Fréttablaðið - 17.02.2016, Page 48

Fréttablaðið - 17.02.2016, Page 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Maríu Elísabetar Bragadóttur Bakþankar Sannsögulegar kvikmyndir höfða til mín. Fyllist lotningu við að horfa á Mark Zucker- berg strunsa um skólalóð Harvard í óða önn að spora út blauta steypu mannkynssögunnar. Stuðandi að sjá Jordan Belfort vaða uppi með sitt snarbilaða gildismat og fleygja sér fram af siðferðilegum hengi- flugum. Verð angurvær að fylgjast með Stephen Hawking glíma við ráðgátur tímans. Vöknar um augu þegar þrællinn Solomon Northup heyr lífsbaráttu sína á hvíta tjaldinu. Það er þó niðurdrepandi hve lítið er um bitastæð kvenhlutverk í sannsögulegu ræmunum. En málið er að þær eru sannsögulegar. Þar stendur hnífurinn í kúnni. Mark Zuckerberg var og er karl og Stephen Hawking líka. Samt urðu konur á vegi Mark Zuckerbergs og sömuleiðis Hawkings. Enda hafa konur jú löngum verið til, lifað og dáið, dregið andann, hugsað og pælt. Svo sannarlega gerðu þær það árið 2004 þegar Zuckerberg stakk Facebook í samband. Það sem truflar mig er hvernig hlutverk kvenna í sannsögulegu myndunum eru skrifuð. Höfðu konur sem lituðu heimsmynd Zuckerbergs og sambærilegra karlhetja engin önnur áhrif en að rómantísera líf þeirra? Ríkjandi hollywoodískt stef: Karl í aðal- hlutverki, gjarnan sérvitringur eða með snilligáfu, hrúga af körlum í aukahlutverkum og einstaka kona í hlutverki ástkonu eða móður. Meiri karakterbreidd hefur konan sjaldn- ast. Tímans tönn er miskunnarlaus hakkavél sem virðist leika konur grátt. Bíómynd er byggð á sannri sögu. Kvikmyndahandritið skrifaði sig þó ekki sjálft enda hönnuð, ein- földuð framsetning á margbrotnum veruleika. Spurningin er því alltaf: Hver matreiðir ofan í okkur söguna? Byggt á sannri sögu KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. BÓKAÐU NÚNA Á WOWAIR.IS júl í - október * Skotapils, sekkjapípur og skosk gestrisni. Edinborg er skemmtilegur áfangastaður fyrir alla sem vilja upplifa líflegan borgarbrag í sjarmerandi og sögulegu umhverfi. Já, það er bara eitthvað við hana Edinborg… 9.999 kr.f rá EDINBORG SKOTLAND Í SUMAR! Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka NET 1.000 KR.* 1817 365.is ÓTAKMARKAÐ GAGNAMAGN Endalaust * Fylgir með völdum tilboðspökkum. Undanskilið er aðgangsgjald og leiga á beini. Nánari upplýsingar á 365.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.