Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.02.2016, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 17.02.2016, Qupperneq 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is „Þetta var algjör sprengja, það er alltaf að bætast við hjá mér og þegar ég tékkaði á þessu í gærkvöldi voru um sextán þúsund manns að fylgjast með,“ segir Manuela Ósk Harðardótt- ir, fatahönnunarnemi og samfélags- miðlagúrú, sem á mánudagskvöldið skemmti sér með stórstjörnum í Play boy-höll Hughs Hefner. Um var að ræða veisluhöld í tengslum við Grammy-verðlaunahá- tíðina sem fram fór í Los Angeles, og varð vart þverfótað fyrir nafntoguð- um einstaklingum í umræddu partíi, líkt og fylgjendur Manuelu urðu varir við. „Þarna voru ótrúlega margir, frægt fólk út um allt. Alls staðar and- lit sem þú þekktir. Þetta var styrktar- viðburður sem Richard Branson stóð fyrir og rapparinn P.Daddy var kynn- ir. Persónulega fannst mér toppurinn að sjá hann. Svo var ákveðin upplifun að sjá þetta Playboy-lið,“ segir hún og skellir upp úr. „Maður er ekki mikið í að láta smella af sér mynd með öðrum gestum, það er hálf púkó að biðja um random mynd. Ég stóðst reyndar ekki mátið og fékk mynd af mér með Nick Lachey, sem var giftur Jessicu Simpson og ég var með þau á heil- anum á sínum tíma. Ég spjallaði aðeins við hann og fékk svo mynd. En stemningin er þannig að þarna eigi þekkt fólk að geta verið í friði, og það á ekki að vera neitt stórmál. Við Ragga þurftum að hemja okkur, þetta var algjör stjörnuveisla. Ótrú- lega flott, og ef maður hefur fylgst með Playboy Mansion þáttunum, þá er þetta svolítið spes upp- lifun.“ Eins og Manuela kemur inn á, var hún í slagtogi við vinkonu sína, s u n d d r o t t n - inguna Ragn- heiði Ragnars- d ó t t u r , s e m búsett er í Los Angeles og nemur þar leiklist. „Ragga er náttúrulega 190 sentimetrar á hæð, stórglæsileg og hún ber af hvar sem hún kemur. Svo þegar hún labbar einhvers staðar inn taka allir eftir henni. Fólk er mjög áhugasamt um Ísland og spyr mikið út í landið, það er ágætis „icebraker“. Iðulega segist fólk langa mikið að koma til Íslands. Miðað við þetta myndi ég segja að það væri einhver vakning meðal Bandaríkjamanna að heim- sækja klakann.“ Sjálf fékk Manuela töluverða athygli vegna samfestings sem hún klæddist. „ Ég er það hávax- in, að erfitt getur verið að fá samfest- ing sem hentar mér. Þegar ég fann þennan, í verslun sem ég hef aðeins verið að vinna með, Clothes&Comp- any, þá kom ekkert annað til greina. Hann smellpassaði við dresscode-ið í Playboy-höllinni, brjóstaskoran var alveg að gera sig. Ég hugsa að ég hefði ekki farið svona annað en í Playboy-höllina,“ skýtur hún kímin að. Aðspurð hvort hún hafi brugðið sér gagn- gert af bæ og alla leið til Los Angeles til að vera viðstödd veislu- höldin, segir hún svo ekki vera. „Ég er í vetrarfríi í skólanum, svo ég ákvað að skella mér og slá einhverjar þúsund flugur í einu höggi,“ segir hún og hlær. „Ég er fyrst og fremst að kaupa inn efni fyrir lokasýninguna mína í fatahönn- unarnáminu sem verður í lok apríl, og svo er ég að styrkja tengslanetið mitt hér, þar sem ég er alltaf að leggja línurnar fyrir það sem mig langar að gera. Ég veit hvað mig langar að gera en ætla mér að tala minna og gera meira,“ segir Manuela dulræð á svip og algjörlega án þess að ætla sér að gefa frekari upplýsingar í þetta skiptið. gudrun@frettabladid.is Sextán þúsund manns fylgdust með Manuela Ósk Harðardóttir brá sér vestur um haf og skemmti sér með stórstjörnunum í sérlegu partíi sem Richard Branson stóð fyrir í tengslum við Grammy-verðlaunahátíðina sem fram fór í Los Ang eles á mánudagskvöld. „Spes upplifun,“ segir samfélagsmiðlastjarnan. Manuela stóðst ekki mátið og lét smella einni mynd af sér með Nick Lachey úr strákabandinu 98 Degrees. Íslensku glæsikvendin Manuela og Ragnheiður Ragnarsdóttir skemmtu sér stórvel í Playboy-höllinni. 1 7 . f e b r ú a r 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r30 L í f I Ð ∙ f r É T T a b L a Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.