Fréttablaðið - 19.04.2017, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —9 1 . T Ö L U B L A Ð 1 7 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 1 9 . A P R Í L 2 0 1 7
FRÍTT
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Gísli Sigurðsson skrifar
um fiskeldi í lokuðum kerfum.
12
SPORT Undanúrslit Olís-deildar
karla hefjast í kvöld. 17
TÍMAMÓT Háskólanemar af
samtímadansbraut LHÍ bjóða
almenningi að koma og dansa
með sér í opnum danstíma. 20
LÍFIÐ Aron Can
gefur út Ínótt,
sína fyrstu
plötu í fullri
lengd – á
geisladisk. 30
PLÚS 2 SÉRBLÖÐ FÓLK
SUMARDEKK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
FERMINGARSKRAUT
BYGGÐAMÁL Faxaflóahafnir hafa
gefið grænt ljós á uppbyggingu
hafnarmannvirkja á Akranesi, að
vissum skilyrðum uppfylltum. Verði
af uppbyggingunni mun hún kosta
um þrjá milljarða króna þegar allt
er talið. Ný og fullgerð hafnarað-
staða verður ekki að fullu tilbúin
til notkunar fyrr en að fimm til sex
árum liðnum.
Stjórn Faxaflóahafna kom saman
daginn fyrir skírdag og var bókað-
ur sá vilji stjórnar að uppbygging
hafnar mannvirkja á Akranesi gæti
orðið að veruleika að uppfylltum
þeim skilyrðum að fyrir lægi sam-
komulag milli Faxaflóahafna sf.
og HB Granda um verkefnið, eða
nýtingu mannvirkjanna. Hafnar-
stjórn vísar til þeirrar umræðu sem
átt hefur sér stað varðandi starf-
semi HB Granda hf. á Akranesi, og
þá að henni yrði hætt að óbreyttu,
en samtal um uppbyggingu hafnar-
aðstöðunnar hófst strax árið 2007.
Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxa-
flóahafna, segir að með þessari
samþykkt sé ljóst að Faxaflóahafnir
séu tilbúnar að leggja í þessa miklu
fjárfestingu ef allir aðilar málsins ná
saman.
„Það þarf þrjá í þennan tangó. En
stefnan er nokkuð skýr hvað okkur
varðar,“ segir Gísli.
Samkvæmt þessum orðum Gísla
er boltinn því alfarið í höndum HB
Granda þar sem afstaða Akranes-
bæjar er löngu ljós, enda var upp-
byggingin útspil bæjarins til að
koma í veg fyrir að HB Grandi hætti
landvinnslu sinni strax. Fyrirtækið
samþykkti með semingi að ganga
til viðræðna við bæjaryfirvöld og
Faxaflóahafnir og frestaði ákvörðun
sinni um framtíð landvinnslu fram
á sumarið.
„Það er hægt að segja að upp-
fyllingin kosti 1,3 til 1,4 milljarða.
Síðan er allt annað innan hafnar
um milljarður, sem er endurnýjun
á bryggjunni, hafnargarður og
aðgerðir til að skapa meira rými
fyrir stærri skip. Þetta er því tveir og
hálfur milljarður þegar allt er talið,“
segir Gísli sem tekur fram að þegar
skattar eru meðtaldir sé verðmæti
framkvæmdanna um þrír millj-
arðar. Hann bætir við að mögulega
væri hægt að klára verkið árið 2021,
en skipulagsmálin gætu dregist og
lengt framkvæmdatímann enn.
Gísli svarar því játandi að fram-
kvæmdirnar séu háðar því að HB
Grandi vilji auka umsvif sín á Skag-
anum. Í þær verði ekki farið að
öðrum kosti.
„Nei, ég held að það sé nokkuð
ljóst. Það á alla vega við um uppfyll-
inguna en það kemur að því að við
verðum að fara í endurnýjun á við-
legukantinum gamla. En það yrði
þá á næstu tíu árum, eða eitthvað
slíkt,“ segir Gísli.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
á laugardag telur formaður Verka-
lýðsfélags Akraness, Vilhjálmur
Birgisson, að HB Grandi ætli ekki
að hætta við ákvörðun sína. Við-
ræður við Faxaflóahafnir og bæinn
séu fyrirsláttur eins og komið hafi
fram í viðtölum við forstjóra fyrir-
tækisins, Vilhjálm Vilhjálmsson, að
undanförnu. – shá
Gefa grænt
ljós á milljarða
uppbyggingu
Hvort ráðist verður í uppbyggingu hafnarmann-
virkja á Akranesi ræðst nú alfarið af ákvörðun for-
svarsmanna HB Granda um hvort starfsemi fyrir-
tækisins verði haldið áfram þar.
UMHVERFISMÁL Umhverfisstofnun
tilkynnti United Silicon bréflega
fyrir páska að ekki yrði komist hjá
því að stöðva starfsemi verksmiðju
fyrirtækisins í Helguvík. Forsend-
urnar voru að mögulegt væri að frá
verksmiðjunni streymdi út í and-
rúmsloftið fjöldi efna sem gætu haft
langtímaáhrif á heilsufar, en meðal
þeirra eru ediksýra og maurasýra.
Ekkert þeirra efna sem tiltekin eru
í bréfi Umhverfisstofnunar falla
undir mæliáætlun fyrirtækisins eða
umhverfisvöktun.
Þetta kemur fram í bréfi UMST til
United Silicon frá 12. apríl. Horfið
var frá því að stöðva starfsemina
eftir fund með forsvarsmönnum
fyrirtækisins. Byggði það á því að
United Silicon gaf þær upplýsingar
að stjórn fyrirtækisins hefði ákveðið
að ræsa ekki ljósbogaofn verksmiðj-
unnar í næsta óvænta ofnstoppi
sem myndi vara lengur en í klukku-
stund.
Vegna skemmda sem urðu á verk-
smiðjunni þegar eldur kom upp
í henni aðfaranótt þriðjudags er
ljóst að starfsemi verksmiðjunnar
hefur verið hætt um óákveðinn
tíma, enda óheimil samkvæmt skil-
yrðum Umhverfisstofnunar – og
framhaldið með öllu óljóst.
Á tveimur dögum fyrir páska
bárust rúmlega 80 kvartanir – til
viðbótar við aðrar 300 sem áður
höfðu borist. – shá / sjá síðu 6
Skella átti í lás hjá United Silicon
Það þarf þrjá í
þennan tangó. En
stefnan er nokkuð skýr hvað
okkur varðar.
Gísli Gíslason
hafnarstjóri
Vegna skemmda sem
urðu á verksmiðjunni
aðfaranótt þriðjudags er ljóst
að starfsemi hefur verið hætt
um óákveðinn tíma.
MARKAÐURINN Fjárfestarnir Jón
Sigurðsson og Einar Örn Ólafsson
ásamt framtakssjóði í rekstri Stefn-
is, en stærstu hluthafar sjóðsins
eru lífeyrissjóðir, eru að ganga frá
kaupum á Gámaþjónustunni fyrir
milljarða króna. Eignarhlutur Jóns
og Einars Arnar, sem eru fyrrverandi
forstjórar FL Group og Skeljungs,
í félaginu sem tekur yfir rekstur
Gámaþjónustunnar verður um 35
prósent, samkvæmt heimildum
Markaðarins.
Gámaþjónustan er eitt stærsta
fyrirtæki landsins í flokkun og
endurvinnslu úrgangs. Á árinu
2015 nam heildarvelta þess um 4,45
milljörðum króna. Stærsti hluthafi
Gámaþjónustunnar í dag er Benóný
Ólafsson, með um 60 prósenta hlut.
– hae / sjá Markaðinn
Lífeyrissjóðirnir
komnir í sorpið
Forsætisráðherra Bretlands, Theresa May, tilkynnti í gær að hún hygðist boða til þingkosninga í sumar. Fyrir-
hugað er að kosningarnar fari fram 8. júní. Breska þingið greiðir í dag atkvæði um hvort fallast beri á tillögu
May. Íhaldsflokkurinn mælist með mikið forskot í öllum skoðanakönnunum. Sjá síðu 8 NORDICPHOTOS/AFP