Fréttablaðið - 17.02.2016, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 17.02.2016, Blaðsíða 44
Fyrir mér er það að þeyta skíFum að vita hvers áhorFendur þarFnast og það er breyti- legt. það er ekki hægt að giska á hvernig stemningin verður. Reykjavík Bíldshöfði 20 Akureyri Dalsbraut 1 Ísafjörður Skeiði 1 www.husgagnahollin.is I 558 1100 STÓLADAGAR PARIS Borðstofu- stólarnir komnir aftur. Margir litir 9.990 kr. 14.990 kr. EIFFEL Borðstofustóll. Litir: Svartur, grár og hvítur með svörtum löppum. 8.990 kr. 11.990 kr. Allir* borðstofu - og eldhússtólar á tilboði EIFFEL Borðstofustóll. Litir: Grár svartur, rauður, turkis og hvítur með krómlöppum. 9.990 kr. 13.990 kr. SEATTLE Borðstofustóll. Litir: Svartur, grár og hvítur með krómlöppum. 5.990 kr. 8.990 kr. TIANA Borðstofustóll. Svartur. 7.990 kr. 13.990 kr. Gildir ekki af Skovby borðstofustólum Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is „Ég er ótrúlega spennt. Mig hefur alltaf langað til þess að koma til Íslands, það er einn af þeim stöðum sem eru ólíkir öllum öðrum og það gerir þetta öðru- vísi spennandi. Elstu vinkonur mínar frá Kentucky, þaðan sem ég er, komu mér á óvart og keyptu miða og ætla að koma með mér. Við komum nokkrum dögum fyrr til þess að fara í Bláa lónið og skoða okkur um. Við höfum aldrei gert neitt svona saman áður þannig það gerir sérstakan hlut enn þá sér- stakari,“ segir Marea Stamper sem þeytir skífum undir nafninu The Black Madonna og er þekkt fyrir kraftmikil dj-set en hún er ein þeirra fjölmörgu listamanna sem koma munu fram á tónlistarhátíðinni Sónar Reykjavík sem hefst á morgun. Konur í tónlist Auk þess að spila á hátíðinni tekur hún þátt í pallborðsumræðum á Sónar +D um konur í tónlist sem eru hluti af nýsköpunar- og tækniráð- stefnu hátíðarinnar sem fer nú fram í fyrsta sinn hér á landi samhliða tón- listarhátíðinni en auk hennar verða þær Ellen Allien, dj Yamaho, Courtesy og Salka Sól þátttakendur. Þegar talið berst að stöðu kvenna í danstónlist er auðheyrt að umræðuefnið er henni er hugleikið og segir hún stöðuna hafa breyst til hins betra á síðustu árum. Og þegar hún er spurð að því hvað það sé sem henni þyki hafa breyst á undanförnum árum stendur ekki á svörunum. „Í fyrsta lagi þá erum við að sjá fleiri konur, þeim er að fjölga. Margar tónlistarhátíðir eru að leggja áherslu á að fá fleiri konur til þess að spila í stað þess að láta eins og það sé einhver endurspeglun á hæfileikum hvað kynjahlutföllin hafa verið skökk. Ég held að það hafi á ákveðnum tíma- punkti verið ráðandi hugmynd hjá klúbbaeigendum og skipuleggjendum tónlistarhátíða að hið besta hafi flotið á toppinn og að það væru einfaldlega ekki það margar konur sem skipuðu sér í hóp hinna bestu.“ Borgar sig að taka áhættu Marea hóf ferilinn í framhaldsskólaút- varpi og tók fljótlega að spila á rave- um og í kjölfarið fór hún að búa til eigin tónlist. Fyrst um sinn vann hún ein en fann sér svo samstarfsfélaga sem hún segir hafa kennt sér mikið. Nýverið tók hún upp þráðinn með gömlum samstarfsfélaga og er byrjuð að vinna með honum að nýju efni og prufa sig áfram með nýja tækni sem hún segir vera ögrandi, spennandi og nauðsynlegt. „Endrum og eins verður maður að hrista upp í hlutunum, það gerir mann dauðhræddan en svo skyndilega smellur eitthvað og núna gengur mjög vel.“ Hún segir mikilvægt að takast á við hluti sem hræða mann hvað mest því ávinningurinn af þeim sé yfirleitt mestur. „Það á við það að gera tónlist en líka bara lífið yfirhöfuð. Oft á tíðum voru það þeir hlutir, sem ég var hvað mest hikandi við að gera, sem urðu að því besta sem ég gerði. Ég vildi ekki hætta í vinnunni minni til þess að fara í tónleikaferð, ég var hrædd um að ég myndi bara svelta í hel en það varð að lokum að því besta sem ég gerði því eftir það fóru hlutirnir á flug. Það var áhætta og ég var hrædd en ég gerði það“. Fylgst með líkamstjáningu Líkt og áður sagði er The Black Mad- onna þekkt fyrir kraftmikil sett og segir hún mikilvægt að lesa áhorfendur og skipuleggja settið eftir því, það skipti mestu máli og það sé góð tilfinning að sjá manneskjuna sem fyrir stundu var með nefið grafið í snjallsímanum byrj- aða að sveifla sér í takt við tónlistina. „Fyrir mér er það að þeyta skífum að vita hvers áhorfendur þarfnast og það er breytilegt. Það er ekki hægt að giska á hvernig stemningin verður. Maður þarf að fylgjast með litlum merkjum og lesa í líkamstjáningu fólks. Einhver sem stendur á gólfinu að skoða símann sinn á stað þar sem maður býst við að sé dansað. Lítur fólk út fyrir að vera þreytt, fullt af orku, þurfum við að keyra þetta í gang eða keyra stemning- una aðeins niður? Þetta eru hlutir sem er ekki hægt að plana og velta á ýmsum breytum,“ segir Marea og þegar hún er spurð að því hvort hún sé þá ekki góð í því að lesa líkamstjáningu fólks svarar hún því játandi. „Ég er góð í því og mér líður vel með það. Að finna út hvernig þú kemst inn í höfuð fólks og nærð að snúa því þannig að áhorfendur taka þátt, umbreytast og við deilum þeirri tilfinningu saman. Það er dásamlegt.“ The Black Madonna spilar annað kvöld klukkan 22.00 í SonarLab og pallborðsumræðurnar fara fram á morgun klukkan 17.00 í Flóa. gydaloa@frettabladid.is ræðir um konur í tónlist og les í líkamstjáningu The Black Madonna er ein af þeim sem koma fram á tónlistarhátíðinni Sónar Reykjavík sem hefst á morgun. Auk þess að koma fram á há- tíðinni tekur hún einnig þátt í pallborðsumræðum um konur í tónlist. The Black Madonna er þekkt fyrir að halda uppi kraftmikilli stemningu. Mynd/AldoPAredes 1 7 . f e b r ú a r 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r28 L í f I Ð ∙ f r É T T a b L a Ð I Ð Lífið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.