Fréttablaðið - 19.09.2015, Síða 59
| AtvinnA | LAUGARDAGUR 19. september 2015 15
Fyrirtækjaráðgjöf
Íslandsbanka
Nánari upplýsingar:
Atli Rafn Björnsson, Fyrirtækjaráðgjöf, 440 4739
atli.rafn.bjornsson@islandsbanki.is
Berglind Ósk Þormar, Mannauðssviði, 440 4232
berglind.thormar@islandsbanki.is
Vegna fjölda verkefna leitum við að kraftmiklum liðsmanni í hópinn. Fyrirtækjaráðgjöf gegnir leiðandi
hlutverki við mótun og uppbyggingu íslensks fjármála markaðar. Deildin veitir einnig ráðgjöf við skrán
ingu fyrirtækja á markað, skuldabréfaútboð, hlutafjárútboð og yfirtökutilboð á félögum. Þar að auki
veitir deildin ráðgjöf í tengslum við kaup, sölu og endurskipulagningu á fyrirtækjum. Flest stærstu
fyrirtæki landsins eru í viðskiptavinahópi Fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka.
Umsóknir óskast fylltar út á www.islandsbanki.is
og sendar ásamt ítarlegri ferilskrá.
Umsóknarfrestur er til og með 4. október
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Starfsreynsla af fjármálamarkaði æskileg
• Þekking og skilningur á reikningshaldi og lestri ársreikninga
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Gott vald á íslensku og ensku í mæltu og rituðu máli
Helstu verkefni:
• Verðmat og greining á fyrirtækjum
• Gerð kynningargagna
• Kynning og rökstuðningur greiningarefnis
• Samskipti við viðskiptavini
Við bjóðum góða þjónustu. Hjá Íslandsbanka starfa um 950 starfsmenn. Við sækjumst eftir starfsfólki sem er jákvætt, faglegt
og framsýnt og leitar ávallt bestu lausna fyrir viðskiptavini bankans. Framtíðarsýn Íslandsbanka er að vera númer eitt í þjónustu.
Hvað segir fólkið okkar? Sjáðu hvað starfsfólk hefur að segja um vinnustaðinn: islandsbanki.is > Um Íslandsbanka > Vinnustaðurinn
Sérfræðingur
Heilsustofnun NLFÍ óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra rekstrar. Viðkomandi heyrir undir
forstjóra í nánu samstarfi við stjórn. Mikill kostur að viðkomandi sé eða verði búsettur á
svæðinu. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar veitir:
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Upplýsingar um störfin og kröfur
til umsækjenda eru á heimasíðum
Hagvangs www.hagvangur.is
og Heilsustofnunar NLFÍ
www.heilsustofnun.is
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 28. september nk.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Framkvæmdastjóri rekstrar
Starfssvið:
• Dagleg fjármálastjórnun
• Fjárhagsleg greining og eftirlit
• Samskipti við fjármálaumhverfið
• Yfirumsjón með gerð áætlana
• Rekstraruppgjör
• Skýrslugerð til stjórnar og framkvæmdastjórnar
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun í viðskiptafræði eða skyldum greinum
• Reynsla af rekstri, fjármálastjórnun og rekstraruppgjöri
• Sjálfstæði í vinnubrögðum, framsýni og mikill metnaður
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, framsögu og rituðu máli
• Góð tungumálakunnátta, a.m.k í ensku
• Þekking í stefnumótun og markaðsmálum er kostur
Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands tók til starfa árið 1955 og hefur frá upphafi verið brautryðjandi
í heilsueflingu, fræðslu og fyrirbyggjandi nálgun í heilsufari landsmanna. Í dag byggist starfsemin á
sérhæfðri læknisfræðilegri endurhæfingu sem snýst um að meðhöndla sjúkdóma og slys heildrænt.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
www.hagvangur.is