Fréttablaðið - 19.04.2017, Side 8
ARNÞRÚÐUR HEKLA
EINARSDÓTTIR*
Mig langar til
að vinna við
hárgreiðslu
og þurfa ekki
að selja mig
Hringdu í 907 2003 og gefðu 2500 kr.
eða upphæð að eigin vali á framlag.is
Stúlkan á myndinni tekur þátt í verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í Kampala
í Úganda. Nafnið er ekki hennar rétta nafn en textinn lýsir raunveruleikanum
sem hún og fjöldi annarra ungmenna býr þar við. *
GEFUM ÞEIM SÉNS!
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
BRETLAND Íhaldsflokkurinn mun
hefja kosningabaráttu með nokkuð
öruggt forskot á aðra flokka. Þetta
sýna skoðanakannanir síðustu
vikna. Munurinn nú er sambærileg-
ur við þann sem Margaret Thatcher
hafði fyrir stórsigur Íhaldsflokksins
í kosningunum 1983.
Breska þingið mun í dag greiða
atkvæði um hvort samþykkja beri
tillögu Theresu May forsætisráð-
herra um að ganga til kosninga
8. júní næstkomandi. Tveir þriðju
þingmanna þurfa að samþykkja til-
löguna til að af kosningum verði.
Forsætisráðherrann tilkynnti þessa
ætlun sína á blaðamannafundi
fyrir utan Downing-stræti 10 í gær-
morgun.
May tók við af David Cameron í
kjölfar þess að niðurstaða Brexit lá
fyrir. Með kosningunum nú vonast
hún til þess að fá skýrt umboð Breta
til að semja um skilmála útgöngu
þeirra úr ESB.
„Við þurfum þingkosningar og við
þurfum þær núna. Við höfum þetta
tækifæri áður en samningaviðræð-
urnar fara á fullt,“ sagði May. Áður
hafði hún sagt að ekki væri ástæða
til að kjósa fyrr en kjörtímabilið
rynni sitt skeið árið 2020.
Kosningar fóru síðast fram í land-
inu árið 2015. Hlaut Íhaldsflokkur-
inn tæp 37 prósent atkvæða en
rúmlega helming þingsæta. Verka-
mannaflokkurinn fék rúm 30 pró-
sent og ríflega þriðjung þingsæta.
Sökum þess hvernig úthlutun þing-
sæta er háttað, í einmenningskjör-
dæmunum svokölluðu, þarf fylgi á
landsvísu ekki að endurspeglast í
þingmannafjölda. Skoski þjóðar-
flokkurinn fékk til að mynda tæp
fimm prósent atkvæða en níu pró-
sent þingmanna.
Í nýjustu skoðanakönnunum
mælist fylgi Íhaldsflokksins um
43 prósent meðan Verkamanna-
flokkurinn hefur um fjórðungsfylgi.
Hefur hann ekki mælst með svo lítið
fylgi síðan Gordon Brown var for-
sætisráðherra landsins. Einhverjir
vilja meina að Íhaldsflokkurinn sé
að nýta sér stöðu sína í könnunum
með því að boða til kosninga nú.
Hafa orð á borð við „valdarán“ og
„ólýðræðislega tilburði“ verið notuð
í því samhengi.
Næsta víst þykir að tillagan um
kosningarnar verði samþykkt.
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, lét hafa eftir sér
að flokkurinn fagnaði því að breska
þjóðin fengi tækifæri til að velja sér
forystu sem hefði hagsmuni hennar
í fyrirrúmi.
„Við hlökkum til að sýna hvernig
Verkamannaflokkurinn mun verja
hagsmuni Bretlands,“ segir í yfir-
lýsingu frá Corbyn. Þar kom einn-
ig fram að flokkurinn myndi kjósa
með tillögunni. Því er ljóst að sam-
þykki þingsins liggur fyrir.
johannoli@frettabladid.is
Með svipaða stöðu og
Thatcher var í 1983
Víst þykir að breska þingið samþykki að boða til snemmbúinna kosninga.
Íhaldsflokkurinn hefur í undanförnum könnunum mælst með öruggt forskot.
May vonast til að kosningarnar styrki umboð hennar fyrir viðræður við ESB.
Theresa May fyrir utan Downing-
stræti 10 í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
1 9 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð