. Annars er það verk sem ég brenn hvað mest fyrir alþjóðlegt tengslanet og framleiðsluvettvang- ur fyrir tónlistarleikhús í öllum sínum fjölbreytileika sem við Þor- leifur Örn Arnarsson leikstjóri og fleira ungt fólk frá Norðurlönd- unum settum á laggirnar undir nafninu Far North. Þar er verið að skiptast á hugmyndum og sækja innblástur hvert til annars. Fyrsta stóra samstarfsverkefni Far North er ópera eftir Önnu Þor- valdsdóttur, UR_Some Kind of Opera, í leikstjórn Þorleifs. Hún verður frumsýnd í Theater Trier í Þýskalandi í september. Þaðan fer hún í norsku Þjóðaróperuna, til Basel í Sviss og víðar. „Við erum svo að leggja drög að flutningi á Listahátíð í Reykjavík á næsta ári. Þannig að það er í mörg horn að líta.“ Sköpun og traust Sem listrænn stjórnandi og leik- stjóri leggur Arnbjörg María áherslu á að hún treysti áhorfend- um til þess að meðtaka. „Þannig vil ég meðtaka og því ber mér að sjálfsögðu að treysta öðrum til þess sama. Áhorfendur er miklu klárari en við höldum. Þeir geta fyllt í eyðurnar, bætt við og tekið þátt í hinni listrænu upplifun með sínum innri sköpunarkrafti. Víðs vegar innan óperuheimsins er meinlaus nálgun vandamál og þá einkum þegar kemur að verk- efnavali. Verkefnavalið þjappast í kringum tíu til fimmtán verk, t.d. á Íslandi eru svo fá verk sem fara í uppfærslu að þau koma nær aðeins af topp 10 alþjóðlega vin- sældalistanum. Þá er hætt við að árhorfendur kynnist aðeins brota- broti af hinu fjölbreytta tónmáli sem finnst innan óperunnar og fagurfræðin getur orðið einsleit. Hús í þessari stöðu hætta oft að vera hluti af lifandi hefð og verða einhvers konar skemmtanaleik- hús sem vantar alla vídd. Þannig hafa t.d. mörg lykilverka óperu- bókmenntanna aldrei verið flutt á Íslandi og það er ekki gott mál, því þá vantar stóra samhengið. Það verður spennandi að fylgjast með framþróuninni á Íslandi næstu misserin. Samfélagslegar skyldur Málið er að leikhús, tónlistar- hús og óperur sem eiga tilvist sína undir opinberri fjármögn- un þurfa að eiga virkt samtal við sam félagið um tilverurétt sinn og mikil vægi. Þetta samtal á sér stað á opinberum vettvangi og allt þarf að vera opinbert og til umræðu. Það er eina leiðin til þess að rétt- læta fyrir almenningi það sem við erum að gera. Það fólk sem er í forsvari í listheiminum getur ekki ætlast til þess að fólk bara sætti sig við það í blindni að listir séu órjúfanlegur og lífsnauðsynlegur hluti af lýðræðislegu samfélagi á 21. öldinni. Ef umræðan um mikil- vægi listarinnar í samfélaginu fer fram í lokuðum hópum og fyrir luktum dyrum þar sem allir eru meira eða minna sammála miss- um við af dýrmætu tækifæri og hætt er við að þetta mikilvæga samtal fari fyrir ofan garð og neðan. Þetta þýðir ekki að listin sjálf, innihaldið sjálft, eigi að lúta einhverjum lýðræðislegum lög- málum. En umgjörðin um hana og stofnanirnar svo sannarlega. Það er til að mynda sorglegt að fylgjast með því hvernig kerfisbundið er vegið að tónlistarlífi í landinu með þeim vanhugsuðu gjörningum er snúa að fasteignagjöldum á Hörpu um þessar mundir. Þetta þarf að ræða af miklu meiri nákvæmni á opinberum vettvangi.“ Stjórnun listheimsins Íslenska óperan hefur verið tals- vert í umræðunni að undanförnu en aðspurð um þróun mála segir Arnbjörg María að þar virðist hafa verið meðvitað eða ómeð- vitað kastað til hendinni og ekki viðhafðir starfshættir sem tíðkast í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. „Það er ótækt að fólk sem er í forsvari fyrir stofn- un sem rekin er að stórum hluta fyrir almannafé nýti sér vísvitandi glufu í lagaramma um sjálfs eignar- stofnanir til að firra sig ábyrgð og undanskilja ferla og verklag frá stjórnsýslulögum. Þetta er tækni- lega séð ekki ólöglegt. En þetta er meðvituð ákvörðun sem stjórn óper- unnar er í sjálfsvald sett (miðað við núverandi fyrirkomulag) og þegar kemur að hagsmunum list arinnar og samfélagsins er hún einfald- lega röng.“ Arnbjörg María minnir á að það getur verið hollt að muna úr hvaða grunni óperan er sprott- in. „Óperan á rætur sínar að rekja til rannsóknar á hinu forna gríska leikhúsi, frummynd hins evrópska leikhúss, sem hefur ávallt í eðli sínu verið pólitískt í þeim skilningi að það þrífst ekki án þess að setja fram áleitnar spurningar um hina mannlegu tilvist og stöðu mannsins í samfélaginu á hverjum tíma. Það er þessi órjúfanlega sam- félagslega vídd sem óperan þrífst á. Þess vegna er ábyrgðin lykil- atriði. Þegar stjórnun listheims- ins, innviðirnir sjálfir – ekki listin sjálf, er farin að spegla það sem er ekki í lagi í samfélaginu þá er það mjög alvarlegt mál. Listheimurinn verður að vera vitinn í myrkrinu og taka hlutverk sitt alvarlega. Strúktúrarnir verða að vera í lagi og gefa fyrirheit um betra sam- félag, vegna þess að þeir endur- spegla stöðu hins lýðræðislega samfélags. Aðeins þannig getur listin þrifist á eigin forsendum og skilað sínu hlutverki sem ómiss- andi ónæmiskerfi samfélagsins.“ Listin er ónæmiskerfi samfélagsins Arnbjörg María Danielsen býr í Berlín og starfar í veröld alþjóðlegrar óperu, tónlistar- og menningarviðburða. Vel menntuð, ung kona með skýra framtíðarsýn og óhrædd við að setja fram gagnrýni á Íslensku óperuna sem hefur ekki efni á því að skella við skollaeyrum. MENNING
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.