Fréttablaðið - 19.04.2017, Síða 27
Það er mikil hagræðing og þægindi fólgin í því að eiga tvö sett af felgum, segir
Dagur Benónýsson, rekstrarstjóri
þjónustuverkstæða N1. Þannig
tekur t.d. mun styttri tíma að skella
felgum undir bílinn bæði vor og
haust heldur en að láta umfelga
hann. „Auk þess er mun ódýrara
að hafa dekkin klár á felgum og
skrúfa þau bara undir bílinn.
Þannig borgar aukafelgusett sig
upp á tiltölulega skömmum tíma.
Í nágrannalöndum okkar þekkjast
ekki þessar umfelganir á bæði
vorin og haustin. Þar eru nánast
allir með dekkin klár á felgum
og panta tíma þegar þeir vilja fá
dekkin undir.“
Bíleigendur geta geymt dekkin
á dekkjahóteli N1. „Það kostar um
5.000 kr. að geyma umganginn af
fólksbíladekkjum í hálft ár eða
milli vertíða og við bjóðum einnig
upp á tímapantanir þar. Starfs-
menn okkar passa upp á að dekkin
séu klár þegar viðskiptavinir þurfa
á þeim að halda. Við jafnvægis-
stillum þau, förum yfir loftþrýsting
og metum ástand dekkjanna. Ef
dekkin eru ekki lögleg eða vafi
leikur á að þau endist það tímabil
sem verið er að sigla inn í, þá látum
við viðskiptavini vita af því.“
Þetta fyrirkomulag sparar ekki
bara tíma og fyrirhöfn, segir Dagur.
„Auk fyrrgreindra kosta minnkar
þetta líkur á að dekk og felgur verði
fyrir hnjaski við umfelgun. Það
fer nefnilega ekki vel með dekk að
vera sí og æ að umfelga þau.“
Úrval af gæðafelgum
N1 býður upp á mikið úrval af
gæðafelgum á góðu verði. „Helsti
birgir okkar heitir Alcar en það er
þýskt fyrirtæki. Alcar framleiðir
sérstaklega vandaðar felgur undir
nánast allar gerðir af bifreiðum.
Sem dæmi þá kosta 15" felgur frá
12.990 kr. stykkið, 16" felgur eru
frá 15.990 kr. og 17" felgur kosta frá
14.990 kr. stykkið.“
N1 býður upp á felgur og dekkja-
hótel á öllum verkstæðum sínum.
„Síðasta haust tókum við yfir
rekstur Gúmmívinnslunnar Réttar-
hvammi á Akureyri og þar munum
við bjóða alla alhliða dekkjaþjón-
ustu, dekkjahótel og felgusölu.“
Öll verkstæði fyrirtækisins
eru gæðavottuð af Michelin og
eru árlega tekin út af aðilum á
þeirra vegum að sögn Dags. „Þetta
tryggir viðskiptavinum að ákveðin
þekking sé til staðar, að ávallt
sé hægt að treysta á fagmannleg
vinnubrögð og að umhirða dekkja
sé eins og best er á kosið. Verk-
stæði okkar hafa skorað mjög hátt
í þessum úttektum og einna hæst á
öllum Norðurlöndunum.“
Dagur Benónýs-
son er rekstrar-
stjóri þjónustu-
verkstæða N1.
MYND/GVA
Mikil hagræðing og þægindi
N1 kappkostar að bjóða dekk og felgur sem uppfylla óskir og þarfir bíleigenda. Mikil hagræðing
og þægindi eru fólgin í því að eiga tvö sett af felgum og það kostar lítið að geyma dekkin hjá N1.
Dekkjaverkstæði N1
eru á eftirtöldum stöðum
Reykjavík
Réttarhálsi 2, s: 440-1328
Bíldshöfða 2, s: 440-1318
Fellsmúla 24, s: 440-1323
Ægisíðu 102, s: 440-1320
Hafnarfjörður
Reykjavíkurvegi 56, s: 440-1374
Reykjanesbær
Grænásbraut 552, s: 440-1372
Mosfellsbær
Langatanga 1a, s: 440-1378
Akranes
Dalbraut 14, s: 440-1394
Akureyri
Réttarhvammi 1, s: 440-1433
www.n1.is facebook.com/enneinn
Hjólbarðaþjónusta N1
Bíldshöfða 440-1318
Fellsmúla 440-1322
Réttarhálsi 440-1326
Ægisíðu 440-1320
Langatanga Mosfellsbæ 440-1378
Reykjavíkurvegi Hafnarrði 440-1374
Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372
Dalbraut Akranesi 440-1394
Réttarhvammi Akureyri 440-1433
Opið
mán –fös kl. 08-18
laugardaga kl. 09-13
www.n1.is
Michelin CrossClimate
Sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir.
Dekk sem henta margbreytilegum
íslenskum aðstæðum sérlega vel
og veita frábæra aksturseiginleika.
Michelin Energy Saver
Margverðlaunuð fyrir veggrip,
endingu og eldsneytissparnað.
Michelin Primacy 3
Einstakir aksturseiginleikar.
Frábært grip og góð vatnslosun.
Ein bestu sumardekkin
á markaðnum í dag.
Hluti af vorinu
Rúllaðu inn í sumarið
á nýjum dekkjum
Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is
KYNNINGARBLAÐ 3 M I ÐV I KU DAG U R 1 9 . A P R Í L 2 0 1 7