Fréttablaðið - 19.09.2015, Qupperneq 98
Bragi Halldórsson
166
„Þar fór í ver,“ sagði Konráð. „Okkur liggur á en þurfum að komast í
gegnum þetta völundarhús fyrst.“ Hann dæsti og bætti við vonsvikinn,
„við verðum of sein.“
Getur þú hjálpað félögunum að komast í gegnum þetta völundarhús?
Amelía bakar mikið með mömmu
sinni, Lilju Katrínu Gunnarsdótt-
ur, en henni finnst skemmtilegast
að skreyta kökurnar. Henni finnst
skemmtilegast að baka kökur með
hvítu súkkulaði. „Ég fæ ekki að
baka ein en um daginn fékk ég að
setja krem á möffins með kökusp-
rautu alveg sjálf,“ segir Amelía
sem fær stundum að smakka
áður en kakan er tilbúin. „Ég fæ
að sleikja sleifina og það sem er
hrært með.“ Amelía hefur líka
smakkað kökur í öðrum löndum.
„Já, í Taílandi. Þar voru til grænar
Manchester United kökur með
kremi,“ segir hún.
Amelía lætur fylgja með upp-
skrift að aðeins öðruvísi Rice
Krispies kökum sem hún bakaði
með mömmu sinni um daginn.
Ljómandi góðar og einfaldar.
Finnst skemmtilegast að baka
kökur með hvítu súkkulaði
Amelía deilir uppskrift að Mars Krispies kökum.
Amelíu finnst skemmtilegt að baka og
hún fær oft að smakka deigið.
Esja María Steindórsdóttir verður
fimm ára í nóvember. Hún æfir
fimleika og Páll Óskar er uppá-
haldssöngvarinn hennar.
Ertu í leikskóla? Já, ég er á
Laufásborg sem er alveg eins
og kastali í laginu, ég er á eldri
stúlkna kjarna. Ég er sko alveg
að verða fimm ára áður en jólin
koma.
Hvað er skemmtilegast í leik-
skólanum? Sko, þegar einhver
á afmæli þá er skemmtilegast.
Þá eru 100 kökur í boði en samt
bara ein á mann.
Hver er uppáhaldssöngvarinn
þinn? Páll Óskar af því ég elska
hann.
Áttu gæludýr? Já, tvo hunda. Ein
heitir Stella, hún býr hjá ömmu
Boggu og afa Snorra, hin heitir
Fífa og býr hjá Önnu Maríu og
Tinnu frænkum mínum. Svo á
ég kött sem býr hjá Evu frænku.
Pabbi minn er nefnilega með
ofnæmi fyrir loði þannig að þau
geta ekki búið hjá okkur.
Finnst þér gaman í leikhúsi?
Já og í vetur ætla ég að sjá Billy
Elliot.
Ertu að æfa eitthvað? Ég æfi
fimleika, svo er ég að æfa mig að
vera hugrökk.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Að fara í fimleika og í
Hljómskálagarðinn.
Æfir fimleika
og hugrekkið
Esja María Steindórsdóttir verður fimm ára í nóvem-
ber og er á leikskólanum Laufásborg. Hún æfir fimleika
og Páll Óskar er uppáhaldssöngvarinn hennar.
Esju Maríu finnst skemmtilegast á leikskólanum þegar einhver á afmæli.
Fréttablaðið/Anton
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
MarS KriSpiES
300 g Mars
50 g smjör
120 g Rice Krispies
300 g mjólkursúkkulaði
Bræðið Mars og smjör saman
í stórum potti yfir meðalhita.
Þegar allt er orðið vel blandað
saman hellið þið Rice Krispies
út í, takið pottinn af hellunni og
blandið vel saman. Blöndunni
skellt í ílangt form með smjör-
pappír eða bara möffinsform.
Leyfið blöndunni að kólna og
jafna sig.
Bræðið mjólkursúkkulaðið og
hellið yfir Mars Krispies. Setjið
inn í ísskáp og berið fram þegar
súkkulaðið hefur storknað.
Ég FÆ að SlEiKja
SlEiFina og það SEM Er
hrÆrt MEð.
1 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r54 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð