Fréttablaðið - 17.02.2016, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Maríu Elísabetar
Bragadóttur
Bakþankar
Sannsögulegar kvikmyndir höfða til mín. Fyllist lotningu við að horfa á Mark Zucker-
berg strunsa um skólalóð Harvard
í óða önn að spora út blauta steypu
mannkynssögunnar. Stuðandi að
sjá Jordan Belfort vaða uppi með
sitt snarbilaða gildismat og fleygja
sér fram af siðferðilegum hengi-
flugum. Verð angurvær að fylgjast
með Stephen Hawking glíma við
ráðgátur tímans. Vöknar um augu
þegar þrællinn Solomon Northup
heyr lífsbaráttu sína á hvíta
tjaldinu.
Það er þó niðurdrepandi hve
lítið er um bitastæð kvenhlutverk
í sannsögulegu ræmunum. En
málið er að þær eru sannsögulegar.
Þar stendur hnífurinn í kúnni.
Mark Zuckerberg var og er karl og
Stephen Hawking líka. Samt urðu
konur á vegi Mark Zuckerbergs og
sömuleiðis Hawkings. Enda hafa
konur jú löngum verið til, lifað og
dáið, dregið andann, hugsað og
pælt. Svo sannarlega gerðu þær það
árið 2004 þegar Zuckerberg stakk
Facebook í samband.
Það sem truflar mig er hvernig
hlutverk kvenna í sannsögulegu
myndunum eru skrifuð. Höfðu
konur sem lituðu heimsmynd
Zuckerbergs og sambærilegra
karlhetja engin önnur áhrif en að
rómantísera líf þeirra? Ríkjandi
hollywoodískt stef: Karl í aðal-
hlutverki, gjarnan sérvitringur eða
með snilligáfu, hrúga af körlum í
aukahlutverkum og einstaka kona í
hlutverki ástkonu eða móður. Meiri
karakterbreidd hefur konan sjaldn-
ast. Tímans tönn er miskunnarlaus
hakkavél sem virðist leika konur
grátt. Bíómynd er byggð á sannri
sögu. Kvikmyndahandritið skrifaði
sig þó ekki sjálft enda hönnuð, ein-
földuð framsetning á margbrotnum
veruleika. Spurningin er því alltaf:
Hver matreiðir ofan í okkur söguna?
Byggt á
sannri sögu
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
BÓKAÐU NÚNA Á WOWAIR.IS
júl í - október
*
Skotapils, sekkjapípur og skosk gestrisni.
Edinborg er skemmtilegur áfangastaður fyrir alla
sem vilja upplifa líflegan borgarbrag í sjarmerandi
og sögulegu umhverfi. Já, það er bara eitthvað við
hana Edinborg…
9.999 kr.f rá
EDINBORG
SKOTLAND Í SUMAR!
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
NET
1.000 KR.*
1817 365.is
ÓTAKMARKAÐ
GAGNAMAGN
Endalaust
* Fylgir með völdum tilboðspökkum. Undanskilið er
aðgangsgjald og leiga á beini. Nánari upplýsingar á 365.is