Fréttablaðið - 16.05.2015, Side 104
NÆRMYND
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Patrekur
Jóhannesson
Harðduglegur bangsapabbi
ALDUR: 43 ára
MAKI: Rakel Anna Guðnadóttir
BÖRN: Baldur Bragi, Jóhannes, Dagur
Orri og Saga.
Patrekur Jóhannesson tók við Íslandsmeist-
aratitli karla í handbolta í vikunni en hann
hefur þjálfað lið Hauka undanfarið tímabil.
Patrekur hefur verið á meðal okkar fremstu
handknattleiksmanna í fjölda ára, og spil-
aði lengi vel með íslenska landsliðinu.
Hefur Patrekur fengið sinn skerf af atvinnu-
mennskunni erlendis og þjálfað austurríska
landsliðið í handbolta. Mun hann halda
utan í haust og taka enn frekari þátt í þjálf-
un austurríska landsliðsins.
Hann er afar
traustur, ákveðinn
og tekst langoft-
ast að gera það
sem hann ætlar
sér. Hann er mikill
húmoristi og trúr
sínu og sjálfum sér.
Rakel Anna Guðnadóttir eiginkona
Að sumu leyti er
Patti stórt, mjög
stórt barn. Hann
getur verið algjör-
lega tveir ólíkir
menn. Innan vallar
er hann hörkutól,
keppnismaður og
metnaðarfullur. En utan vallar veit
hann fátt betra en að slaka bara á
með börnunum sínum, grínast og
hafa það huggulegt.
Guðni Jóhannesson bróðir
Hann er svona
stór bangsi með
risastórt hjarta.
Mikill fjölskyldu-
maður og dug-
legur við að halda
góðum tengslum
við vini sína. Hann
er metnaðarfullur með eindæmum
og gaman að hafa fylgst með honum
þroskast í gegnum lífið.
Einar Einarsson vinur
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Allt sem þú þarft ...
Höfuðborgarsvæðið, meðallestur á
tölublað 18–49 ára. Prentmiðlakönnun
Gallup, jan.– mar. 2015
YFIRBURÐIR
Fréttablaðsins staðfestir
53,7%
19,6%
FB
L
M
BL