Fréttablaðið - 19.09.2015, Qupperneq 54
| AtvinnA | 19. september 2015 LAUGARDAGUR10
Deildarstjóri
tæknideildar
Borgarnes
Starf deildarstjóra tæknideildar Vegagerðarinnar
á Vestursvæði er laust til umsóknar.
Um 100% starf er að ræða.
Starfssvið
Stjórnun á áætlanagerð, undirbúningi og framkvæmd
verka á sviði viðhalds- og nýframkvæmda á Vestursvæði.
Yfirumsjón með með stofn-, tengi- og héraðsvegum,
efnisvinnslu, frágangi náma, yfirlögnum og styrkingum
bundinna slitlaga, brúm, varnargörðum og umferðarör-
yggisaðgerðum ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Verk- eða tæknifræðingur
• Stjórnunarreynsla er æskileg
• Góð íslenskukunnátta
• Góð tölvukunnátta
• Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt
• Góðir samstarfhæfileikar
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem
hentar báðum kynjum og í samræmi við jafnréttisáætlun
Vegagerðarinnar eru konur með umbeðnar hæfniskröfur
sérstaklega hvattar til að sækja um starfið
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins við
viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til 5. október 2015.
Umsóknin berist mannauðsstjóra Vegagerðarinnar
netfang oth@vegagerdin.is. Í umsókninni komi fram
persónulegar upplýsingar ásamt starfsferilskrá og upp-
lýsingum um þá menntun og hæfni sem óskað er eftir.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingvi Árnason
svæðisstjóri í síma 522 1510
Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is | facebook.com/VIB.stofan | @vibstofan | www.vib.is
Hlutverk Fjárfestinga VÍB er að ávaxta fjármuni viðskiptavina með eignastýringarsamning
við VÍB. Viðskiptavinir Fjárfestinga VÍB eru lífeyrissjóðir, opinberir aðilar, sjóðir, tryggingafélög,
fjársterkir einstaklingar og félagasamtök.
Nánari upplýsingar veitir Halldóra Skúladóttir, forstöðumaður Fjárfestinga VÍB, í síma
844 4972 eða á halldora.skuladottir@vib.is.
Umsóknir óskast fylltar út á www.islandsbanki.is og sendar ásamt ítarlegri ferilskrá.
Tengiliður á mannauðssviði er Sigrún Ólafsdóttir, sigrun.olafs@islandsbanki.is, sími
440 4172. Umsóknarfrestur er til og með 27. september nk.
Sérfræðingur hjá
Fjárfestingum VÍB
Starfssvið:
» Greining markaða og fjárfestingakosta
» Ákvarðanir um fjárfestingar
» Þróun á nýjum vörum og þjónustu
» Þjónusta og ráðgjöf við viðskiptavini
» Önnur verkefni eftir nánara samkomulagi
Hæfniskröfur:
» Reynsla og þekking á fjármálamarkaði
» Háskólamenntun sem nýtist í starfi
» Próf í verðbréfaviðskiptum æskilegt
» Hæfni í mannlegum samskiptum
» Gott vald á íslensku og ensku
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
0
9
0
4
Fjárfestingar VÍB óska eftir að ráða sérfræðing í fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Húsvörður – Staðarhaldari
Húsfélagið að Löngulínu 2 í Garðabæ vill ráða húsvörð -
staðarhaldara í hlutastarf (30-35%) auk nokkurra
auka verka eftir samkomulagi.
Verkefni staðarhaldara eru almenn þrif á sameign,
umhirða um lóð, bílastæði og bílageymslu auk minniháttar
viðhalds og endurbóta.
Staðarhaldari þarf að vera laghentur og útsjónarsamur
og hafa auga fyrir því sem betur má fara. Í húsinu eru 48
íbúðir í þremur stigagöngum ásamt bílageymslu.
Skriflegar umsóknir berist:
Eignaumsjón hf. Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík eða
starfsumsokn@eignaumsjon.is Umsóknarfrestur er til og
með 23. september 2015.
- VILT ÞÚ VINNA Í SKEMMTILEGU OG LIFANDI UMHVERFI?
- VILT ÞÚ FÁ BEINAN ÁVINNING AF VEL UNNU STARFI?
- ERTU GÓÐ SÖLUMANNESKJA?
ÁHUGASÖMUM ER BENT Á AÐ SENDA UMSÓKN TIL ASTA.FRIDRIKSDOTTIR@SPORTSDIRECT.COM
EÐA KOMA Í VERSLUN OKKAR AÐ LINDUM, SKÓGARLIND 2, KÓPAVOGI.
SPORTS DIRECT LEITAR AÐ STARFSFÓLKI VIÐ AFGREIÐSLUSTÖRF
Í VERSLUN SÍNA Í LINDUM, KÓPAVOGI.
VINNUTÍMI ER EFTIR SAMKOMULAGI EN ER Í SAMRÆMI
VIÐ OPNUNARTÍMA VERSLUNARINNAR.
SANNGJÖRN LAUN Í BOÐI OG VEGLEGIR SÖLUBÓNUSAR.
HÆFNISKRÖFUR:
ÞJÓNUSTULUND
STUNDVÍSI
SKIPULAGNI
SAMSKIPTAHÆFNI
Leiðandi fyritæki á innréttinga-
markaði óskar eftir hönnuðum
í tímabundin verkefni.
Helstu verkefni eru hönnun eldhúsinnréttinga
fyrir einstaklinga og verktaka.
Umsóknir með upplýsingum um umsækjendur
skal senda fyrir þriðjudaginn 22.09.2015.
á box@frett.is
Öllum umsóknum verður svarað.
SMIÐIR ÓSKAST
Gluggar og Garðhús hf. óskar eftir að ráða vana
smiði í fullt starf við smíðar og uppsetningar.
Vinsamlega sendið inn umsókn á
gluggar@solskalar.is