Fréttablaðið - 19.04.2017, Síða 22
Tónlistarhátíðin Heima hefst í Hafnarfirði í dag, síðasta vetrardag. Þetta er fjórða
skiptið sem hátíðin er haldin en
hún er hluti af Björtum dögum,
fyrstu bæjarhátíð sumarsins, sem
haldin er í Hafnarfirði dagana
19.-23. apríl. Heima hefur fest sig í
sessi sem skemmtileg og öðruvísi
tónlistarhátíð enda er boðið upp
á aðra upplifun og meiri nánd en
gestir og listamenn eiga að venjast,
að sögn Ólafs Páls Gunnarssonar,
eins af þremur skipuleggjendum
hennar. „Sem fyrr munu nokkrar
fjölskyldur opna heimili sín í
miðbæ Hafnarfjarðar en á hverju
þeirra munu tveir listamenn eða
hljómsveitir koma fram. Fríkirkjan
í Hafnarfirði hefur ákveðið að opna
dyr sínar fyrir okkur auk þess sem
sviðið í Bæjarbíói verður notað
eins og stofa þar sem tónleikagestir
umkringja listamennina á sviðinu
og þeir snúa baki í salinn.“ Auk
Ólafs koma þau Henný María Frí-
mannsdóttir og Tómas Ragnarsson
að skipulagi hátíðarinnar.
Hugmynd frá Færeyjum
Ólafur segir hugmyndina fengna
að láni frá frændum okkar
Færeyingum. „Fólkið sem stendur
að G! Festival í Færeyjum setti á
laggirnar Hoyma í Götu í Fær-
eyjum haustið 2013. Einn af
aðstandendum Hoyma, Jón Tyril,
sagði okkur Kristni Sæmundssyni
(Kidda í Hljómalind) frá þessari
skemmtilegu hugmynd á Airwaves
sama ár. Við ákváðum þá að setja
upp Heima í Hafnarfirði og nú er
hátíðin haldin í fjórða sinn. En
Færeyingar voru ekki að finna
upp hjólið vegna þess að þeir
fengu hugmyndina frá Listahátíð
í Reykjavík nokkrum árum fyrr.
Hvaðan Listahátíð fékk hana veit
ég ekki, en það hefur þekkst í aldir
að flutt sé músík heima í stofu.“
Allir spila tvisvar
Heima er líklega heimilislegasta
tónlistarhátíð landsins enda fara
flestir tónleikarnir fram í heima-
húsum. „Allir tónleikar eru í
kringum 40 mínútur og allir spila
tvisvar og á tveimur stöðum, í
tveimur mismunandi húsum.
Fólkið sem býður heim til sín
býður líka flest upp á einhvers
konar veitingar, snakk og drykki.
Heimilislegt er lykilorðið.“
Hann segir alla listamenn sem
koma fram vera sérstakt og gott fólk
og auðvitað sé alltaf lögð áhersla á
að hafa Hafnfirðinga með. „Hafn-
firðingarnir í ár eru Sóley, Marteinn
Sindri, Andrés Þór tríó og Auður.
Svo hafa færeyskir tónlistarmenn
alltaf verið með enda Færeyjar
fullar af frábæru tónlistarfólki.“ Auk
fyrrnefndra listamann koma fram
Gunnar Þórðarson, Soffía Björg,
Helgi Hrafn Jónsson, Skítamórall,
Listamenn koma sér fyrir á ólíklegustu stöðum, t.d. við stiga heimilisins. MYND/MUMMI LÚ
Ekkert er slegið af fjörugri sviðsframkomu þótt spilað sé í stofunni.
MYND/MUMMI LÚ
Heimamenn skreyta og merkja með sínum hætti. MYND/MUMMI LÚ
Framhald af forsíðu ➛
Bambaló, Kött Grá Pje, Lay Low,
Kronika, Konni Kass og Heidrik.
Aðstandendur Heima vilja sjá
hátíðina þroskast og eflast í róleg-
heitunum næstu árin. „Við höfum
séð hvernig hátíðir á borð við
Eistnaflug í Neskaupstað, Aldrei
fór ég suður á Ísafirði og Bræðsluna
á Borgarfirði eystri hafa þróast á
undanförnum árum. Við viljum
sjá Heima þróast í Hafnarfirði með
sambærilegum hætti á næstu árum
og verða árlegur og spennandi
viðburður í öflugri tónlistarflóru
landsins.“
Útvarpað á Rás 2
Sem fyrr segir er Heima hluti af
Björtum dögum sem hefjast í dag.
Sumardeginum fyrsta verður fagn-
að á Víðistaðatúni á morgun, söfn
og vinnustofur listamanna verða
opnar upp á gátt á föstudagskvöld
og Bræðralag, stórtónleikar Frið-
riks Dórs og Jóns Jónssonar í sam-
starfi við Tónlistarskóla Hafnar-
fjarðar og Lækjarskóla, verða
haldnir á laugardaginn þar sem um
200 manna hljómsveit mun flytja
þrettán lög þeirra bræðra.
Heima verður sett með stuttri
athöfn í anddyri Bæjarbíós kl.
19.00 í dag og þar munu handhafar
aðgöngumiða fá armbönd afhent
og kort af hátíðarsvæðinu, Heima-
húsunum sem spilað er í og dagskrá.
Fyrstu Heima-tónleikarnir hefjast
kl. 20 og þeim síðustu lýkur um kl.
23. Rás 2 verður á staðnum og mun
útvarpa hluta dagskrárinnar.
Miðasala fer fram á tix.is og
nánari upplýsingar má finna á
Facebook undir Heima tónlistar-
hátíð.
Allir tónleikar eru í
kringum 40 mínút-
ur og allir spila tvisvar og
á tveimur stöðum, í
tveimur mismunandi
húsum. Fólkið sem býður
heim til sín býður líka
flest upp á einhvers
konar veitingar, snakk og
drykki. Ólafur Páll Gunnarsson
365.IS1817MARGFALT SKEMMTILEGRI
FÖSTUDAGA KL. 19:45
Verumgáfuð ogborðum
fisk
Plokkfiskur
- Hollur kostur tilbúinn á 5 mín.
Kveðja Grímur kokkur • www.grimurkokkur.is
Hollt og
fljótlegt[ ]
ÁN MSG
P
R
E
N
T
U
N
.IS
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . A P R Í L 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R