Fréttablaðið - 16.05.2015, Síða 96

Fréttablaðið - 16.05.2015, Síða 96
16. maí 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 64 Ég er mjög stoltur af því að hafa náð þessum árangri með mikið af heimamönnum. Dagur Sigurðsson. FÓTBOLTI Heimavöllurinn hefur ekki verið að gefa Pepsi-deildar- liðinum mikið í upphafi tímabils- ins og svo lítið að tölfræðin segir að útiliðin hafi aldrei staðið sig betur í fyrstu tveimur umferðun- um frá því að þriggja stiga reglan var tekin upp 1984. Útiliðin hafa náð í 69 pró- sent stiganna og skorað 63 pró- sent markanna í fyrstu tveimur umferðunum í Pepsi-deild karla í fótbolta. 22 stig hafa farið til úti- liðanna í þessum tólf leikjum en heimaliðin hafa „bara“ náð í sam- tals tíu stig. Fjögur stiganna hafa komið í jafnteflum. Útilið hafa einu sinni áður náð í 22 stig í fyrstu tveimur umferðun- um en það var sumarið 1987 þegar sjö af fyrstu tíu leikjum sumars- ins unnust af útiliðunum. Marka- talan var þó ekki eins óhagstæð heimaliðunum og í ár vegna þess að annar af sigrunum tveimur var 7-1 sigur Valsmanna á Keflavík á Hlíðarenda. Útiliðin hafa skorað 19 mörk í þessum tólf leikjum eða átta fleiri en heimaliðin. Útiliðin hafa aldrei skorað fleiri mörk í fyrstu tveim- ur umferðunum en þau gerðu einn- ig 19 mörk í fyrstu tólf leikjunum 2013. Markatala hefur aftur á móti aldrei verið hagstæðari fyrir úti- liðin á sama tíma síðan þriggja stiga reglan var tekin upp 1984. Einu liðin sem hafa unnið á heimavelli til þessa í sumar eru Fjölnir (1-0 sigur á ÍBV) og FH (2-0 sigur á Keflavík) en sigrar þeirra komu á móti einu liðum deildarinnar sem hafa ekki náð í stig í fyrstu tveimur umferðunum. Öll lið hafa spila heimaleik nema Íslandsmeistarar Stjörn- unnar sem eru reyndar með fullt hús og hreint mark eftir tvo úti- leiki. Fjölnir er eina liðið sem hefur bara spilað á heimavelli en Grafar vogsliðið er með fjögur stig eftir að hafa verið mínútum frá því að vinna annan heimaleikinn í röð í 1-1 jafnteflinu á móti Fylki. Þriðja umferðin fer öll fram á morgun, sunnudag, en þá mætast: Fylkir-ÍBV (klukkan 17.00), ÍA- Víkingur R., KR-Fjölnir, Stjarnan- Leiknir og Valur-FH (allir klukk- an 19.15) og Keflavík-Breiðablik (kl. 20.00). Þar eru fjögur af þeim fimm neðstu á heimavelli. - óój Úti er betra í Pepsi-deildinni Útiliðin hafa náð í 69 prósent stiganna og skorað 63 prósent markanna í sumar. ÞRJÚ STIG Í EFRA-BREIÐHOLTI Garðar Gunnlaugsson tryggði Skagamönnum einn af sex útisigrum Pepsi-deildarinnar í fyrstu tveimur umferðunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FLEST STIG ÚTILIÐA: 22 - 2015 22 - 1987 21 - 2007 19 - 2010 17 - 2011 og 2014 FLEST MÖRK ÚTILIÐA: 19 - 2015 19 - 2013 17 - 1991 17 - 2002 17 - 2008 BESTA MARKA- TALAN HJÁ ÚTILIÐUM: +8 2015 (19-11) +6 2007 (14-8) +4 1991 (17-13) +3 2002 (17-14) +3 1994 (11-8) FLESTIR SIGRAR ÚTILIÐA: 7 - 1987 6 - 2015 6 - 2007 5 - 2010, 1995, 2005, 2011 og 2014 ÁRANGUR ÚTILIÐA Í FYRSTU TVEIMUR UMFERÐUNUM 1984-2015: Í KVÖLD KL. 19:30 365.is Sími 1817 KEFLAVÍK – BREIÐABLIK Keflvíkingar taka á móti Breiðabliki á sunnudagskvöld kl. 19:30. Tekst heimamönnum að fá sín fyrstu stig í sumar eða gera Blikar sitt þriðja jafntefli í röð? FÓTBOLTI Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir er gengin í raðir Selfoss á ný. Dagný kemur frá stórliði Bayern München en hún varð þýskur meistari með liðinu á dögunum. Til stóð að Dagný myndi semja við lið í Bandaríkjunum en liðin í atvinnumannadeildinni vestra settu sig upp á móti því að hún þyrfti ekki að fara í gegnum formlegt valferli eins og aðrir leikmenn sem koma inn í deildina. Ekkert varð því af þeim félagaskiptum. Dagný mun spila með Selfossi í sumar, í það minnsta fram í miðjan júlí þegar félagaskiptaglugg- inn opnar á ný. Dagný lék með Selfossi í Pepsi- deildinni í fyrra og skoraði þá sjö mörk í ellefu deildarleikjum. Ljóst er að landsliðskonan styrkir Selfossliðið gríðarlega en Sunnlendingar töpuðu fyrir Fylki í sínum fyrsta leik í Pepsi-deildinni á fimmtudaginn. - iþs Frá München til Selfoss HANDBOLTI Hafnfirðingurinn Jóhann Birgir Ingvarsson, sem féll á lyfjaprófi eftir bikarúrslitaleik FH og ÍBV í lok febrúar, hefur verið dæmdur í sex mánaða keppnisbann. Þetta staðfesti Skúli Skúlason, formaður Lyfjaráðs ÍSÍ, í samtali við Frétta- blaðið í gær. Niðurbrotsefni af anabólískum sterum fundust í sýni Jó- hanns sem var tekið eftir bikarúrslitaleikinn sem ÍBV vann, 23- 22. Í yfirlýsingu sem leikmaðurinn og FH sendu frá sér í apríl í kjölfar fréttaflutnings um málið segir að Jóhann hefði tekið inn fæðubótarefni, sem er leyfilegt til sölu á Íslandi, í góðri trú. Það var þó aldrei tekið fram hvaða efni var um að ræða. Jóhann, sem er 21 árs gamall, hefur fengið dóminn sendan en hann verður birtur í heild sinni á heimasíðu ÍSÍ á mánudag- inn. „Hann hefur áfrýjunarrétt og getur áfrýjað þessum dómi ef hann vill,“ sagði Skúli í samtali við Fréttablaðið í gær en refsingin sem Jóhann fékk þykir í vægari kantinum. - iþs Jóhann Birgir í sex mánaða bann SEKUR Jóhann Birgir Ingvarsson er á leið í hálfs árs keppnisbann fyrir steranotkun. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SPORT HANDBOLTI „Það er lúxus að þurfa ekki að ferðast í þessa leiki eftir álagið síðustu vikur,“ segir Dagur Sigurðsson en lið hans, Füchse Berlin, verður á heimavelli um helgina er úrslitahelgi EHF-bik- arsins fer fram. Lið Dags mætir slóvenska liðinu Gorenje Velenje í dag en í hinum undanúrslitaleiknum mætast danska liðið Skjern og þýska liðið Hamburg. Það er skammt stórra högga á milli hjá liði Dags því um síðustu helgi var Berlin að spila í undanúrslitum þýska bikarsins. Þar tapaði liðið á grátlegan hátt, 27-26, fyrir Magdeburg. „Sú helgi var svakaleg og allir leikir réðust með einu marki eða fóru í framlengingu. Ég geri ráð fyrir álíka jöfnum leikjum núna um helgina. Við erum búnir að hrista af okkur vonbrigðin og erum frek- ar léttir á því.“ Vantar trukkana Berlin hefur þó orðið fyrir áfalli því línumaðurinn og varnartröll- ið Jesper Nielsen getur ekki spilað með liðinu um helgina. „Hann er mjög mikilvægur fyrir okkur á báðum endum vallarins. Þetta er högg fyrir okkur og hóp- urinn er þunnur fyrir. Svo vantar okkur líka Denis Spoljaric sem er aðalvarnarmaðurinn okkar. Okkur vantar því báða trukkana í vörnina og um leið eykst álagið á hina.“ Í hönd eru að fara síðustu vikur Dags með liðið en hann lætur af starfi þjálfara Füchse Berlin í lok leiktíðar. Hann mun einbeita sér að landsliðsþjálfarastarfinu hjá Þjóð- verjum í framtíðinni. Mikið af uppöldum strákum „Það er frábært að fá svona helgi áður en maður hættir. Ég er líka að mæta til leiks með mikið af heimamönnum en helmingurinn af hópnum hjá okkur er uppaldir strákar. Það er mjög skemmtilegt og ekki algengt í dag. Þar af eru tveir strákar, 20 og 21 árs, aðal- menn í skyttustöðunum. Þetta er næstum því kveðjustund hjá mér og væri gaman að kveðja með titli þó svo að þetta verði mjög erfitt. Við vorum líklegir á heimavelli en meiðslin setja strik í reikninginn,“ segir Dagur en hans lið komst líka í undanúrslit í sömu keppni í fyrra en tapaði þá undanúrslitaleiknum. Ef Berlin kemst í úrslit verður Dagur ekki eini Íslendingurinn á svæðinu því Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson munu dæma úrslita- leikinn. Þegar helginni lýkur tekur við mikill lokasprettur hjá liðinu þar sem það spilar fimm deildarleiki á þrettán dögum. „Svona er þetta bara. Eftir HM þá spiluðum við tvo leiki á viku átta vikur í röð. Það er mikið álag enda líka mikil ferðalög. Þessir strákar hafa ekki fengið að anda síðan í júlí í fyrra.“ Margar eftirminnilegar stundir Dagur er að klára sjötta árið sitt með Füchse Berlin og hann segist ganga stoltur frá borði. „Ég er mjög sáttur við hvernig ég skil við liðið. Það er mjög gaman að geta hætt hérna eftir sex ár án þess að vera rekinn. Það er óal- gengt í þessum bransa. Við höfum fimm sinnum komist í „final four“ í keppnum á þessum sex árum og unnum bikarinn í fyrra. Náðum þriðja sæti í deild og topp fjórum í Meistaradeildinni. Það eru marg- ar eftirminnilegar stundir og ég er líka mjög stoltur af því að hafa náð þessum árangri með mikið af heimamönnum. Ég geng stoltur frá borði,“ segir Dagur en liðið verð- ur áfram undir íslenskri stjórn þar sem Erlingur Richardsson tekur við starfinu af Degi. „Ég hefði viljað skila honum lið- inu með Spoljaric og Bartlomiej Jaszka en það lítur út fyrir að þeir þurfi að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. Það er því mikil breyting en hann mun fá nýja menn og þarf að móta sitt eigið lið.“ henry@frettabladid.is Væri gaman að kveðja með titli Dagur Sigurðsson er á lokasprettinum með lið sitt, Füchse Berlin. Hann verður í eldlínunni um helgina í undanúrslitum í EHF- bik- arnum. Þau fara fram á heimavelli Berlin og lið Dags er líklegt til afreka. Er tímabilinu lýkur segist Dagur ganga stoltur frá borði. KAFLA AÐ LJÚKA Dagur á ekki eftir að stýra mörgum leikjum hjá Berlin í viðbót en gæti náð í titil um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.