Fréttablaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 62
| ATVINNA | 19. september 2015 LAUGARDAGUR18
Vegna fjölda spennandi verkefna framundan óska THG arkitektar eftir að
ráða hugmyndaríka arkitekta.
Umsækjendur þurfa að geta unnið sjálfstætt og í samvinnu við aðra og
hafa metnað til að takast á við krefjandi verkefni. Jákvætt viðmót,
þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum eru mikilvægir
eiginleikar og viðkomandi þarf að hafa reynslu af hönnunarvinnu og
þrívíddarvinnslu.
Umsóknum fylgi náms- og starfsferilsskrá ásamt afriti af prófskírteinum.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum svarað.
Við leitum að
sprækum
ARK I TEKTUM
Upplýsingar um THG arkitekta - www.thg.is
Umsóknir sendist fyrir 4. október á netfangið: ella@thg.is
Byggiðn – Félag byggingamanna óskar eftir
mælingamanni í fullt starf. Starfið felst í að fara á
vinnustaði, magntaka verk trésmiða og reikna út.
HÆFNISKRÖFUR:
> Sveinspróf í húsasmíði
> Góð alhliða tölvukunnátta
> Góðir samskiptahæfileikar
> Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
> Kostur að umsækjandi hafi reynslu við að
vinna í uppmælingakerfi
Umsóknarfrestur er til og með 28. september nk. og skulu
umsóknir berast á netfangið finnbjorn@byggidn.is eða
í pósti á Byggiðn – Félag byggingamanna, Borgartúni 30,
105 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað og
umsækjendum tilkynnt um málalok þegar ákvörðun
hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir formaður félagsins,
Finnbjörn A. Hermannsson í síma 535-6006.
Byggiðn – Félag byggingamanna er
stéttafélag faglærðra byggingamanna og
málsvari þeirra og samningsaðili um kaup
og kjör á vinnumarkaði. Byggiðn varð til við
sameiningu Trésmiðafélags Reykjavíkur og
Félags Byggingamanna, Eyjafirði árið 2008.
Málsvari byggingamanna
STARFSMAÐUR VIÐ
UPPMÆLINGAKERFI
HÚSASMIÐA
MARÍUHÚS ÓSKAR EFTIR STARFSMANNI Í
80% STARF VIÐ ALMENN HEIMILISSTÖRF
Maríuhús er dagþjálfun fyrir 20 einstaklinga með heilabilun.
Umönnun og þjálfun skjólstæðinga Maríuhúss er byggð á hug-
myndafræði Tom Kitwoods þar sem einstaklingurinn er ávallt í
öndvegi. Með opnum samskiptum og þverfaglegri samvinnu
leggjum við áherslu á vellíðan og gleði í öllum okkar störfum.
Starfið sem um ræðir felst í almennum húsverkum, m.a. að reiða
fram aðkeyptan hádegismat, útbúa síðdegiskaffi, almennri tiltekt
og léttari þrifum.
Mikilvægt er að skjólstæðingar okkar fái möguleika á að taka
virkan þátt í heimilisstörfum og því þarf viðkomandi starfsmaður
að hafa persónulega færni og ríkan vilja til samvinnu og umhyggju.
Starfsmaðurinn sem við leitum að verður hluti af teymi hússins sem
saman vinnur að endanlegulegu markmiði Maríuhúss, sem er að
auka vellíðan skjólstæðinga okkar .
Vinnutími er frá 8:30 til 15:00 alla virka daga. Staðan er laus frá
1. nóvember n.k. eða eftir nánara samkomulagi
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum.
Nánari upplýsingar veitir Ólína Kristín Jónsdóttir, forstöðumaður
í síma 534 7100 og á netfanginu olina@alzheimer.is
Umsóknir sendist til forstöðumanns Maríuhúss, Blesugróf 27,
108 Reykjavík fyrir 27. september 2015
LÆKNARITARAR
Samtök um áhugafólks um áfengis og vímuefnavandann
auglýsa eftirtaldar stöður á Sjúkrahúsinu Vogi lausar til
umsóknar:
Löggiltur læknaritari
Deildarritari
Upplýsingar gefur Þórarinn Tyrfingsson forstjóri
Meðferðarsviðs SÁÁ sími 824 7600, eða netfang:
thorarinn@saa.is
Umsóknir berist SÁÁ, Stórhöfða 45, 110 Reykjavík
í síðasta lagi 1. október nk.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
7
0
9
4
0
Samskip eru flutningafyrirtæki með starfsstöðvar víða um heim. Starfsfólk Samskipa býður viðskiptavinum
faglega ráðgjöf og heildarlausnir á sviði flutninga- og flutninga-tengdrar þjónustu. Við höfum á að skipa
fjölbreyttum hópi starfsfólks sem vinnur ávallt með frumkvæði, samheldni og þekkingu að leiðarljósi.
Við leggjum áherslu á markvisst fræðslustarf og tækifæri til starfsþróunar. Öryggis- og heilbrigðismál
starfsfólks eru í fyrirrúmi og bjóðum við upp á fyrirmyndar vinnuaðstöðu.
Umsóknarfrestur er til og með 27. september n.k.
Umsóknir skulu fylltar út á www.samskip.is
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn ítarlegri
ferilskrá ásamt greinagóðu kynningarbréfi sem tilgreinir
á skilmerkilegan hátt hvernig umsækjandi uppfyllir kröfur um
menntun, reynslu, hæfni og eiginleika.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Rúnar Sigurðsson í póst-
fanginu runar.sigurdsson@samskip.com
Starfssvið:
• Ábyrgð og umsjón með rekstri og stjórnun Ísheima
• Áætlanagerð og kostnaðareftirlit
• Þjónusta við viðskiptavini
• Þróun nýrra þjónustuþátta
Menntunar og hæfnikröfur:
• Menntun í viðskipta- rekstrarfræði eða önnur
háskólamenntun sem nýtist í starfið
• Haldbær reynsla af rekstri og stjórnun
• Þekking á sjávarútvegi og/eða reynsla af
vöruhúsrekstri er kostur
• Góð Íslensku- og enskukunnátta
• Góð almenn tölvuþekking ásamt sérstakri
færni í vinnu með Excel
Æskilegir eiginleikar:
• Skipulagshæfileikar
• Nákvæm og öguð vinnubrögð
• Þjónustulund, sjálfstæð vinnubrögð
• Afburða samskiptahæfni og jákvætt viðmót
• Metnaður til að ná árangri í starfi
> Rekstrarstjóri frystigeymslu Samskipa - Ísheimum
Samskip leita að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi til að stýra rekstri frystivörugeymslu
Samskipa – Ísheimum. Rekstrarstjóri Ísheima mun sjá um rekstur og stjórnun Ísheima ásamt samskiptum
og þjónustu við viðskiptavini.