Fréttablaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 50
| AtvinnA | 19. september 2015 LAUGARDAGUR6
MIÐASÖLUSTJÓRI HÖRPU
Harpa ohf. auglýsir laust til umsóknar starf miðasölustjóra Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss í Reykjavík.
Miðasala Hörpu veitir fjölbreytta þjónustu jafnt við gesti hússins sem og starfsfólk og fyrirtæki sem hafa
starfsemi í húsinu. Starf miðasölustjóra heyrir undir fjármálasvið. Leitað er að drífandi einstaklingi sem hefur
frumkvæði og metnað til að ná árangri í starfi og áhuga á að starfa í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi.
Umsóknarfrestur er til og með 26. september nk.
Menntunar- og hæfniskröfur
• reynsla af verkstjórn og daglegri stjórnun
starfsmanna á gólfi
• reynsla af sölukerfum
• Menntun sem nýtist í starfi - kostur
• Þekking á helstu tölvu- og upplýsingakerfum
(Word, excel, outlook)
• góð íslensku- og enskukunnátta
• góð framkoma, snyrtimennska og þjónustulund
• góðir samskiptahæfileikar
starfs- og ábyrgðarsvið
• umsjón með starfsstöðvum auk verkstýringar
þjónustufulltrúa og starfsfólks á sölu- og
þjónustuborðum
• Daglegt söluuppgjör
• umsjón og eftirlit með sölukerfum
• samskipti og samstarf við fasta notendur innan
hörpu og aðra tónleika- og ráðstefnuhaldara
• Þjónusta við gesti hússins
RÁÐUM EHF • Vegmúla 2, 108 Reykjavík • Sími 519 6770 • radum@radum.is
sækJa uM:
nánari upplýsingar um starfið veita
agla sigr. björnsdóttir, agla@radum.is og
hildur erla björgvinsdóttir, hildur@radum.is
í síma 519 6770. umsækjendur eru
vinsam legast beðnir að sækja um starfið
á heimasíðu ráðum www.radum.is.
Með umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá.
Norræna húsið
leitar að verkefnastjóra
kynningarmála
Ertu sá sem við erum að leita að?
– Þú ert hugmyndarík/ur og skapandi.
– Þú getur komið boðskap á framfæri
og vakið áhuga á menningar-
og listviðburðum.
– Þú ert jafnfær í íslensku
og skandinavísku.
– Þú ert ófeimin/n og frábær
í mannlegum samskiptum.
– Þú notar nýjustu miðlana og
samskiptaforrit og hefur tilfinningu
fyrir hvað virkar á ólíka markhópa.
Helstu viðfangsefni:
– Umsjón með heimasíðu hússins.
– Gerð markaðsefnis.
– Markaðssetning einstakra viðburða.
– Stuðningur við verkefnastjóra.
– Markhópagreining og áætlanagerð.
– Umsjón með beinu streymi frá
viðburðum.
Hæfniskröfur:
Leitað er að einstaklingi með
menntun á sviði markaðsmála.
Viðkomandi þarf að hafa brennandi
áhuga á Norðurlöndunum og
norrænu samstarfi. Gerð er krafa
um framúrskarandi kunnáttu
í sænsku, dönsku eða norsku ásamt
kunnáttu í íslensku. Mikilvægt er
að einstaklingurinn hafi góða
almenna tölvukunnáttu og sé fær
að tjá sig í ræðu og riti. Við leitum
að sjálfstæðum, áreiðanlegum
og hugmyndaríkum einstaklingi.
Umsjón með ráðningu
hefur Þórunn Ragnarsdóttir og veitir
hún upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til
og með 5. október 2015.
Umsækjendur eru vinsamlegast
beðnir um að senda umsókn með
tölvupósti á thorunn@nordice.is.
Með umsókninni þarf að fylgja
starfsferilskrá og stutt kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir
hæfni viðkomandi í starfið. Umsókn
skal vera á dönsku, sænsku eða
norsku og eru umsóknir á öðrum
tungumálum ekki teknar til greina.
Ráðið er í starfið til fjögurra ára
með möguleika á framlengingu
ráðningarsamnings í fjögur ár
í viðbót skv. reglum Norrænu
ráðherranefndarinnar. Upplýsingar
um Norræna húsið má finna á
www.norraenahusid.is.
Norræna húsið í Reykjavík er norræn
menningarstofnun með áherslu á
bókmenntir, tungumál, arkitektúr,
hönnun, börn og ungmenni og sjálfbæra
þróun. Markmið hússins eru að koma
norrænni menningu á framfæri og
styrkja tengsl við hin Norðurlöndin.
Norræna húsið er leiðandi afl í íslensku
menningarlífi og húsið er eitt af
meistaraverkum Alvars Aalto.
Okkur vantar hressan og duglegan
starfskraft í fullt starf í útivistardeild
INTERSPORT á Bíldshöfða.
Vinnutími er alla virka daga og annan
hvern laugardag.
Viðkomandi þarf að geta byrjað sem fyrst.
HÆFNISKRÖFUR:
• Reynsla af verslunarstörfum æskileg
• Góðir samskiptahæfileikar og
þjónustulund
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Þekking á útivistarfatnaði
• 20 ára og eldri
Áhugasamir vinsamlegast sæki um
á heimasíðunni www.intersport.is
Umsóknarfrestur er til og með
20. september 2015.
LÍFLEGT STARF
INTERSPORT
Í ÚTIVISTARDEILD