Fréttablaðið - 19.09.2015, Page 100

Fréttablaðið - 19.09.2015, Page 100
Ég hef verið á rölti um Reykjavík í sextíu og fjögur ár. Þannig að það má hiklaust segja það að ljóðin mín séu ofin inn í þessa borg þar sem ég tíni þau upp svona hér og þar en annað verður bara til við skrifborðið eins og gengur. Margt er svona fundin ljóð, þar sem ég sé eitthvað eða heyri samræður í strætó eða eitthvað slíkt á mínu rölti um borgina og það kveikir oft eitthvað,“ segir skáldið Óskar Árni Óskarsson sem nýverið sendi frá sér ljóðabókina Blýengillinn. Hér er á ferðinni þrettánda ljóðabók Óskars Árna en að auki liggja eftir hann átta smáprósar og fjöldi þýðingarverka, þar á meðal á japönsku ljóðskáld- unum Kobayashi Issa og Matsuo Basho, auk smásagna hins ameríska Raymonds Carver. Knappur í formi Óskar Árni er gjarnan nefndur meist- ari smáprósans og hvunndagsins í ís- lenskum bókmenntum en hann segir að ljóðin og smáprósarnir í Blýengl- inum séu frá síðustu fjórum árum. „Þannig að það er ekkert megin þema í bókinni en svo eru myndljóðin þarna aftast en hluti af þeim hefur birst áður. Myndljóðin eru gerð á Silverreed-ritvél og birt þannig að letrið á blaðinu er birt eins og það kemur úr ritvélinni en það er engin leið lengur að fá borða í hana þannig að þetta er endanlegt. Það er svolítil kúnst að gera þetta á venjulega ritvél og ég hef alltaf haft áhuga á myndlist svo það tengist eitthvað þarna. Það er svo mikill skyldleiki á milli ljóðs- ins og myndlistarinnar og reyndar tónlistarinnar líka ef út í það er farið. Þetta hefur allt áhrif hvert á annað og eru allt hughrif.“ Allan sinn skáldaferil hefur Óskar Árni verið knappur í formi, hvort sem er í ljóði eða prósa, og hin knöppu form hafa óneitanlega togað sterkt í hann. „Jú, það hefur alltaf verið þannig og í þessari bók eru til að mynda einhendur, ljóð sem eru bara ein lína hvert ljóð, og svo eru þarna nokkrar hækur og lengri prósar. Ég held að það sem hafi gert það að verkum að ég leita í þessi knöppu form hafi upprunalega verið að ég féll fyrir einhverri bók á ensku með þýðingum á japönskum hækum. Líklega var það Kobayashi Issa og mér fannst bara eins og hann væri að yrkja í gegnum mig en hann var reyndar búinn að vera dauður í einhver 200 ár,“ segir Óskar Árni og skemmtir sér yfir þessum andlega skyldleika við japanska skáldið. Í heimi skálda og bóka Eitt af því sem einkennir verk Óskars Árna er að þau dvelja oft í veröld bóka og skálda. Í Blýengli bregður til Ég lenti í þessu að ætla að fara í Hekluferð að ganga í fótspor Bjarna og Eggerts. En hafði farið dagavillt hjá Ferða- félaginu því ferðin hafði verið farin daginn áður. DAGSKRÁ 14.00 Stefnumörkun í málefnum aldraðra Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri 14.10 Til hvers öldungaráð? Guðrún Ágústsdóttir, formaður öldungaráðs 14.20 Staða eldri borgara – kynningar sviðsstjóra Reykjavíkurborgar Stefán Eiríksson, velferðarsvið Ólöf Örvarsdóttir, umhverfis- og skipulagssvið Helgi Grímsson, skóla- og frístundasvið Ómar Einarsson, íþrótta- og tómstundasvið Svanhildur Konráðsdóttir, menningar- og ferðamálasvið 15.00 Aldursvænar borgir Pálmi V. Jónsson, prófessor og yfirlæknir öldunarlækninga LSH 15.10 Talsmaður eldri borgara Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður félags eldri borgara í Reykjavík 15.20 Umræður borgarfulltrúa og spurningar fundargesta 17.00 Fundarlok öldungaráðs reykjavíkurborgar og borgarstjórnar fyrsti sameiginlegi fundur verður haldinn 22. september 2015 í Tjarnarsal, Ráðhúsi Reykjavíkur Á votri gangstÉtt Ég var á gangi eftir Meistaravöllum eitt rigningarsíðdegi í haust þegar ég sá glitta í eitthvað á gangstéttinni. Þetta var lítill engill úr silfurlitum málmi. Lítill blýengill. Ég vóg hann í lófanum. Hann var örsmár. Greinilega steyptur í mót eins og tindátarnir sem ég átti þegar ég var strákur. Hafði hann fallið niður af himninum, of þungur til að vængirnir bæru hann uppi? Ekki veit ég hvort fundur engilsins hefur einhverja dýpri merkingu. En allar götur síðar hefur hann búið í vasa mínum. Óskar Árni Óskarsson Ljóð bæta við og fylla myndina Óskar Árni Óskarsson skáld sendi nýverið frá sér ljóðabókina Blýengillinn og þar eru ófá ljóðin samofin borgarmyndinni, vinum skáldsins og góðum bókum enda hefur skáldið starfað sem bókavörður í 40 ár. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Fréttablaðið/Pjetur að mynda fyrir Vilborgu Dagbjarts- dóttur, Samuel Beckett, Geirlaugi Magnússyni, Degi Sigurðarsyni, Jóni Halli og Russel Edson og efalítið fleiri ef vel er að gáð. „Það má víst alveg segja það að ég dvelji talsvert í heimi bókarinnar enda er ég búinn að vera bókavörður í 40 ár og í hlutastarfi síðustu tvo áratugina eða svo,“ segir Óskar Árni sposkur. „En svo er það bara vinskapur við önnur skáld. Þetta er líka ákveðin samræða við vini mína og svo bara lestur til þess að fá innblástur. Það koma oft hugmyndir þegar maður er að lesa aðra höfunda þótt maður finni ekki endilega til skyldleika við þá eða eitthvað slíkt.“ Aðspurður hvað Óskar Árni telji að hafi mótað hann hvað mest sem skáld bendir hann á að hann hafi í raun byrjað seint. „Ég sendi fyrstu bókina frá mér 1986 og þá er ég þrjá- tíu og sex ára gamall. Þá var ég nátt- úrulega búinn að lesa heilmikið, lá í atómskáldunum en fyrstu höfund- arnir sem ég las voru nú nokkuð rök- réttir. Fyrst voru það Davíð og Tómas – Reykjavíkurskáldið og svo Örn Arnarson frændi minn en svo færði ég mig smátt og smátt yfir í mód- ernismann. Þetta hefur eflaust verið einhver grunnur. Málið með þessi borgarskáld er að ég lít svo á að ljóð og önnur verk sem fjalla um ákveð- ið umhverfi verði hluti af borgar- myndinni. Ef þú hefur lesið texta um ákveðinn stað þá bætir það við og fyllir myndina af þeim stað sem þú ert á hverju sinni.“ Hekluferð og Geirlaugur En ljóð og skáldskapur Óskars Árna hefur líka oft leitað út fyrir borgar- mörkin. Í Blýengli fer þó minna fyrir þeim yrkisefnum en víða en smá- prósinn Hekluferðin segir þó einkar skemmtilega frá tilraun skáldsins til þess að leggja land undir fót út fyrir borgarmörkin. „Já, þetta er reyndar sönn saga aldrei þessu vant. Ég lenti í þessu að ætla að fara í Hekluferð að ganga í fótspor Bjarna og Eggerts. En hafði farið dagavillt hjá Ferða- félaginu því ferðin hafði verið farin daginn áður. Mér var þó boðið að skella mér í fjöruferð á Seltjarnar- nesið en það leist mér ekkert á. Það voru því dálítið þung sporin heim. Ég hef þó skrifað talsvert, bæði ljóð og prósa, þar sem sögusviðið er úti á landi.“ Óskar Árni tengist reyndar norður á Sauðárkrók í gegnum sinn vinahóp en þó einkum Geirlaug Magnússon sem þar bjó. „Í mínum vinahópi var Gyrðir, Sigurlaugur Elíasson og Geirlaugur – þó að skáldskapur minn hafi aldrei verið eins og skáldskapur Geirlaugs þá hafði hann áhrif á mig. Við vor- um svona í hóp, Norðanskáldin vor- um við kölluð þó svo að ég hafi verið að sunnan. Geirlaugur var svo víð- lesinn og hann var alltaf að miðla til okkar útlendum ljóðskáldum, alltaf að stækka heiminn, enda átti hann mikið safn af bókum. Það má eflaust segja að hann hafi mótað okkur tals- vert en hann hafði líka svo hvetjandi áhrif. Ég fór til að mynda með annað ljóðahandrit mitt til Geirlaugs og hann var nokkuð ánægður með það og í framhaldinu er það svo gefið út á Sauðárkróki þar sem Sigurlaugur Elíasson býr. Þetta reyndist mér dýr- mætt.“ 1 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r56 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ðMenning
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.