Fréttablaðið - 21.03.2016, Blaðsíða 64
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Hauks Viðars
Alfreðssonar
Bakþankar
Að breyta þinni hugmynd
í veruleika. Færa úr tölvutæku
formi í fullkominn prentgrip.
Þar liggur okkar ástríða.
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Rekkjan ehf ≤≥ Ármúla 44 ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 H E I L S U R Ú M
ALLAR AÐRAR DROTTNINGAR
Í QUEEN SIZE (153X203 cm)
MEÐ 20% AFSLÆTTI
Páska Drottningar
A
R
G
H
!!!
2
10
31
6
#4
30%
AFSLÁTTUR!
30%
AFSLÁTTUR!
40%
AFSLÁTTUR!
ROYAL CORINNA
ROYAL AVIANA
KING KOIL MORENA
Verð áður 124.620 kr.
VERÐ NÚ 87.234 kr.
Verð áður 164.400 kr.
VERÐ NÚ 115.080 kr.
Verð áður 278.710 kr.
VERÐ NÚ 167.226 kr.
(Queen Size 153x203 cm)
(Queen Size 153x203 cm)
(Queen Size 153x203 cm)
Ótti er eðlilegasta tilfinning í heimi. Sumir eru flughrædd-ir, aðrir óttast útlendinga.
Margir hræðast köngulær og einu
sinni sá ég meira að segja viðtal við
mann sem var logandi hræddur
við ferskjur. Nei, óttinn þarf ekki
endilega að vera rökréttur. Ég var til
dæmis dauðhræddur á sínum tíma
við gangsetningu öreindahraðalsins
í CERN. Með hækkandi aldri fækkar
samt þeim hlutum sem ég hræðist
en eitt og annað hefur bæst við. Eins
og upphengd klósett, sem er líklega
það sem ég óttast mest af öllu.
Í fullkomnum heimi þar sem allir
væru vel undir kjörþyngd væri upp-
hengda klósettið frábær uppfinning.
Fyrst og fremst vegna þess hversu
mikið auðveldara er að þrífa það og
í kringum það. Raunveruleikinn er
hins vegar sá að upphengd klósett
virka stórhættuleg. Þau eru búin til
úr postulíni. Þið vitið, sama efni og
bollinn sem amma ykkar drekkur
te úr. Þess vegna dettur mér ekki
til hugar að láta allan minn þunga
hvíla á upphengdu klósetti. Þetta
er að vísu góð æfing fyrir kálfana en
baðherbergið á að vera griðastaður,
ekki líkamsræktarstöð.
Það er bara tímaspursmál hvenær
ég hlunkast niður í gólfið með kló-
settið undir mér. Í besta falli mun ég
þurfa að hringja skömmustulegur
í pípara. Í versta falli mun brotið
postulínið skera í sundur slagæð
hvors læris fyrir sig. Þessi atburða-
rás spilast í hausnum á mér í hvert
sinn sem ég tylli mér titrandi á þessa
dauðagildru. Ég ligg ósjálfbjarga á
baðherbergisgólfinu með buxurnar
á hælunum og finn hvernig kalt
klósettvatnið umlykur mig. Ég
heyri högg og hróp í fjarska þar sem
einhver reynir að brjóta sér leið
inn á harðlæst baðið. Svo fjarlægist
hljóðið hægt og rólega á meðan mér
blæðir út.
Það sem ég
óttast mest