Fréttablaðið - 19.09.2015, Side 18
SKOÐUN
Gunnar
Mín skoðun Jón Gnarr
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Ég hugsa og þess vegna er ég,“ er heimspekileg stað-hæfing sem yfirleitt er eignuð franska stærðfræð-ingnum, heimspekingnum og vísindamanninum
René Descartes (1596-1650). Hugmyndin er þó eldri
þótt hún sé orðuð með öðrum hætti. Þessi staðhæfing er
einn helsti grundvöllur vestrænnar heimspeki. Stað-
hæfinguna má túlka með mismunandi hætti. Í henni er
einstaklingurinn gerandi. Hann hugsar og skapar þannig
hugmyndina og vitundina um sjálfan sig. Maðurinn
hefur frjálsan vilja sem er þó settur undir æðri vilja sem
sé vilji Guðs. Manneskjan er tvískipt, í anda og líkama.
Líkaminn er ófullkominn og dýrslegur, þar búa hvatirnar
og brestirnir. Sálin er á æðra plani á guðlegu sviði.
Siðfræðin snýst svo að miklu leyti um átökin þarna
á milli. Við erum andlegar verur í grunninn en dregin
áfram af dýrslegum hvötum sem oft koma okkur í
ógöngur enda sálin fangi líkamans. Kynhvötin fer þar
fremst í flokki. Hún er frumstæðust og subbulegust allra
hvata. Andinn er reiðubúinn en holdið er veikt. Trúar-
brögðin grundvallast á þessu. Líf okkar og örlög dansa
eftir geðþótta Guðs. Svo okkur farnist vel í lífinu þarf
okkar eigin vilji að vera í sem mestu samræmi við æðri
vilja hans. Hann leiðir okkur áfram. Innsæi er oft skil-
greint sem leiðsögn frá Guði, eða að handan að minnsta
kosti. Handanverur geta líka vitjað okkar í draumum og
komið á framfæri skilaboðum.
Ég er ósammála
Ég er ósammála þessu af ýmsum ástæðum. Í fyrsta lagi
hafna ég hugmyndinni um Guð. Ég hef ekki fundið
neitt sem bendir til tilvistar slíkrar veru eða fyrirbæris.
Persónuleikinn er heldur ekkert sem ég er sammála að
sé óbreytanlegur hluti af einstaklingi. Það hefur sýnt sig
að sjúkdómar og áföll geta breytt skapgerðareinkennum
fólks. Ég þekki þetta líka sem leikari, að skipta um ham
og verða önnur persóna. Það getur verið andleg reynsla.
Nýjustu rannsóknir í taugavísindum benda til þess að
frjáls vilji sé ekki til eða að minnsta kosti stórlega ofmet-
inn. Það sem ég upplifi því sem „mig sjálfan“ virðist á
tálsýn byggt. Ég veit ekki með sálina eða mannsandann.
Kannski er meðvitund eitthvað meira en bara líkamlegt
ástand. Ég hef fengið nokkrar slíkar upplifanir sem ég get
ekki útskýrt. Ég er þó alls ekki á því að ef eitthvað andlegt
sé til þá sé það þar af leiðandi yfirnáttúrulegt. Ég held
að hugtakið „yfirnáttúrulegt“ sé yfirleitt einungis orð
yfir náttúruleg fyrirbæri sem við höfum ekki enn náð að
skilja.
Guðstrú er úrelt hugmyndafræði
Ég held því að við þurfum að losa okkur við gamlar og
úreltar hugmyndir til að geta tekið við nýjum. Guðstrú
er úrelt hugmyndafræði, hjátrú sem beinlínis stendur
okkur fyrir þrifum á svipaðan hátt og þegar fólk til forna
hélt að geðsjúklingar væru haldnir illum öndum eða
sjúkdómar eða áföll væru guðleg refsing. Guðstrú er fyrir
mér lygi og lygi getur aldrei verið til blessunar. En það er
bara mín skoðun og aðrir hafa fullan rétt á að mynda sér
sína eigin skoðun út frá sínum eigin upplifunum.
Heilinn er hinn raunverulegi stjórnandi lífs okkar.
Hann tekur ákvarðanir sem við sjálf erum oft ekki með-
vituð um. Heilarannsóknir sýna að þegar við tökum
ákvarðanir er heili okkar búinn að taka hana áður en án
okkar vitundar. Og oftar en ekki beitir hann okkur sjálf
blekkingum til að leiða okkur áfram og fá okkur til að
gera hluti. Fullorðið fólk leikur þann leik oft við börn.
Ef við værum tölva væri heilinn móðurborðið og harði
diskurinn. „Við“ værum einungis viðmót. Og heilinn í
mér á meira sameiginlegt með heilanum í þér heldur en
restinni af mér. Hann er ekki bundinn einstaklingum
heldur er hann sjálfstæð lífvera. Og við erum einungis
þjónustufólk hans. Heilinn er Guð. Heilinn hefur vilja.
Við getum kallað hann sjálfstæðan eða eðlislægan. Það
erum því ekki „við“ sem tökum ákvörðunina heldur
heilinn. Hann er ekki hluti af okkur heldur erum við
einungis hluti af honum.
Í ljósi þessa stenst staðhæfing Descartes ekki. „Ég“ er
ekki vegna þess að ég hugsi. Það er hugsun og þess vegna
er „ég“.
Cogito, ergo sum. Eða hvað?
Æskilegt er að hópur vina og kunningja bjóði fram til þings og sveitarstjórna. Óháð framboð, sem tjalda til einnar nætur, gera stjórnmálin blæbrigða-ríkari, hvort sem fulltrúar þeirra ná kjöri eða ekki.
Besti flokkurinn er besta dæmið. Hann var trúverð-
ugur af því hann var óháður. Við gengum að því vísu, að
hann skuldaði engum neitt. Eins og Bandaríkjaforseti á
öðru kjörtímabili, var hann frjáls á valdatíma sínum því
hann vildi ekki endurkjör. Stíllinn fólst í góðum manna-
siðum, tillitssemi og græskulausu háði. Grín slær vopnin
úr höndum einstrengingslegra pólitíkusa. Þeir horfa á
myndina af sjálfum sér í spéspeglinum, verða niðurlútir
og hopa.
Framboð af þessu tagi leysa stjórnmálaflokka ekki
af hólmi. Margir liðsmenn flokkanna eru hreint ágætir
pólitíkusar. Sum standa fyrir skilgreinda hagsmuni, sem
sagðir eru sérhagsmunir í niðrandi tóni. En sérhagsmunir
og almannahagsmunir fara iðulega saman. Sterk fyrirtæki
geta borgað góð laun, góð laun skila miklu skattfé sem
stendur undir rekstri góðs samfélags. Þetta er jafnvægis-
list.
Lengi vel höfðu flokkarnir tangarhald á menningu og
listum, réðu fjölmiðlum, bönkum, samtökum fyrirtækja
og verkalýðshreyfingunni. Ítökin hafa minnkað. En nokk-
ur fyrirtæki hafa illu heilli hert tökin á sínum flokkum.
Metorðastigar flokkanna lúta reglum sem eru sniðnar
að þeim sem mótast í valdakerfi þeirra. Byrja í ung-
liðahreyfingu eða háskólapólitík, fá starf í ráðuneyti
eða flokksapparati og verða aðstoðarmenn ráðherra.
Sumum er fleytt alla leið í ráðherrastól hratt og örugg-
lega með næringarsnautt veganesti. Ekki má þó gera lítið
úr reynslu af flokksstarfi. Þekking á refilstigum stjórn-
málanna getur gagnast vel. En hjörðin verður einsleit ef
öll fara í gegnum nálarauga flokksstarfs.
Píratar eru boðberar válegra tíðinda af hugverkarétti.
Það er grafalvarlegt og snúið mál sem ekki verður leyst
með því að skjóta sendiboðann.
Þótt brokkgeng séu leggja Píratar oft gott til málanna.
Nú vilja þau bregðast við fleiri tíðindum úr tækni-
heimum. Vélmenni, vitvélar, flygildi og sjálfkeyrandi
samgöngutæki munu fljótlega leysa af hólmi um helming
starfa. Spurningarnar eru: Hvernig skiptum við auðnum
þegar æ færri hendur skapa hann? Hvernig látum við
daginn líða þegar störfin hverfa? Hver kaupir afurðina
þegar launþegum fækkar? Hvernig drögum við fram lífið
án atvinnu? Við þurfum að finna svörin og helst snúa
þessu öllu okkur í vil. Hugverkaflækjan er bara toppurinn
á ísjakanum.
Pírötum stafar hætta af lukkuriddurum, sem vilja
stökkva á vinsældavagninn. Þau hafa engar skyldur
við þá. Framboð vina og kunningja er lýðræðislegt ef
kjósandinn veit hvernig í pottinn er búið. Krafan er að
við fáum tækifæri til að taka upplýsta ákvörðun í kjör-
klefanum.
Nýir tímar
í pólitík
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Lengi vel
höfðu
flokkarnir
tangarhald á
menningu og
listum, réðu
fjölmiðlum,
bönkum,
samtökum
fyrirtækja
og verka-
lýðshreyfing-
unni.
Af hverju meðgöngujóga?
Kennt í sjúkraþjálfaranum í Hafnarfirði
sími 6910381
• Hæfari að fara
í gegnum sársauka
• Kann rétta öndun,
rétta líkamsbeytingu
• Finnur sig sterkari og
öruggari í félagsskap
barnhafandi góðra
kvenna
1 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r