Fréttablaðið - 17.02.2016, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 17.02.2016, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —4 0 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 1 7 . f e b r ú a r 2 0 1 6 Fréttablaðið í dag MarKaðurinn Aðstandendur The Social Progress Impera- tive stofnunarinnar leggja áherslu á gæði samfélaga og innviði þeirra í stað hagvaxtar. sKoðun Árni Páll Árnason skrifar um banka og Borgun. 14-15 sport Stelpurnar ætla sér sigur á móti Portúgal. 16 Menning Steingrímur Eyfjörð opnar sýningu á morgun í Gallery Gamma. 22 lÍfið Sextán þúsund manns fylgdust með Manuelu í LA. 28-30 plús 2 sérblöð l fólK l  lÍfið *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Finndu okkur á KONUDAGS - BLÖÐRUR Í MIKLU ÚRVALI Vísundur 17. febrúar – 1. mars Ævintýraheimur skynfæranna ViðsKipti Fimm örbrugghús fram- leiða bjór sem seldur er í Vínbúðun- um. Þá er ótalin framleiðsla Vífilfells og Ölgerðarinnar. Fjöldi minni örbrugghúsa brugg- ar fyrir einstaka veitingastaði og smærri hópa. Stefán Pálsson, sagn- fræðingur og bjóráhugamaður, segir brugghúsum fara fjölgandi og heimabruggun sé vinsæl. „Það er greinilegt að við erum dálítið að fara að sjá það að það er bylgja í uppsiglingu,“ segir Stefán. Heimabruggun sé vinsæl og svo sé hópur fólks sem vilji taka hana skrefinu lengra. „Þarna erum við að tala um minni brugghús og mörkin á milli hobbís og þeirra sem eru í atvinnustarf- semi eru orðin svolítið óskýrari,“ segir hann. – jhh / sjá Markaðinn Brugghúsum fer ört fjölgandi ViðsKipti Stjórnendur Borgunar seldu hlut í Borgun á 57 prósent hærra verði í júlí 2015 en Landsbankinn seldi þeim á í nóvember 2014. Eignarhaldsfélagið Borgun ehf. keypti 3,85 prósenta hlut í Borgun af starfsmönnum Borgunar og félaginu BPS ehf., sem er í eigu 12 æðstu stjórn- enda kortafyrirtækisins, þann 21. júlí 2015, á verði sem miðaði við að heild- arvirði Borgunar væri 11 milljarðar króna. Þetta segir Magnús Magnússon, forsvarsmaður Eignarhaldsfélagsins Borgunar. Söluverð Landsbankans á 25 prósenta hlut í Borgun til Eignarhalds- félagsins Borgunar og 6,2 prósenta hlut til BPS átta mánuðum áður miðaði við að Borgun væri metin á sjö milljarða króna. Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, segir engu síður að kaupverðið staðfesti að forsvarsmenn Borgunar hafi ekki vitað að Visa Inc. hygðist nýta sér val- rétt á að eignast Visa Europe. „Þetta er það vitlausasta sem við höfum gert, að selja þarna, þetta var hörmung að gera það, eftir á að hyggja,“ segir Haukur. Rúmum tveimur mánuðum eftir að salan á hlut starfsmanna og stjórnenda gekk í gegn, tilkynnti Visa Inc. að það hygðist nýta sér valrétt til að kaupa Visa Europe á um 3.000 milljarða íslenskra króna. Borgun á von á tæp- lega 5 milljarða peningagreiðslu vegna þessa. – ih / sjá síðu 10 Seldu hlutinn á 57 prósent hærra verði „Það vitlausasta sem við höfum gert,” segir Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar og að eftir á að hyggja hefði ekki átt að selja hlutinn. Hann segir kaupverðið engu síður staðfesta að bankinn hafi ekki vitað að von væri á milljarðagreiðslum vegna Visa-samnings. Steingrímur Eyfjörð opnar sýn- ingu á morgun í Gallery Gamma. „Um leið og það kom breyttist starfið. Það er bara komið alvöru hús,“ segir Jón Karl Ólafsson, formaður Ungmennafélagsins Fjölnis, um nýtt fimleikahús sem vígt var síðastliðið haust. Hann segir biðlistana hafa verið með tvö til þrjú hundruð börnum og nú séu þeir farnir að myndast aftur enda mikil eftirspurn eftir þjónustunni. Fréttablaðið/Pjetur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.