Fréttablaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 42
Fólk| helgin
RósenbeRg
bReytist í
tötRakRá
Tónleikarnir verða
haldnir á mánu-
daginn og hefjast
klukkan 20.30.
tónleikarnir, sem Brynhildur heldur í félagi við píanóleikarann Aðalheiði Þorsteinsdóttur, verða
haldnir á Rosenberg við Klapparstíg.
Tilefnið er í senn sumarlok og haust-
koma. Í fyrri hlutanum verður haust-
inu sungið lof og tregi og flutt lög eftir
ýmsa höfunda. Í síðari hlutanum, sem
er tileinkaður tónlist Kurt Weill og
textum Bertolt Brecht, breytist staður-
inn í tötrakrá þar sem margsigld kona í
lífsins ólgusjó syngur um ævi og ástir á
hausti lífsins.
„Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi
tónlistar Kurt Weill og sérstaklega hrif-
in af þeirri tónlist sem hann samdi við
texta Bertolt Brecht. Ég hélt tónleika
tileinkaða þeim í vor í félagi við Aðal-
heiði, Sigtrygg Baldursson og Margréti
Erlu Maack. Eins og oft vill verða með
einstaka viðburði voru einhverjir sem
misstu af og ég ákvað því að endurtaka
leikinn. Þá var reyndar að koma sumar
og allir á ferðalagi. Weill samdi undur-
fallegt lag sem heitir Septembersong á
New York árum sínum og ég ákvað því
að miða á haustið,“ útskýrir Brynhild-
ur en að þessu sinni verða þær Aðal-
heiður aðeins tvær.
Þegar Brynhildur fór að fara í
saumana á frekari efnistökum rakst
hún á mörg lög sem tengjast þessari
árstíð. „Haustið er að mínu mati bæði
sjarmerandi og tregafullt. Þá hafa per-
sónurnar í lögum Kurt Weill í gegnum
tíðina oft verið að byrja haustið í lífi
sínu og sömuleiðis þær konur sem
eru til umfjöllunar í lögunum. Þær eru
flestar lífsreyndar og hafa átt misgott
líf. Þetta eru með öðrum orðum þrosk-
aðar konur og þar fannst mér komin
önnur hausttenging.“
Brynhildur segir tónlist Kurt Weill
einstaklega vel samda og texta Bertolt
Brecht bæði beitta og sársaukafulla,
en þeir eru til í íslenskum þýðingum
Þorsteins Gylfasonar. „Þó efnið sé nær
hundrað ára gamalt er ýmislegt sem
talar inn í samtímann og má til dæmis
nefna vændisumræðuna, enda margar
af persónunum sem um ræðir vændis-
konur að segja frá örlögum sínum. Það
verður því smá broddur í þessu. Það
má segja að þetta sé síðasta vespa
sumarsins,“ segir Brynhildur glettin.
Fyrir hlé munu þær Brynhildur
og Aðalheiður flytja lög eftir Joseph
Kosma, Cumulus og Tove Janson,
Sprengjuhöllina, Skálmöld og jafnvel
Earth Wind and Fire. „Ég er forfallinn
Skálmaldaraðdáandi og liður í undir-
búningnum verður að fara á tónleika
með þeim á Gauknum í kvöld en á
mánudag mun ég svo syngja mitt
uppáhalds
Skálmaldarlag
sem
heitir
ein-
mitt Að
hausti.
Ég
mun þó
ekki geta
sungið
það í upp-
runalegri
útgáfu
þar sem
það er ekki nógu
mikið af rafmagnsgít-
urum í hljóm-
sveitinni okkar
Aðalheiðar. Ég hef
ekki heldur náð
tökum á hinum
stórkostlega
söngstíl
Björg-
vins
Sigurðs-
sonar,
söngvara
hljómsveitar-
innar. Ég mun því syngja
lagið með mínu nefi og túlkun
en ég hef mjög gaman af því að breyta
samhengi hlutanna og sjá hvað gerist.
Þarna verða líka fleiri lög sem eru ekki
endilega hönnuð fyrir eina kvenmanns-
rödd og píanó en við ætlum samt að
prófa. Þá mun ég lauma inn litlum frá-
sögnum á milli atriða og vona að þetta
verði notaleg kvöldstund.“
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30.
n vera@365.is
haustinu sungið
lof og tRegi
septembeRsöngvaR Brynhildur Björnsdóttir er vön því að hafa mörg járn
í eldinum. Hún er bæði söngkona og leikkona en hefur síðustu ár að mestu
fengist við gerð barnaefnis og var um árabil annar umsjónarmaður Leyni
félagsins á RÚV. Hún heldur tónleika undir yfirskriftinni Septembersöngvar á
mánudag og undirbýr sig með því að fara á Skálmaldartónleika í kvöld.
fallegaR laglínuR og beittiR textaR Brynhildur hefur alltaf verið mikill aðdáandi kurt Weill. Síðari hluti tónleikanna verður
tileinkaður tónlist hans og textum Bertolt Brecht. Þá breytist Rosenberg í tötrakrá þar sem margsigld kona í lífsins ólgusjó syngur
um ævi og ástir á hausti lífsins. MYND/STEFÁN
Fæst í apótekum og heilsubúðum
w
w
w
.z
en
b
ev
.i
s
-
U
m
b
o
ð
:
vi
te
x
eh
f
Friðsælar
nætur
Streitulausir
dagar
Betri og dýpri svefn
Engin eftirköst eða ávanabinding
Vísindaleg sönnun á virkni
http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/16053244
http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/18066139
Melatónin
Náttúrulegt
Upplýsingasími 896 6949
og www.vitex.is
ZenBev Triptófan úr graskersfræjum
Upplýsingar www.SUPERBEETS.is vitex ehf - Upplýsingasími 896 6949
Betra blóðflæði
Íslensk vottun
á virkni NO3
Sýni rannsóknarstofa
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
NO. - 1. dós superbeets
jafngildir 30 flöskum
af 500 ml rauðrófusafa
Betri
heilsa
Fæst í apótekum og heilsubúðum
LAGERSALA
AÐEINS ÞESSA HELGI!
laugardag 11-17
og sunnudag 13-17.
Undirföt-Sundföt-
Náttföt-Sloppar..
Bláu húsunum við Faxafen.
Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466
LEIÐSÖGUNÁM
- Nemendur geta að námi loknu gengið í Leiðsögufélagið -
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum.
Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að
leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.
-Flest stéttarfélög styrkja neme dur til náms.
-Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu
Helstu námsgreinar:
- Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum.
- Mannleg samkipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga.
- Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
- Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðaverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði.
Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða.
Umsögn:
Leiðsögunámið í Ferðamálaskóla Íslands bætti miklu við þekkingu mína á
landinu sem og sögu og menningu þjóðarinnar. Þessir þættir voru ofnir saman
á einkar áhugaverðan og skemmtilegan hátt og kryddað margs konar fróðleik
og frásögnum. Auk þess spannaði námið allt frá leiðsögutækni til laxveiðáa,
frá skyndihjálp til skógræktar og frá hvalafræðum til hverasvæða svo nokkuð sé
nefnt. Skipulag námsins var sveiganlegt en með ákveðnu aðhaldi stjórnenda sem
skapaði gott andrúmsloft í þessum alþjóðlega hópi nemanda. Þessum tíma var
mjög vel varið hvort sem maður hyggur á ferðaleiðsögn eða ekki.
Ferða álaskóli Íslands • www. enntun.is • Sí i 567 1466
I
- Nemendur geta að námi loknu gengið í Leiðsögufélagið -
LEIÐSÖGUNÁM
VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU
Opið 8-22
Magnús Jónsson
fv. veðurstofustjóri
Umsögn:
S.l. vetur stundaði ég leiðsögunám í Ferðamálaskóla Íslands. Námið stóð
vel u dir væntingum þar sem fjölmargir ke ar komu að kennslun i og
áttu þeir a ðvelt með að ná til mín og auka áhuga minn á námsefninu og
ekki síst að vekja mig til umhugsu ar um þá auðlind sem la dið okkar er
og þá virðingu sem okkur ber að sýna því. Kennararnir voru mjög færir og
fróðir hver á sínu sviði og áttu auðv lt með að koma efninu ti skila.
Námi efur mikla atvinnumöguleika og spennandi tí r eru framundan.
Guðrún Helga
Bjarnadóttir,
Vestmannaeyjum