Fréttablaðið - 19.09.2015, Side 41
|Fólkhelgin
Í Steinari Waage er að finna mikið
úrval af kulda
skóm á börn og
unglinga. „Við
erum til dæmis
með danska
gæðamerkið
Ecco sem hefur
reynst afar vel,“
segir Nína Þórarinsdóttir, inn
kaupastjóri hjá Steinari Waage.
Hún segir kulda skó frá þessu
merki vera flesta með GoreTex
en að öðru leyti sé fjölbreytnin
mikil í útliti og sólum. Hún bend
ir á að í Biomlínunni frá Ecco
séu svokallaðir natural motion
skór. „Það þýðir að þeir eru betri
fyrir þroska fóta og börn þreyt
ast síður í hnjám og baki.“
Fjölbreytt úrval
Viking kuldastígvélin eru einn
ig afar vinsæl enda hafa þau
sannað sig í gegnum tíðina, þykja
bæði þægileg og endingargóð.
Önnur merki sem Steinar Waage
selur vel af á haustin eru venju
legir og vatnsheldir skór frá
Hummel. „Við seljum líka mikið
af Nike en fólk hefur einnig verið
að kaupa þá sem innanhúss
íþróttaskó fyrir skólann,“ segir
Nína. Hún nefnir einnig skó af
ítalska merkinu Melania. „Þetta
eru afar fallegir og endingargóðir
leðurskór á hagstæðu verði.“
Nína segir foreldra leggja
mikla áherslu á að skórnir séu
vandaðir. „Þá er afar mikið atriði
á þessum árstíma að skórnir séu
vatnsheldir,“ segir Nína en nú
þegar er mikill straumur í versl
unina af fólki sem vill kaupa skó
á börnin sín fyrir veturinn.
Stærðin Skiptir miklu
Nína segir miklu máli skipta
hvernig skór eru valdir á börn.
„Áríðandi er að velja rétta stærð.
Fólki hættir til að kaupa of stóra
skó til að auka endinguna en
hins vegar geta of stórir skór
bæði verið óþægilegir og svo
skemmast þeir líka fyrr,“ útskýrir
hún. Starfsfólk Steinars Waage
aðstoðar fólk við að finna rétta
stærð enda eru stærðir ólíkar
eftir merkjum.
Nína bendir á að fólk úti á
landi geti fengið skóna senda
til sín. „Þá erum við með mjög
góða vefsíðu, www.skor.is, þar
sem hægt er að skoða úrvalið,
kaupa og láta senda. En svo er
líka velkomið að hringja í okkur
og spyrja, við tökum alltaf vel á
móti öllum fyrirspurnum.“
vel Skóuð Í Skólann
Steinar Waage kynnir Haustið nálgast óðfluga. Börnin eru sest á skólabekk að nýju og kætast í frímínútum
í góðu jafnt sem slæmu veðri. Þá er gott að vera vel búinn til fótanna, til dæmis í vatnsþéttum kuldaskóm frá
Ecco eða kuldastígvélum frá Viking. Þessi merki ásamt fleirum fást í Steinari Waage í Smáralind og Kringlunni.
ecco biom hike inFant St 21-28
kr. 14.995
ecco biom hike kidS St. 30-35 kr.
16.995ecco biom lite inFantS St. 19-24 kr. 12.995
ecco SnoWboarder St. 27-35 kr. 15.995
ecco biom trail kidS St. 27-35 kr. 15.995
ecco caden St. 33-40 kr. 17.995
anguro Skórnir eru alveg Frábærir úr nautSterku leðri
St. Frá 36-46 og koSta 17.995
viking FroSt StÍgvél St. 21-39 kr. 8.995
melania kuldaSkór úr leðri St. 23-32 kr. 9.995
nÍna
ÞórarinSdóttir
innkaupaStjóri.
Facebookleikur
SteinarS Waage
Viltu fá skóna þína
endurgreidda?
• Taktu mynd af þér í nýju
skónum þínum.
• Póstaðu henni á Face
booksíðu Steinars
Waage.
• Merktu myndina
#SteinarWaageHaust.
• Fáðu alla til að likea
þína mynd.
Myndin sem fær flest
atkvæði vinnur!