Fréttablaðið - 17.02.2016, Blaðsíða 2
Á morgun er útlit fyrir áframhaldandi
suðvestanátt og éljagang, en bjartviðri
um norðaustanvert landið. Élin geta
verið töluvert dimm, en á milli þeirra
glaðasólskin. Hiti er yfirleitt um og undir
frostmarki. Síðdegis snýst í norðaustanátt
á Vestfjörðum með snjókomu, og
norðanáttin dreifir svo úr sér til austurs.
Sjá Síðu 20
Veður
Menntun Framkvæmdastjóri
Hjallastefnunnar hefur ritað bæjar-
ráði Garðabæjar bréf þar sem óskað
er eftir breytingum á samningi hvað
varðar fjárframlög til reksturs grunn-
skóla Hjallastefnunnar í bænum.
„Í ljósi þeirrar þróunar sem orðið
hefur á síðustu misserum hvað
varðar starfsmat og kjarasamninga
er ljóst að rekstrarskilyrði grunn-
skólanna eru afar erfið og þung,“
segir í bréfinu. Þar stendur enn-
fremur að núgildandi samkomulag
byggist á rekstrarkostnaði grunn-
skóla í Garðabæ sem eru fjölmennir
og hagkvæmir í rekstri.
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Hjallastefnunnar,
segir gamla samninginn hafa verið
hagstæðan á sínum tíma en aðstæð-
ur hafi breyst. Hjallastefnan er að
fara fram á að fjármögnun skólans
verði með sambærilegum hætti og
í öðrum sveitafélögum eða að fylgt
verði eftir svokölluðu Hagstofu-
viðmiði. Viðmiðið gerir ráð fyrir
að einkareknir grunnskólar fái að
lágmarki 75 prósent af meðalfram-
færslu grunnskóla.
„Í Garðabæ þróaðist það með
þeim hætti að ekki var samið um
Hagstofuviðmiðið heldur er greitt
samkvæmt meðalkostnaði á nem-
anda í grunnskóla í Garðabæ,“
segir Ingibjörg. „Þá kom það bara
vel út fyrir Hjallastefnuna en síðan
það gerðist hefur meðalkostnaður
grunnskólanna í Garðabæ lækkað
á meðan Hagstofuviðmiðið hefur
hækkað.“
Þá bendir hún á að í samningnum
við Garðabæ er Hjallastefnunni ekki
heimilt að rukka skólagjöld en það
er til dæmis heimilt í Hafnarfirði og
Reykjavík.
Þá kemur fram í bréfinu ósk um
að Garðabær niðurgreiði einn-
ig kostnað vegna frístundastarfs,
frístundaakstur og akstur vegna
íþróttaiðkunar nemenda. Þá óskar
Hjallastefnan eftir því að liðir sem
snúa að rekstrarkostnaði fasteigna,
viðhaldi og kaupum á búnaði verði
sérstaklega skoðaðir.
Foreldrar barna í grunnskóla
Hjallastefnunnar í Garðabæ hafa
sent bæjaryfirvöldum áskorun þess
efnis að bærinn styðji Hjallastefn-
una í að byggja sitt grunnskólastarf
í bænum.
Bæjarráð fjallaði um málið í gær
og hefur vísað því til skólanefndar.
stefanrafn@frettabladid.is
Hjallastefnan óskar
eftir meira fjármagni
Vilja endurskoða samning um fjármögnun grunnskóla Hjallastefnunnar með
þeim hætti að skólinn fái svipað fjármagn og í öðrum sveitarfélögum. Foreldrar
barna við skólann hafa sent bæjaryfirvöldum sambærilega áskorun.
egyptaland Boutros Boutros-Ghali,
fyrrverandi aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, lést í gær á sjúkrahúsi í
Kaíró 93 ára gamall.
Frá þessu var greint á fundi
öryggis ráðs Sameinuðu þjóðanna
í gær og héldu fundarmenn einnar
mínútu þögn til minningar um
Boutros-Ghali. Boutros-Ghali þjón-
aði sem aðalritari frá árinu 1992 til
1996. Hann er eini aðalritarinn til
að þjóna eitt kjörtímabil en Banda-
ríkin settu sig upp á móti endur-
tilnefningu hans árið 1996. Kofi
Annan tók við embættinu í kjöl-
farið. – srs
Boutros-Ghali
fallinn frá
Hvað er Hagstofuvið-
mið?
Samkvæmt reglugerð mennta-
málaráðuneytisins um opinbera
fjármögnun einkaskóla er kveðið
á um að sveitarfélögum sé heimilt
að greiða 75 prósent af svokölluð-
um Hagstofuviðmiðum. Viðmiðið
er reiknað meðaltal af heildar-
rekstrarkostnaði allra grunnskóla
sem reknir eru af sveitafélögum í
landinu.
KjaraMál Félagsmenn verkalýðs-
félagsins Hlífar sem starfa hjá Rio
Tinto Alcan hafa samþykkt ótíma-
bundna og takmarkaða vinnustöðv-
un sem hefst á miðnætti 24. febrúar.
Vinnustöðvunin nær til þeirra
starfsmanna sem tilheyra flutn-
ingasveit fyrirtækisins og starfa á
hafnar- og vinnusvæði álversins í
Straumsvík. Þetta þýðir að engu áli
verður skipað um borð í skip við
Straumsvíkurhöfn.
Kolbeinn Gunnarsson, formaður
verkalýðsfélagsins Hlífar, segir
aðgerðirnar lið í því að knýja fram
kjarabætur fyrir starfsmenn álvers-
ins. félagi og aðrir. – srs, skh
Stöðva skipun á
áli í Straumsvík
StjórnSýSla Utanríkisráðuneytið
hefur tekið ákvörðun um uppstokk-
un á sjö sendiherraembættum. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
komast þeir sendiherrar sem hing-
að til hafa verið í bið hér á Íslandi
út í embætti. „Það er búið að taka
ákvarðanir um þetta en það á eftir að
tilkynna um það til viðeigandi yfir-
valda, fá samþykki og annað,“ segir
Urður Gunnarsdóttir, fjölmiðla-
fulltrúi utanríkisráðuneytisins.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins verða breytingar meðal
annars í Austurríki, Frakklandi og
Rússlandi.
Fréttablaðið greindi frá því í
janúar að nærri helmingur starfandi
sendiherra hefði aðsetur á Íslandi.
Um áramótin voru fjórir nýir sendi-
herrar skipaðir sem allir hafa aðsetur
í utanríkisráðuneytinu. Ekki liggur
fyrir hvort einhver þeirra verður
sendur út til að starfa sem sendi-
herra erlendis. – snæ
Stokka upp í sjö
sendiráðum
Framkvæmdir við Landspítala
Grafið fyrir lögnum og undirgöngum Þessa dagana eru framkvæmdir við nýtt sjúkrahótel alveg upp við byggingar Landspítalans. Það þýðir að
inngangar á Kvennadeildina og K-bygginguna eru lokaðir og sjúklingar þurfa að fara krókaleiðir til að komast leiðar sinnar. Einnig er mikill hávaði
sem fylgir framkvæmdunum en á næstu dögum munu þær færast fjær byggingunum og meiri ró komast á svæðið. Fréttablaðið/Pjetur
Í Garðabæ þróaðist
það með þeim hætti
að ekki var samið um
Hagstofuviðmiðið heldur er
greitt samkvæmt meðal-
kostnaði á
nemanda í
grunnskóla í
Garðabæ.
Ingibjörg Ösp
Stefánsdóttir
Garðabær greiðir Hjallastefnunni í samræmi við meðalkostnað á bak við nem-
endur í grunnskólum bæjarins. Fréttablaðið/VilHelm
boutros boutros-Ghali sat sem aðal-
ritari í fjögur ár. NordicPHotos/aFP
1 7 . f e b r ú a r 2 0 1 6 M I ð V I K u d a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a ð I ð