Fréttablaðið - 19.04.2017, Blaðsíða 24
Starfsfólk Norræna
hússins hvetur þá
sem eiga minningar úr
húsinu að deila þeim.
Þema apríl er
1960+, í maí er
það 1970+.
Ákveðið hefur verið að efna til opinna húsa í Noræna hús-inu á miðvikudagskvöldum
næstu vikur og mánuði og verður
gestum og gangandi boðið að deila
reynslu sinni úr húsinu og rifja upp
gamla tíma. Þeim gefst kostur á að
skoða gömul skjöl, sýningarskrár
og hinar ýmsu ljósmyndir. Opnu
húsin standa út júní og verða svo
tekin aftur upp haust.
„Það er fólkið sem skapar sög-
una,“ segir í tilkynningu frá Nor-
ræna húsinu. „Til er fjöldinn allur
af gömlum ljósmyndum, skjölum
og sýningarskrám í kössum. Þessa
kassa á að opna, skoða og greina
hvaða saga og minningar finnast
í þeim, skrásetja hvaða fólk er á
myndunum og heyra hvernig það
var að vera í Norræna húsinu á
þeim tíma sem myndin var tekin.
Þannig verða gögnin verðmætari
og við verðum margs vísari um
fólkið og sögurnar sem húsið
geymir.“
Starfsfólk Norræna hússins
hvetur þá sem eiga minningar úr
húsinu til að deila þeim: „Ef þú ert
einn af þeim sem eiga minningar úr
Norræna húsinu hvort sem þær eru
skemmtilegar, alvarlegar, spenn-
andi eða vandræðalegar viljum við
gjarnan fá að heyra þær. Við viljum
einnig taka söguna þína upp á
myndband svo hún geti lifað áfram
í skjalasafni hússins og orðið hluti
af lifandi sögu hússins. Vel valdar
sögur munu svo verða hluti af
afmælissýningu Norræna hússins á
næsta ári.“
Fyrsta opna húsið var haldið
þann 5. apríl og þá var skjalasafnið
formlega opnað. Þemað fyrir apríl
er sjöundi áratugurinn (1960+).
Þeir sem eyddu tíma í húsinu á
þeim tíma fylgdust með byggingu
þess og langar að hjálpa til við að
fara í gegnum myndir og gögn frá
þeim tíma eru sérstaklega vel-
komnir.
Framvegis verða svo opnaðir
nýir kassar í hverjum mánuði sem
hér segir: maí: 1970+, júní: 1980+,
september: 1990+, október: 2000+
og nóvember: 2010. Í desember
verður svo spáð í framtíðina og
framtíðarhlutverk hússins.
Opnu húsin standa frá kl. 19-21.
Gestum boðið að deila
reynslu og minningum
50 ár verða liðin frá
opnun Norræna
hússins 2018. Af
því tilefni er nú
verið að rifja sögu
þess upp.
Sætindaþörfin segir oft til sín eftir kvöldmat. Þá er gott að geta
skellt í fljótlegan og nánast
hollan eftirrétt. Hráefnin
eru til á flestum heimilum
og því jafnvel ekki þörf á
að fara út í búð. Hér er að
mestu leyti slumpað og því
hægt að laga hlutföllin að
smekk.
1 grænt epli, smátt skorið
1-2 tsk. kanill
50 g smjör
2 dl haframjöl
50 g 70% súkkulaði, saxað
Möndluflögur, heslihnetuflögur,
salthnetur eða aðrar hnetur sem
eru til
Kókosflögur eða kókosmjöl
Þeyttur rjómi
Skerið eplin í hæfilega bita.
Bræðið smjör í potti. Bætið hafra-
mjölinu við og hrærið þar til það er
blautt í gegn. Hér er hægt að bæta
við smá sykri, hlynsírópi eða ann-
arri sætu en það er í raun óþarfi.
Súkkulaðið, kanillinn og bökuðu
eplin gefa alveg nægilega sætu.
Dreifið eplunum í botninn á
eldföstu móti, sáldrið kanil yfir.
Hellið haframjölsblöndunni yfir
eplin. Dreifið súkkulaði yfir ásamt
hnetum að eigin vali. Skreytið með
kókosflögum.
Bakið við 180 gráður þar til
hneturnar og kókosinn taka á
sig gylltan lit. Berið fram með
þeyttum rjóma.
Gott með
kvöldkaffinu
Sumargjöfin fæst
í Safnbúðinni
Forvitnir ferðalangar, valkyrjur og víkingar
Mikið úrval af vönduðum miðalda- og
víkingabúningum og leikföngum.
Lærðu að binda hnúta 1.550 kr.
Sippuband 1.495 kr.
Origami
hundar og kettir
1.295 kr.
Tölvuúr með sterkri
pappírs-ól sem má
skreyta eftir eigin
höfði 1.495 kr.
Teygjubyssa með
10 mjúkum kúlum 2.495 kr.
Suðurgata 41 · 101 Reykjavík · Sími 530 2203 · www.thjodminjasafn.is
Hverfisgata 15 · 101 Reykjavík · Sími 530 2210 · safnahusid.is
Njósnapenni 850 kr.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . A P R Í L 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R