Fréttablaðið - 19.04.2017, Síða 40
MARKAÐURINN
@stjornarmadur
Stjórnar-
maðurinn
Miðvikudagur 19. apríl 2017FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskiptiwww.visir.is
Eigendur Dunkin’ Donuts
skoða nú samkvæmt heim-
ildum Markaðarins að loka
kleinuhringjastað sínum við
Laugaveg 3. „Ég kannast ekki
við það og það hefur engin
ákvörðun verið tekin um
það,“ segir Árni Pétur
Jónsson, forstjóri Dunkin’
Donuts á Íslandi, í samtali
við Markaðinn. Fyrirtækið rekur nú
meðal annars tvo kleinuhringja-
staði, við Laugaveg og í Kringlunni.
Staðurinn við Laugaveg var opn-
aður í júlí 2015.
Gætu lokað við Laugaveg
Það var niðurlægj-
andi að vera í hópi
þeirra sveitarfélaga sem lentu
undir því eftirliti. Það skiptir
miklu máli að vera orðin
sjálfráða.
Rósa Guðbjartsdóttir, forseti
bæjarstjórnar í Hafnarfirði
12.4.2017
Árni Pétur Jónsson,
forstjóri Dunkin’
Donuts á Íslandi
FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR KL. 15 KVÖLDTÓNLEIKAR KL. 20
ORKUSALAN OG PEPSI MAX KYNNA MEÐ STOLTI
16. SEPTEMBER
MIÐASALA Á TIX.IS/PALLI
Í HÖLLINNI
UPPS
ELT Í
STÚK
U Á B
ÁÐUM
TÓNL
EIKUM
!
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, hefur nú boðað til
þingkosninga sem haldnar
verða þann 8. júní næstkom-
andi. Ljóst er að málefnaskráin
fyrir kosningarnar verður í
styttra lagi. Aðalmálið, og allt að
því það eina, verður væntanlega
útganga Breta úr Evrópusam-
bandinu.
Varla verður annað sagt en
að May sé í sterkri stöðu en
Íhaldsflokkurinn er með tæp-
lega tuttugu prósenta forskot á
Verkamannaflokkinn sam-
kvæmt könnunum. Allt bendir
því til þess að May muni veru-
lega styrkja stöðu sína og auka
við meirihlutann í þinginu sem í
dag er einungis tíu þingsæti.
Tilgangur May er augljós, og
raunar yfirlýstur. Hún vill
endurnýja umboð sitt og tryggja
sér ríflegan stuðning frá þingi
og þjóð vegna yfirvofandi við-
ræðna við Evrópusambandið
og aðrar viðskiptaþjóðir. Hið
síðarnefnda er ekki síst mikil-
vægt enda spurningunni enn
ósvarað um hvert Bretland muni
snúa sér að útgöngu lokinni.
Samningshönd Breta yrði að
minnsta kosti sterkari ef sessu-
nautar þeirra við samninga-
borðið væru vissir um að May
væri í sterkri stöðu heima fyrir.
Þetta er þó væntanlega ekki hið
eina sem ræður stöðumati May.
Helstu andstæðingar þeirra í
Verkamannaflokknum eru allt
að því óstarfhæfir með sósíalist-
ann Jeremy Corbyn í stýrishús-
inu. Frjálslyndi flokkurinn er
enn að jafna sig eftir afhroðið í
kosningunum 2015. Sterk staða
að loknum kosningum myndi
svo gefa May færi á að kæfa sjálf-
stæðistilburði Skota í fæðingu.
Hvað sem slíkum pólitískum
hræringum líður er senni-
legt að mörkuðum yrði rórra
ef niðurstaðan að loknum
kosningum yrði öruggur meiri-
hluti Íhaldsflokksins. Sterlings-
pundið styrktist verulega í
kjölfar tíðindanna og hefur ekki
verið sterkara gagnvart evru
og bandaríkjadal um nokkurra
mánaða skeið.
Það skyldi þó ekki vera að
væntur sigur Íhaldsflokksins
yrði til að slá botn í þann óróa
sem ríkt hefur allt frá atkvæða-
greiðslunni fyrir réttum níu
mánuðum?
Spyrjum að leikslokum.
Botn sleginn
í Brexit?