Fréttablaðið - 19.04.2017, Blaðsíða 20
Afkoma stærstu líf-eyrissjóða landsins á síðasta ári olli von-brigðum. Hrein raun-ávöxtun var neikvæð hjá þremur af fjórum
stærstu lífeyrissjóðum landsins, sem
eru með meira en helming heildar-
eigna allra lífeyrissjóða landsins.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
(LSR) var eini sjóðurinn sem skilaði
jákvæðri ávöxtun á árinu 2016.
Stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzl-
unarmanna (LIVE) segir umhverfið
sem sjóðunum var skapað ekki hafa
verið hagfellt á síðasta ári. Gengis-
áhrif krónunnar til lækkunar á
erlendum eignum LIVE námu 21,2
milljörðum króna.
Hrein raunávöxtun dróst verulega
saman hjá LSR, Gildi, LIVE og Birtu
milli ára og nam milli -1,5 og 0,8 pró-
sentum árið 2016, samanborið við
6,5 til 10,2 prósent árið áður.
Hrein raunávöxtun LSR árið 2016
nam 0,8 prósentum, samanborið við
6,5 prósent á síðasta ári, en meðaltal
hreinnar raunávöxtunar LSR síðustu
fimm árin nam 6,3 prósentum. Hrein
raunávöxtun hjá Gildi lífeyrissjóði
var neikvæð um 0,9 prósent árið
2016, en var jákvæð um 7,7 prósent
árið 2015. Á síðustu fimm árum nam
meðaltalið 5,7 prósentum.
Hrein raunávöxtun dróst mest
saman af öllum sjóðunum hjá LIVE
og var neikvæð um 1,2 prósent árið
2016, samanborið við að vera jákvæð
um 10,2 prósent árið áður. Á síðustu
fimm árum nam meðaltalið 6,4 pró-
sentum. Hjá Birtu lífeyrissjóði nam
hrein raunávöxtun -1,5 prósentum,
samanborið við 8,5 prósent árið
áður. Meðaltal síðustu fimm ára nam
5,3 prósentum.
Styrking krónunnar hafði umtals-
verð áhrif á ávöxtun erlendra eigna
lífeyrissjóðanna á liðnu ári, en
krónan styrktist um 18,4 prósent á
tímabilinu. Gengisáhrif krónunnar
til lækkunar á erlendum eignum
LIVE námu 21,2 milljörðum króna
á árinu 2016. Þetta kom fram í máli
Guðmundar Þ. Þórhallssonar, fram-
kvæmdastjóra sjóðsins, þegar hann
flutti yfirlit um afkomuna á árinu
2016 á ársfundi sjóðsins.
Umhverfið ekki hagfellt
„Síðasta ár var þungt og ekki eins og
vonir stóðu til. Það liggur í hlutarins
eðli að við erum sterk í hlutabréfum
og ávöxtun í hlutabréfasafninu var
undir væntingum á síðasta ári og við
það bætist þessi styrking krónunnar
sem skilar því að erlendar eignir
okkar eru í neikvæðum tekjum á
síðasta ári,“ segir Guðrún Hafsteins-
dóttir, stjórnarformaður LIVE.
„Þetta er eðli svona safna að þau
fara upp og þau fara niður og þá er
gríðarlega mikilvægt að við erum
langtímafjárfestir og lítum á lengri
sögu en bara tólf mánaða. Niður-
staða síðasta árs olli vonbrigðum,
en sem betur fer eru þau vonbrigði
ekki bara bundin við okkar sjóð
heldur við kerfið í heild sinni og við
erum ekki með lakari niðurstöður
en hinir sjóðirnir.“
Hún segir umhverfið sem þeim
var skapað ekki hafa verið hag-
fellt á síðasta ári. „Það er gríðarlega
mikilvægt að við festum okkur ekki í
Þungt ár fyrir lífeyrissjóði landsins
Þrír af fjórum stærstu lífeyrissjóðum landsins voru með neikvæða raunávöxtun á síðasta ári. LSR skilaði jákvæðri ávöxtun. Sterkt gengi
krónunnar hafði afgerandi áhrif á afkomu sjóðanna. Sjóðirnir stefna að því að auka umsvif sín erlendis á komandi misserum.
Lífeyrissjóður
Hrein raunávöxtun
á árinu 2016
0,8% 1,2% 0,9% 1,5%
Meðaltal hreinnar
raunávöxtunar
síðustu fimm ár
6,3% 6,4% 5,7% 5,3%
Sjóðfélagalán 18,7 milljarðar 31,6 milljarðar 7,3 milljarður 18 milljarðar
Breyting milli ára 156 % 640% 234% 15%
Gengisáhrif krónunnar til lækkunar á erlendum eignum lífeyrissjóðanna námu tugum milljarða á síðasta ári en þá styrktist gengi krónunnar um rúm 18 prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Heildareignir
307,4 milljarðar
BIRTA
18,3%
59,74%
21
,9
6%
Hlutfall erlendra verðbréfa af heildareignum
Hlutfall innlendra hlutabréfa af heildareignum
Aðrar eignir
Heildareignir
720,4 milljarðar
LSR
12,7%
23
,5
%
63,8%
Heildareignir
602 milljarðar
LIVE
21%
26
%53%
Heildareignir
465,1 milljarður
Gildi
20,7%
53,3% 2
6%
✿ Fjórir stærstu með yfir 2.000 milljarða eignir
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
1 9 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN