Fréttablaðið - 17.02.2016, Blaðsíða 23
Kynningarblað
�
natures aid
®
Sigrun Emma Bjornsd6ttir,
ij>r6ttakona og einkapjalfari.
Sykurlongunin hvarf og
mittismalid minnkadi!
,,Raspberry Ketones fra
Natures Aid hefur gert
frabcera hluti fyrir mig
og eg mceli 100% med peim.,,
Utsolustadir: flest ap6tek, heilsubudir og heilsuhillur st6rmarkada og verslana
Raspberry
Ketones ADVANCE+
400mg
with Green Tea
Karen Hauksd6ttir starfar vid
gardyrkju a hofudborgarsv.edinu.
Losnadi vid sykurporfina
og 17 kfl6 farin!
,,Mittismalid minnkadi og eg er
orkumeiri. Einnig finnst mer eg
ekki purfa borda eins mikid og
adur og sleppi scelgceti algjorlega."
www.gengurvel.is
Ört vaxandi grein
Charlotte Bøving blandar saman
leiklist og markþjálfun og segir frá
aðferðinni á Markþjálfunardeginum
í dag. Síða 2
„Þegar mamma opnaði sig fyrir
mér fyrir um áratug, um þetta
stærsta tráma í hennar lífi fór þessi
bók í rauninni af stað. En hún lá í
dvala, þar til hún varð tímabær,“
segir Þóra Karítas Árnadóttir um
bók sína Mörk – saga mömmu, sem
kom út síðastliðið vor. Bókin fjallar
um æsku móður Þóru og ofbeldi
sem hún var beitt innan fjölskyld
unnar. Bókin var tilnefnd til Fjöru
verðlaunanna í ár og í kvöld ætlar
Þóra að segja frá ferlinu á bak við
bókina í Hannesar holti.
Aðspurð hvort hugrekki hafi
þurft til að segja þessa viðkvæmu
sögu segir hún að það hafi einfald
lega verið tímabært. „Kannski var
það líka af nauðsyn. Ég fór á fyrir
lestur rithöfundarins Amy Tan sem
skrifaði The Joy Luck Club, þar
sem hún talaði um þörfina fyrir
að skrifa og pressuna sem verður
inni í okkur, fólk verði hreinlega að
skrifa, annars springur það. Ég gat
tengt við það,“ segir Þóra.
Krefjandi ferli
Fyrirlesturinn ber heitið Blundar
í þér bók? og er öllum opinn, hvort
sem fólk hefur hug á að skrifa
sjálft eða einfaldlega kynnast sög
unni á bak við bókina.
„Mér finnst sjálfri bæði gaman
og gagnlegt að hlusta á höfunda
tala um verk sín þegar ég sjálf er
að skrifa og þess vegna köllum við
þetta „Blundar í þér bók?“. Skrif
ferli höfunda fer ekki fram á einn
máta og hver og einn þarf að finna
sína leið, hvernig sem hún lítur út.
Ég fór hálfgerða Krísuvíkurleið
að því að finna út hvernig ég ætl
aði að setja söguna fram að lokum.
Það er gaman að geta sagt frá
þessu ferðalagi,“ segir Þóra.
„Þetta er heimildarsaga og
ég grúskaði í ýmsu til að kom
ast nær Reykjavík eins og hún
var fyrir 1952. Eins er þetta fjöl
skyldusaga og hef ég talað við fjöl
skyldumeðlimi um hvernig allt leit
út inni í húsinu þar sem þessir at
burðir gerðust. Frá því ég byrjaði
að skrifa fyrsta stafinn og þar til
bókin kom út liðu tvö ár. Eitt er að
ná efninu út úr sjálfum sér og svo
annað að fara yfir og ritstýra því
þar til maður er sáttur við verkið.
Það kom mér á óvart hvað þetta eru
mörg lög og mismunandi tímabil.“
Verður til Önnur BóK?
„Ég held að það sé sniðugt að leyfa
undirmeðvitundinni og tímanum
að vinna með sér, svo maður sjái
hvað það er sem hættir ekki að
ásækja mann. Maður sest ekki
niður einn daginn og skrifar
bara um „eitthvað“. Efnið þarf að
ásækja mann og brenna á manni.
Skrifin taka yfir líf manns þann
tíma sem maður er að sinna þessu.
Þorvaldur Þorsteins sagði ein
hvern tíma „taktu eftir því sem
þú tekur eftir“.“
Mátaði SKáldanÖfn
Þóra segist alltaf hafa ætlað sér að
verða rithöfundur. Leiklistarnám
ið hafi verið hluti af því að þroska
sköpunargáfuna.
„Það er engin ein leið rétt til að
vera skapandi, maður gerir bara
það sem maður þarf til að opna sig.
Ég samdi ljóð þegar ég var krakki
í Skógum undir Eyjafjöllum. Þá
gældi ég við skáldanafnið Þóra
í Skógum, eða Þóra í Vinjum, en
húsið okkar hét Vinjar,“ segir Þóra
sposk. „En ég skrifaði alltaf fyrir
skúffuna. Þegar tölvan mín krass
aði einn daginn áttaði ég mig á að
þarna höfðu glatast hundruð síðna
af skapandi skrifum af því ég
hafði ekki leyft mér að taka skrif
in alvarlega. Ég varð að taka þetta
skref. Ég dreif mig því í nám í rit
list í Háskólanum því það blundaði
sannarlega í mér bók.“
Fyrirlestur Þóru hefst klukkan
20 í Hannesarholti í kvöld.
heida@365.is
efnið þarf að Brenna á Manni
Leikkonan Þóra Karítas Árnadóttir segir frá tilurð fyrstu bókar sinnar: Mörk – saga mömmu, í Hannesarholti í kvöld.
Bókin kom út í apríl 2015 og var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2016. Fyrirlesturinn ber heitið Blundar í þér bók?
Þóra Karítas Árnadóttir leikkona segir frá tilurð sinnar fyrstu bókar, Mörk – saga mömmu í Hannesarholti í kvöld. Mynd/ernir