Fréttablaðið - 17.02.2016, Blaðsíða 16
Bestur í þriðja sinn
Martin Hermannsson, lands-
liðsmaður í körfubolta, var í gær
útnefndur leikmaður vikunnar
í neC-deildinni í bandarísku
háskólakörfunni. þetta er í þriðja
sinn á tímabilinu sem bak-
vörðurinn hlýtur þessa nafnbót.
Martin fór hamförum í síðustu
viku í tveimur sigurleikjum. Fyrst
vann Liu 82-69 sigur á Wagner-
háskólanum og hafði svo betur á
móti st. Francis í íslendingaslag,
92-67. Martin skoraði 17 stig, tók
11 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og
stal einum bolta á móti
Wagner, en gerði svo
enn betur á móti st.
Francis og skoraði 19
stig, tók 7 fráköst, gaf 5
stoðsendingar og stal
boltanum 5 sinnum.
íslenski landsliðs-
maðurinn var því
með 18 stig, 9
fráköst, 5
stoðsend-
ingar og 3
stolna bolta
að meðal-
tali í þessum
tveimur
leikjum,
en að auki
nýtti hann
öll tólf víta-
skotin sín.
Í dag
19.15 Stjarnan - Haukar Sport
17.25 Sporting - Barcelona Sport
19.30 Roma - Real Madrid Sport
19.30 Gent - Wolfsburg Sport3
21.45 Meistaramörkin Sport
Di Maria er stoðsendinga-
hæstur í CL síðustu 4 tímabil
þótt hann spilaði bara 3
þeirra. Ég sé ekkert eftir
honum... #djöflarnir
Halldór M.
@halldorm
Hjörtur Lánaður
Varnarmaðurinn og u21 árs
landsliðsmaðurinn Hjörtur Her-
mannsson hefur verið lánaður
frá hollenska félaginu PsV til iFK
Gautaborgar í svíþjóð. Hjörtur er
21 árs miðvörður og hefur verið
á mála hjá PsV síðan 2012. Hann
gerði nýjan þriggja ára samning
við félagið í vor þrátt fyrir að hann
hafi átt við erfið meiðsli að stríða.
Hjörtur hefur svo í vetur náð að
spila nokkuð reglulega með u-21
liði PsV. Hann var til reynslu hjá
iFK Gautaborg fyrr í mánuðinum
og stóð sig vel. Hjörtur á fjölda
leikja að baki með yngri lands-
liðum íslands og spilaði sinn fyrsta
a-landsleik þegar hann kom inn á
sem varamaður gegn Bna.
Körfubolti á laugardaginn mætir
ísland liði Portúgals í undankeppni
eM 2017 en leikurinn fer fram ytra.
Liðið, undir stjórn ívars ásgríms-
sonar, hefur tapað fyrstu tveimur
leikjum sínum í keppninni en
stefnir óhikað að því að sækja til
sigurs um helgina.
„Portúgal er það lið í riðlinum
sem við töldum fyrirfram að við
ættum hvað mesta möguleika á að
vinna,“ segir ívar en þar að auki eru
ungverjaland og slóvakía í riðlinum
– bæði ógnarsterk lið sem hafa verið
í fremstu röð í evrópu um árabil.
„það hentar okkur ágætlega að
spila gegn Portúgal. þær sækja
mikið inn í teiginn og spila sterka
vörn. Portúgal á tvo mjög sterka
leikmenn sem eru aðallega í kring-
um teiginn og við þurfum að hafa
góðar gætur á þeim,“ segir hann
enn fremur.
ívar vonast til þess að liðið haldi
áfram að bæta sig og hann óskar
eftir stærra sóknarframlagi frá
sínum leikmönnum. „Við þurfum
að halda áfram að spila þann varn-
arleik sem við höfum verið að gera
og bæta okkur í sókninni. það þurfa
fleiri að skora og ég hef fulla trú á að
það lið sem við erum að fara með út
geti gert góða hluti í þessum leik.“
Portúgal tapaði fyrir ungverja-
landi og slóvakíu í fyrstu tveimur
leikjum sínum í keppninni, rétt
eins og ísland, og eru bæði lið því
með tvö stig í F-riðli undankeppni
eM 2017.
eirikur@frettabladid.is
Ætlum að ná í sigur í Portúgal
Kvennalandsliðið í körfubolta undirbýr sig af kappi fyrir næsta leik sinn í undankeppni EM 2017. Landsliðs-
þjálfarinn Ívar Ásgrímsson vill fá betra sóknarframlag frá sínum leikmönnum en hingað til í keppninni.
Berglind Gunnarsdóttir með boltann og reynir að halda honum frá systur sinni, Gunnhildi Gunnarsdóttur, á landsliðsæfingu í gær. FRéttaBlaðið/anton BRink
16 liða úrslit Meistaradeildarinnar
PSG - Chelsea 2-1
1-0 Zlatan Ibrahimovic (39.), 1-1 Jon Obi
Mikel (45.), 2-1 Edison Cavani (78.).
Parísarliðið fer með eins marks for-
skot til Lundúna þar sem það gerði
2-2 jafntefli í fyrra og komst í átta
liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Benfica - Zenit 1-0
1-0 Jonas (90.+1).
Brasilíumaðurinn jonas tryggði
Benfica sigur í uppbótartíma þegar
allt stefndi í markalaust jafntefli.
Zenit var ekki búið að spila mótsleik
í tíu vikur fyrir gærkvöldið þar sem
vetrarfrí er í rússnesku úrvals-
deildinni.
Nýjast
- með þér alla leið -
569 7000 Lágmúla 4 www.miklaborg.is
Nánari upplýsingar veitir
Jón Rafn Valdimarsson
löggiltur fasteignasali
sími: 695 5520
jon@miklaborg.is
Ásgarðsland
Alls er um að ræða rúmlega 200 hektara lands þar sem liggur fyrir samþykkt
deiliskipulag 85 sumarhúsalóða á 76 hekturum er mælast frá 0,5 til 2 hektara
að stærð. M.a. er um að ræða lóðir er liggja meðfram Soginu og aðrar sem eru
ofar með frábæru útsýni. 30 hektarar lands er skógræktarsvæði.
Blómleg sumarhúsabyggð er nú þegar á svæðinu og stutt í þjónustu, náttúru-
gersemar og innan við klukkustundar akstur frá höfuðborgarsvæðinu.
Ásgarðslandið er staðsett við Sogið í Grímsnesi við rætur Búrfells. Sé komið frá
Suðurlandsvegi er ekið upp Biskupstungnaveg, og ekið Þingvallaveg skömmu
eftir Þrastarlund. Ásgarðslandið liggur beggja megin við Búrfellsveg.
Einstök staðsetning umvafið vinsælasta sumarhúsabyggð landsins þar sem er
stutt í frábæra golfvelli Kiðjabergs, Öndverðarness og Selfoss.
Landið er selt í heild sinni og kjörin fjárfesting fyrir aðila tengda ferðaþjónustu
eða sölu sumarhúsalóða. Miklir möguleikar fyrir hendi hvort sem um er að ræða
frekari uppbyggingu og fjölgun sumarhúsalóða eða uppbyggingu hótels eða
gistiaðstöðu fyrir aukandi ferðamannastraum komandi ára.
Skipti koma til greina
Til sölu er eitt eftirsóknaverðasta sumarhúsasvæði landsins í Ásgarðslandi, Grímsnesi
1 7 . f e b r ú a r 2 0 1 6 M i Ð V i K u D a G u r16 s p o r t ∙ f r É t t a b l a Ð i Ð
sport