Fréttablaðið - 19.09.2015, Side 32

Fréttablaðið - 19.09.2015, Side 32
„Það var fyrsta ákvörðunin sem ég tók og hún var mjög góð,“ segir Jón. Samningurinn var til sex ára og skítalaun að hans sögn. „Þetta var týpískur samningur fyrir unga punga. Þú bara sendir þeim eitthvað,“ rifjar Jón Arnór upp. Í kjölfarið barst betra tilboð en Jóni leist ekki á blikuna. Smærra félag, Trier, falaðist einnig eftir kröftum Jóns sem samdi við félagið til eins árs. „Það var planið. Sanna sig og fara annað. Liðið var lakara en fyrir vikið fékk ég miklu meiri spilatíma.“ Missti aldrei svefn yfir NBA Óhætt er að segja að Jón Arnór hafi sannað sig á sínu fyrsta ári í atvinnu- mennsku. „Þú veist aldrei hver er að horfa,“ segir Jón Arnór. Fulltrúar NBA-liðsins Dallas Mavericks heilluðust af fram- göngu Jóns Arnórs og úr varð að hann hélt til Texas sumarið 2004. Jón spilaði með Dallas í sumar- deildinni þar sem leikmenn reyna að sanna að þeir séu verðugir fyrir aðal- deildina um veturinn. Í framhaldinu fór á annan tug leikmanna í prufur þar sem niðurskurðurinn var ekki ósvipaður og í keppnum á borð við American Idol. Hið ótrúlega gerðist, frá sjónarhorni litla Íslands í það minnsta. Jón Arnór fékk fimm ára samning hjá Dallas. „Þegar maður hugsar aftur þá var þetta auðvitað svaka mikið. Ég tók þessu samt með stóískri ró og missti aldrei svefn. Þetta var eitthvað sem maður ætlaði sér og sá fyrir sér. Svo gerðist það.“ Hann viðurkennir þó að honum hafi fundist aðeins óraunverulegt þegar hann mætti í klefann með stjörnunum í liði Dallas. „Það var ákveðið Bítlamóment. Vá, þetta eru svakastjörnur. En svo var það farið.“ Mikil vonbrigði í Dallas Landsliðsmaðurinn þakkar fyrir að stjörnurnar í liðinu, Dirk Nowitzki og Steve Nash, voru jarðbundnir persónuleikar eins og Jón lýsir þeim. Jón varði töluverðum tíma með þeim auk Mexíkóans Eduardo Nájera. Aðspurður hvort Nowitzki og Nash hafi verið nálægt því að komast á boðskortið fyrir brúðkaupið hans og Lilju Bjarkar Guðmundsdóttur í sumar hlær Jón. „Maður verður að heyra í mönnum allavega síðustu tíu ár til að þeir kom- ist á listann!“ Annars hafi flest verið frekar ópersónu legt og um harðan heim að ræða í Dallas. „Allir eru að hugsa um rassgatið á sjálfum sér. Margir búnir að vera í deildinni í mörg ár,“ segir Jón. Hann hafi þó lært mjög mikið af því að umgangast leikmennina. Á æfingum var hart barist en lítið um hittinga utan þeirra eins og Jón átti eftir að venjast síðar í Evrópu. Þrátt fyrir margt jákvætt voru mikil vonbrigði að fá aldrei tækifærið með aðalliðinu um veturinn. „Mér var samt sagt að ég fengi ekki að klæðast treyjunni fyrsta árið,“ segir Jón. Engu að síður var tímabilið langt og minnir landsliðsmaðurinn á að hann er keppnismaður. „Það var pirrandi. Alveg sama hvað ég stóð mig vel á æfingu og átti fullt erindi á völlinn fékk ég ekki tækifæri. Ég æfði eins og rotta, lyfti á fullu og var líklega í mínu besta formi nokkru sinni.“ Svo varð Jóni ljóst að tækifærið kæmi aldrei. Skítakuldi í Rússlandi Jón Arnór var á fimm ára samningi hjá Dallas og þurfti vafalítið hug- rekki til að stíga út úr NBA-deildinni. Þótt Jón Arnór væri ekki að spila þá hugsaði Dallas hann til framtíðar. Þrátt fyrir allt var hann aðeins tví- tugur fyrsta og eina árið í NBA og til samanburðar eru nýliðar sem koma úr háskólaboltanum 22 ára. Það skipti ekki máli. Jón vildi spila. „Ég fékk tilboð frá Rússlandi sem var spennandi svo ég spáði ekk- ert meira í það,“ segir Jón Arnór sem samdi við glænýtt rússneskt félag, Dynamo St. Pétursborg. Stökkið yfir til Rússlands var hins vegar risastökk. „Þetta var algjör U-beygja. Á meðan allt var til alls hjá Dallas átti félagið í Rússlandi ekki einu sinni íþróttasal. En þeir byggðu hann bara,“ segir Jón Arnór hlæjandi. Eigandinn átti sand af seðlum en á meðan salurinn var í byggingu flökkuðu Pétursborgarliðar um Evrópu, æfðu og spiluðu æfingaleiki. Við tók rúss- neskur vetur sem var ískaldur og harður. Jón segir þetta eina ár í Rúss- landi hafa kennt sér mikið. Hann lenti hjá færum þjálfara og spilaði stórt hlutverk með hörkuliði. Það hafi hjálpað honum í gegnum allt það sem upp á vantaði utan vallar. Liðið vann Evrópudeildina og komst Það er vandræðalegt hvað ég á lítið eftir af stúdentsprófinu. ég ætla mér að klára Þetta og halda massa stúdentsveislu, með húfu og allt. Jón Arnór klæddist treyju Dallas á sumrin en fékk aldrei stóra tækifærið. Jón vann Evrópudeildina með Dynamo St. Pétursborg. Mættur til Dallas með Benedikt Guðmundssyni, þjálfara sínum. Með þeim á myndinni eru Mavericks-feðgarnir Don og Donnie Nelson. Ökklameiðslin með landsliðinu 2006. Mynd/Gunnar Freyr Steinsson Atvinnumannsferillinn 2002-2003 TBB Trier Þýskaland 2003-2004 Dallas Mavericks Bandaríkin 2004-2005 Dynamo Saint Pet- ersburg Rússland 2005-2006 Carpisa Napoli Ítalía 2006-2007 Pamesa Valencia Spánn 2007-2008 Lottomatica Roma Ítalía 2008-2009 KR Ísland 2009 Benetton Treviso Ítalía 2009-2011 CB Granada 2011-2014 CAI Zaragoza Spánn 2014-2015 Unicaja Spánn 2015- Valencia Basket Spánn Okkar maður einbeittur á EM í Berlín. Leiðtoginn í kunnug- legum stellingum í Róm. í úrslit í rússnesku deildinni. Hugur- inn var samt að miklu leyti bundinn við Bandaríkin. „Það var alltaf planið að fara aftur í NBA,“ segir Jón Arnór og unnu umboðsmenn hans í því. Honum bauðst lengri dvöl í Pétursborg en Jón Arnór gat ekki hugsað sér að vera annað ár í kuldanum. Gott tilboð barst frá Napólí. „Það var svipað og Rússadæmið. Nýr þjálfari og þeir settu svaka- legan pening í að búa til hörkulið sem tókst,“ segir Jón Arnór sem var í svipuðu og stóru hlutverki. Liðinu gekk vel og varð meðal annars bikar- meistari. Kunni ekki að segja nei Segja má að ferill Jóns Arnórs í Evr- ópu hafi verið afar farsæll. Hann lék stórt hlutverk hjá átta af níu félögum sem hann var á mála hjá. Einu von- brigðin voru hálfa árið hjá Valencia BC, sama félagi og Jón samdi við á dögunum, en dramatískt augnablik í leik með landsliði Íslands hafði mikið um það að segja. Jón Arnór hafði samið við spænska félagið til þriggja ára, var á fullu á undirbún- ingstímabilinu með liðinu en flaug heim í landsleiki sem voru í gangi yfir sumarið. „Þeir voru ekki sáttir við að ég væri að taka þátt í landsliðinu yfirhöfuð. Þess vegna var enn verra að ég meidd- ist,“ segir Jón Arnór sem reif liðband í vöðva í leik gegn Lúxemborg. „Ég hefði ekkert átt að vera að taka þátt í þessu,“ segir Jón Arnór sem langaði að spila fyrir landsliðið og verja nokkr- um dögum á Íslandi. Hann sneri því til Spánar meiddur og í hvert skipti sem hann sneri aftur til leiks meidd- ist hann. Í tvígang reif hann vöðva og auk þess var þjálfarinn sem falaðist eftir kröftum Jóns rekinn. „Þetta var erfitt tímabil og stöðug pressa á mig að ná mér af meiðsl- unum,“ segir Jón. Reynsluleysi í þeim efnum hafi orðið honum að falli. „Mig vantaði reynsluna að segja nei,“ segir Jón sem telur að hann hefði þurft að fá lengri hvíld til að jafna sig, þó það væri ekki nema aukavika. Úr varð að körfuboltaliðið í Róm á Ítalíu óskaði eftir kröftum Jóns Arnórs sem sneri aftur í ítalska boltann. Ætlar að fagna stúdentinum með stæl Jón lauk tveimur tímabilum á Ítalíu, sneri heim og varð Íslandsmeistari með KR vorið 2009, áður en hann spilaði lokamánuðinn af ítölsku deildinni með Benetton Treviso. Hann samdi svo við CB Granada á Spáni. Þar í landi hefur hann spilað síðan með fjórum liðum að meðtal- inni endurkomunni til Valencia. Þar dvelur hann á hóteli þessa dagana en hann flaug í gegnum læknisskoðun í vikunni. Hvort eiginkonan Lilja Björk flytji út með börnin þeirra segir Jón alveg óráðið. „Ég rauk út svo fljótt að við náðum eiginlega ekki að setjast niður og tala um þetta,“ segir Jón Arnór. Lilja er lögfræðimenntuð og möguleiki er á að hún fari á nám- skeið til héraðsdómslögmanns úti í Valencia. Þau þrjú flytji þó örugg- lega ekki strax. „Þetta er svo stuttur tími og vesen að flytja alla út þegar maður veit ekki með framhaldið. Við þurfum að skoða þetta betur en vonandi koma þau sem fyrst í heimsókn.“ Líf atvinnumannsins getur verið ljúft en sömuleiðis einmanalegt. Frí- tími utan æfinga og leikja er mikill. Margir atvinnumenn í íþróttum spila golf og tölvuleiki. Þannig mætti lýsa hinum hefðbundna atvinnumanni. Jón gengst við því fyrra en ekki hinu síðara. „Ég eyði núll tímum í tölvuleiki og hef aldrei verið mikið fyrir þá,“ segir Jón Arnór. Í ljós kemur að hann er mikill lestrarhestur og sömuleiðis mikill áhugamaður um tónlist. Hann hefur einnig fetað sig stöðugt í átt að langþráðu markmiði, stúdentspróf- inu, sem flestir vinir hans luku fyrir fimmtán árum. Hann hefur verið utanskóla í Fjölbraut í Ármúla og tekið þar nokkra kúrsa. „Það er vandræðalegt hvað ég á lítið eftir. Ég ætla mér að klára þetta og halda massa stúdentsveislu, með húfu og allt,“ segir Jón Arnór og hlær. Hann segist hafa rætt þetta töluvert við Pavel Ermolinskij, félaga sinn úr íslenska landsliðinu, en saman reka þeir Kjöt og fisk við Bergstaðastræti. Pavel á sömuleiðis eftir að ljúka stúd- entinum. „Við höldum sameiginlega veislu. Ætli ég verði ekki orðinn fertugur.“ Lilja kletturinn í lífi Jóns Jón Arnór og Lilja gengu í það heilaga í sumar. Hann segir líf sitt hafa tekið miklum breytingum til hins betra eftir að hann kynntist henni. „Þegar maður var einn var maður mikið á klúbbum með strákunum sem fylgir þessu,“ segir Jón Arnór. Mikill tími og orka hafi farið í að stunda skemmtistaðina, fara út að borða en það hafi minnkað. Hann sé mun rólegri í tíðinni nú og hafi þroskast. „Maður er búinn að gleyma gamla tímanum, hann skiptir mann engu máli. Það er fjölskyldan sem gefur líf- inu gildi,“ segir Jón Arnór sem segir nærveru konu sinnar og barna veita sér mikinn styrk og stuðning. „Lilja er alltaf minn klettur. Ég get grátið á öxlinni á henni þegar illa gengur og hún peppar mig upp. Eftir að við byrjuðum saman hefur þetta verið lúxuslíf. Það er ástæðan fyrir því að ég er búinn að gleyma hinu og sé ekkert annað.“ Með fjögurra ára son og tveggja ára dóttur er nóg að gera á heimilinu í dag þegar Jón Arnór er ekki með körfu- bolta í hendi. „Nú plana ég daginn í kringum krakkana og reyni að létta á Lilju því hún er alltaf með börnin.“ ↣ Fréttablaðið/Valli 1 9 . S e P T e M B e R 2 0 1 5 L A U G A R D A G U R32 H e L G I N ∙ F R É T T A B L A ð I ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.