Fréttablaðið - 19.04.2017, Síða 4
Eigum Jeep® Grand Cherokee
Limited og Overland dísel og
bensín til afgreiðslu strax.
Verðlaunaðasti og einn öflugasti
jeppi sem framleiddur hefur verið.
Áttu eldri Jeep® Grand Cherokee upp í?
Spjallaðu þá við okkur, því við vitum hvað
Jeep® Grand Cherokee er góður í endursölu.
Tökum upp í allar gerðir bíla.
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
*B
íll
á
m
yn
d
m
eð
3
2”
br
ey
tin
gu
LÖGREGLUMÁL „Það kom kona inn
í Hagkaup, hágrátandi og mjög
hrædd, og bað okkur að hringja strax
á lögregluna því það væri sturlaður
maður inni í apótekinu með exi,“
segir ungur sjónarvottur að vopnuðu
ráni í Apóteki Garðabæjar í gær-
morgun. Lögreglan kom á staðinn
örskömmu eftir að tilkynningin
barst og elti ræningjann í Hafnar-
fjörð þar sem hann var handtekinn
eftir æsilega eftirför.
„Þegar ræninginn kom út stökk
hann upp í lítinn rauðan bíl og
keyrði næstum því eina konu niður
á bílaplaninu. Svo brunaði hann
upp rampinn hérna og tók stefnuna
á Sjálandshverfi þar sem lögreglan
hóf eftirför,“ segir sjónarvotturinn.
Hann bætir við að ræninginn hafi
ekki hulið andlit sitt með neinum
hætti.
Ræninginn kom mjög æstur
inn í apótekið og hafði í hótunum
við starfsmenn með exina að
vopni. Hann athafnaði sig bak við
afgreiðsluborðið í nokkurn tíma og
náði að komast út með einhvern
ránsfeng. Engir viðskiptavinir voru
inni þegar ránið átti sér stað. Starfs-
mönnum tókst að komast út og kalla
eftir aðstoð en þeir fengu áfallahjálp
hjá starfsmönnum Rauða krossins á
eftir.
Eftirför lögreglu hófst þegar í stað
um Sjálandshverfi þar sem ræning-
inn fór alltaf stystu leið í gegnum
hringtorg og keyrði þar með á móti
umferð. Ók hann eftir Vífilsstaðavegi
og Hraunholtsbraut á miklum hraða,
stundum vel yfir 100 km/klst. Hann
fór svo gamla Álftanesveginn og fram
hjá Hrafnistu áður en hann ók sem
leið lá um Herjólfsgötu.
Lögreglan reyndi að stöðva för
ræningjans fyrst þegar hann ók af
Herjólfsgötu og inn á Hjallabraut
með krappri vinstri beygju en tókst
ekki. Jók hann hraðann og ók aftan
á Mercedes Benz bifreið skammt
Æsileg eftirför á eftir ræningja
Ungur maður sem rændi Apótek Garðabæjar í gær ók um götur Garðabæjar og Hafnarfjarðar á miklum
hraða með lögregluna á eftir sér. Eftirförinni lauk eftir að ræninginn hafði ekið aftan á Mercedes Benz bif-
reið og króuðu fimm lögreglubílar hann af. Starfsfólk apóteksins þáði áfallahjálp eftir atburðinn.
Rán tilkynnt
Ræninginn tekur
stystu leið um
hringtorgin
Keyrir á vel yfir
100 km/klst. hraða
Fyrri tilraun lögreglu til
að stöðva för ræningjans
Önnur tilraun lögreglu
til að stöðva ræningjann
Ræninginn keyrir aftan á
Mercedes Benz bifreið
Eftirför lýkur
✿ Leið ræningjans um Garðabæ og Hafnarfjörð
frá gatnamótum Hjallabrautar og
Reykjavíkurvegar.
Við það hægðist á honum og kró-
aði lögreglan bílinn af en fimm bílar
voru þá komnir á svæðið.
Er það mat lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu að mikil mildi þyki
að enginn skaði hlaust af hátterni
mannsins en hann keyrði utan í fleiri
bifreiðar auk þess að valda skemmd-
um á gatnamannvirkjum.
„Það skapaðist mikil hætta. Það
var heppni að ekki skyldi fara verr,“
segir Margeir Sveinsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn. „Þetta var eftir
að klukkan sló níu og þá er mesta
umferðin búin. Ég hefði ekki boðið
í þetta ef þetta hefði gerst fyrir níu,“
bætir hann við.
Ræninginn var handtekinn og yfir-
heyrður í gær. benediktboas@365.is
Ræninginn ók á tvær
bifreiðar og oft á vel yfir 100
km/klst. hraða.
AKUREYRI Ólíklegt þykir að gæslu-
varðhaldsúrskurður á hendur
tveimur karlmönnum, sem grunaðir
eru um alvarlega líkamsárás í Kjarna-
skógi á föstudaginn langa, verði full-
nýttur. Stúlka um tvítugt hefur verið
leyst úr varðhaldi og eftir sitja 18 ára
piltur og 27 ára karlmaður.
„Við erum að ná mjög góðri mynd
af því hvað raunverulega gerðist og
hver ástæða árásarinnar er,“ segir
Guðmundur Svanlaugsson, rann-
sóknarlögreglumaður á Akureyri,
sem sér um rannsókn málsins.
„Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn renn-
ur út þann 21. og við teljum ólíklegt
að við nýtum allan þann tíma.“
Sannað þykir að 18 ára pilturinn
hafi veitt manni alvarlega áverka á
læri með því að reka hníf í tvígang í
læri fórnarlambsins við grillaðstöðu
í Kjarnaskógi við Akureyri. Áttu
mennirnir stefnumót á staðnum og
þekktust áður.
Líðan fórnarlambsins er eftir
atvikum góð, snör handtök vitna
og skjót viðbrögð sjúkraflutninga-
manna auk þess hvað honum var
fljótt komið undir læknishendur er
talið hafa bjargað lífi mannsins. – sa
Rannsókn
lögreglu að
mestu lokið
Maðurinn gæti átt yfir höfði sér
þungan fangelsisdóm fyrir alvarlega
líkamsárás. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LÖGREGLUMÁL Ekki er talin þörf á
að halda áfram auknu eftirliti hér
á landi vegna hryðjuverka, segir
Haraldur Johannessen ríkislögreglu-
stjóri. Eftirlit var aukið eftir árásina í
Svíþjóð í byrjun mánaðar. Í því fólst
til dæmis að sérsveitarmönnum á
vakt var fjölgað.
„Þetta er síðasti dagurinn í dag.
Það var okkar mat að það væri
ekki þörf á auknu eftirliti leng-
ur,“ segir Haraldur og bætir við
að ekkert bendi til að ódæðisverk
séu yfirvofandi. – sks
Dregið úr eftirliti lögreglu á ný
DÓMSMÁL Fyrrverandi vaktstjóri
hjá Subway í Vestmannaeyjum, sem
á dögunum var sýknaður af ákæru
um tæplega 13 þúsund króna fjár-
drátt á staðnum, telur sig eiga inni
um tíu milljónir króna frá fyrir-
tækinu. Annað mála konunnar gegn
rekstrar félagi Subway hérlendis
verður tekið fyrir í héraðsdómi í dag.
Um er að ræða tvö mál. Annars
vegar mál til heimtu tveggja mán-
aða launa auk miskabóta, alls um
2,3 milljónir króna. Hitt málið er
til greiðslu bakvaktaálags þar sem
konan hafði bakvaktasíma í starfi
sínu. Auk þess telur vaktstjórinn
fyrrverandi sig ekki hafa fengið
greidda lágmarksútkallstíma þegar
hún var kölluð út. Sú krafa nemur
um átta milljónum króna.
Stjarnan ehf., sem rekur Subway,
hefur ekki viljað semja við konuna
þar sem félagið telur sig eiga gagn-
kröfu á hendur henni sem nemur
samtals 1.000 klukkutímum. – jóe
Vaktstjórinn á Subway vill fá tíu milljónir króna
Haraldur
Johannessen,
ríkislögreglustjóri
Við erum að ná
mjög góðri mynd af
því hvað raunverulega
gerðist.
Guðmundur Svanlaugsson
rannsóknarlögreglumaður
13
þúsund króna fjárdráttur var
konunni gefinn að sök.
1 9 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð