Fréttablaðið - 19.04.2017, Blaðsíða 52
Söngkonan Rihanna klæddist
óvenjulegu dressi frá tískuhúsi
Gucci á Coachella-tónlistar-
hátíðinni á dögunum.
Dressið er metið á sem
nemur um einni milljón
króna og sást á tísku-
pallinum hjá Gucci
þegar nýjasta haust-
og vetrarlínan var
kynnt í febrúar.
Dressið sem
um ræðir sam-
anstendur af
hlýrabol, gegn-
sæjum glimm-
e r t o p p ,
l e g g i n g s -
b u x u m
úr sama efni og rifnum gallastutt-
buxum.
Eins og áður sagði eru fötin úr
haustlínu Gucci og eru því ekki
komin í sölu, þannig að það er
greinilegt að Rihanna er á sér-
samningi hjá tískuhúsinu.
Rihanna birti mynd af sér í
dressinu á samfélagsmiðlum og
sagðist ekki vera tilbúin
að fara heim þar sem
ekki væru nógu margir
búnir að sjá fötin sem
hún klæddist.
– gha
Klæddist dressi sem
metið er á milljón króna
Þetta dress sást á tískupallinum hjá Gucci þegar nýjasta vetrarlínan var kynnt.
Þættirnir eru byggðir á samnefndri
sjálfsævisögu kaupsýslukonunnar
Sophiu Christinu Amoruso en
Amoruso hóf feril sinn á að stofna
eBay-verslun. Verkefnið gekk afar
vel og í framhaldinu opnaði hún
vefverslunina Nasty Gal sem naut
mikillar velgengni. Í kjölfarið komst
Amoruso á lista viðskiptatímarits-
ins Forbes yfir ríkustu konur heims
sem hafa skapað auð sinn sjálfar.
Þættirnir Girlboss gefa innsýn í
hvernig áhugaverð ævi hinnar 32
ára gömlu Amoruso hefur verið og
hvernig hún komst á toppinn.
Þess má geta að seint á síðasta ári
varð Nasty Gal gjaldþrota en fata-
merkið Booboo tók yfir reksturinn
og vefverslunin lifir enn þá góðu lífi.
„Þetta var fyrsta fyrirtækið mitt og ég
komst mjög langt,“ sagði Amoruso á
Australia’s Business Chicks-ráðstefn-
unni skömmu eftir að í ljós kom að
fyrirtækið væri að fara á hausinn. Í
dag virðist Amoruso vera að einbeita
sér að þáttagerð en hún er einn af
framleiðendum Girlboss.
Fyrsta sería af Girlboss er í þret-
tán þáttum sem koma inn á Netflix
21. apríl.
Charlize Theron
skein skært á
frumsýningu Girlboss
Það var fjölmennt á rauða dreglinum þegar Girlboss, ný þáttaröð frá
Netflix, var frumsýnd í Hollywood á mánudaginn. Leikkonan Charl-
ize Theron er einn framleiðandi þáttanna, hún lét sig að sjálfsögðu
ekki vanta á frumsýninguna og skein skært.
RuPaul var flottur í tauinu frumsýningunni.
Rihanna klæddist
Gucci frá toppi til
táar á Coachella.
1 9 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
Leikkonan og
framleiðandinn
Charlize Theron
var glæsileg að
vanda.