Fréttablaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 36
Sóley Kristjánsdóttir býr í Breiðholti og finnst róandi að rækta garðinn sinn og halda hænur. Fréttablaðið/Anton Brink Hersteinn Pálsson, býflugnabóndi í Grafarholti Blíðar býflugur Hersteinn Pálsson kaupir býflugur og drottningu frá Álandseyjum. „Býpakkinn samanstendur af tveimur til þremur kílóum af býflugum ásamt drottningu í sérstöku boxi. Svo er bara að koma þeim fyrir. Það er gert í seinni hluta júní.“ Býflugurnar eru blíðar og stinga sjaldan. Hann á tvö börn og þau geta vel umgengist flugurnar. „Það er búið að rækta úr þeim árásargirnina. Ég á tvö börn og eitt á leiðinni. Dóttir mín er fimm og sonur minn er þriggja. Hún hefur mest gam­ an af pabbaflugunum, þær eru bangsalegar býflugur og stinga ekki. Sonur minn hefur verið stunginn en virðist ekki kippa sér upp við það.“ Hersteinn er með þrjú bú. Tvö þeirra keypti hann í vor, hinu þriðja er hann að hjúkra en það kom veikt undan vetri og erfiðu vori. „Ég missti drottningu og þurfti að hjúkra bú­ inu, það er ekki víst að það hafi það af,“ segir hann og segir vorið reynast íslenskum býflugnabændum erfitt. „Býflugur fara ekki í híði yfir veturinn. Það þarf að gefa þeim sykurvatn og þær mynda klasa inni í búinu þar sem þær hafast við. En á vorin þurfa býflugurnar að komast út til að drita. Ef þær fá ekki nokkra frostlausa daga þá svelta þær sig og deyja. Ef það koma frostlausir dagar þar sem hitinn fer yfir fimm gráður þá hleypi ég þeim út til að hreinsa sig. Þá drita þær gulum dopp­ um út um allt og þá veit maður að búin eru í lagi.“ Hersteinn segir fyrsta árs bú framleiða lítið hunang. Á næsta ári reiknar hann með að vera með um það bil fimmtíu þúsund býflugur, jafnvel meira. Hann gefur þeim sykurvatn til að þær geti byggt upp vaxið í búunum. „Þú þarft að mata býflugur með sykurvatni svo þær geti byggt upp vaxið. Ef þú tekur hunang þarftu að gefa þeim sykurvatn. Við höfum fram­ leitt lítið af hunangi, það hefur aðallega farið í tækifærisgjafir og við höfum skipt á laxi og hunangi til dæmis.“ Býflugur Hersteins eru við Grafarholt. Eitt sinn var hann Búskapur var mikill í borginni á árunum 1930 til 1970. Aðkomufólk úr sveit kom með sauðfé, ræktaði kartöflur og matjurtir. Eftir því sem borgin hefur þróast síðustu áratugi hefur búskapurinn horfið. Nú er búfjárhald óheimilt í Reykjavík nema á örfáum stöðum þar sem sérstaklega er gert ráð fyrir því. En með aukinni vitund um umhverfi og sið­ ræna framleiðsluhætti er búskapur í sókn. Nú sækist fólk eftir því að fá að vera með sjálfsþurftarbúskap við heimili sín. Kindur finnast enn á höfuðborgarsvæð­ inu og margir eru með hesta í bakgarðinum í úthverfum borgarinnar. En í þéttari byggð heldur fólk  hænur og býflugur auk þess sem fjölbreytni í matjurtagörðum er orðin mun meiri. Bændur í borginni Sjálfsþurftarbúskapur þrífst vel innan borgarmarkanna. Á höfuð­ borgarsvæðinu færist í aukana að fólk haldi hænur við heimili sitt. Þá eru margir með bý flugna bú, blóm­ lega garð yrkju, hesta og kindur. Sóley Kristjánsdóttir, hænsnabóndi í Breiðholti Kemst í samband við jörðina Sóley Kristjánsdóttir er komin langt í hænubúskapnum. Hún hefur byggt hænum sínum myndarlegt búr í Breið­holti og nýtur þess að vera sjálfbær, rækta og endurnýta það sem fellur til af heimilinu. „Hænurnar komu í fyrrasumar. Ég las viðtal í blaði við bónda sem nefndi að fólk í borginni væri komið með hænur og þá kviknaði ljós. Ég er mikið í garðinum og er að rækta blóm, salöt, grænmeti og kryddjurtir þannig að þetta var einhvern veginn alveg eðlilegt framhald. Garðurinn nær mér á jörðina þar sem ég er snarofvirk stundum. Þar slaka ég á og kemst í samband við jörðina. Allt daglega stressið gleymist. Þetta er eiginlega eins og hugleiðsla. Sóley er með fjórar hænur, allar ólíkar. „Það er goggunar­ röð og ég veit alveg hvaðan það orð er komið. Ein er for­ inginn og étur fyrst og ef henni finnst eitthvað sérlega gott þá fá hinar ekki. Þær eiga ekki séns. Sú yngsta, Katla, er neðst í röðinni og hún þarf að bíða þar til hinar leyfa henni að komast að. Tvær þeirra eru styggar og tvær eru fremur gæfar og Freyja sem er foringinn leyfir mér stundum að taka sig upp.“ Sambúðin við nágranna gengur vel. „Ég spurði að sjálfsögðu um leyfi og þeim finnst þetta skemmtilegt og rómantískt. Garðurinn minn er samt afskekktur þannig að þeir verða fæstir varir við þær. Það heyrist yfirleitt ekki í þeim.“ Kostirnir eru margir og hún segir eggin mun betri en egg úr verksmiðjuhænum. „Hænur eru frábærar af því að þær gefa svo mikið til baka eða næstum egg á dag frá hverri. Þær njóta félagsskapar hver annarrar á meðan ég er í burtu. Svo eru þær skemmtilegar og hjálpa til að halda illgresinu niðri og sniglum í burtu. Þessi egg eru miklu betri en egg úr verk­ smiðjuhænum. Gulan er stærri og dekkri og hvítan er þétt í sér. Bragðmunurinn er mikill. Mínar hænur éta ósköp af grænmeti, eru í fersku lofti og undir berum himni og fá að ganga lausar í garðinum þegar ég er heima. Þá finna þær sér eigið æti að þeirra lyst. Ég borða aðallega egg um helgar og þá hlakka ég til að vakna og fá mér morgunmat. Mér finnst eggin best linsoðin eða spæld og svo er ég alltaf á leiðinni að læra að búa til majónes. Ég lærði að gera ís og hann er æðislegur til dæmis með döðlum, súkkulaði og trönuberjum. Svo í bakstur, það eru endalausir möguleikar með egg. Af því að eggin eru svo ný þá er skurnin föst utan á þeim ef þau eru soðin, þannig að yfirleitt sýð ég þau án skurnar og geri þau „poached“ eins og í Egg Benedict. Svo má ekki gleyma hinni aðalafurðinni sem er hinn ómetanlegi hænsnaskítur, besti áburður sem hægt er að hugsa sér og allt lífrænt! Mér finnst gott að vera dálítið sjálf­ bær og rækta og endurnýta það sem fellur til frá heimilinu.“ Hænurnar áttu til að strjúka þegar þær voru nýkomnar. „Það er ekki auðvelt að smala hænum en þó skárra þegar þær eru í hóp. Að smala einni skelkaðri hænu er eiginlega fyndið. Þær hlaupa svo hratt og aldrei í þá átt sem þú vilt.“ Sóley segir hænur auðveldar í umhirðu. Þeim þurfi hins veg­ ar að sinna daglega. „Ég held að þetta sé ekki fyrir alla, sumum vinum mínum finnst ég vera klikkuð. Þær þurfa að hafa hreint vatn og korn og það þarf að þrífa dallana og skítinn. Um vetur þurfa þær hlýjan og skjólgóðan kofa. Svo éta þær grænmetis­ afganga og fleira og elska að fara út í garð að róta.“ Hersteinn með býflugur úr einu búa sinna. Hann þarf að gefa þeim sykurvatn reglulega, svo þær lifi af íslenskan vetur og vor. Fréttablaðið/Anton Brink með búið í þéttari byggð. „Það var í lagi en maður getur lent í svermum sem getur farið fyrir brjóstið á nágrönnunum. Svermar eru meinlausir, býflugur stinga ekki þá. Maður er hins vegar stunginn stundum þegar maður gerir mistök í umgengni við flugurnar nálægt búinu, en ég læri í hvert skipti sem ég er stunginn og það skiptir ekki miklu máli.“ Hersteinn hefur gaman af því að prófa sig áfram í býflugna­ ræktinni. „Þegar gengur vel þá er gaman, þegar gengur illa þá vill maður vita af hverju og bæta úr því. Það er stúdían sem er svo heillandi.“ Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is 1 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r36 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.