Fréttablaðið - 21.03.2016, Blaðsíða 6
Stundum er gott
að gera sér dagamun
Mjúk og bragðgóð jógúrt með stökkum
kornkúlum. Tilvalinn kostur sem
sparimorgunverður, gómsætur millibiti
eða ljúengur eftirréttur.
… hvert er þitt eftirlæti?
1
6
-0
9
5
3
-H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Þar sem ferðalagið byrjar
Korputorg
112 Reykjavík
Sími 551 5600
utilegumadurinn.is
FERÐAVAGNAR
KAUPLEIGA
GRÆNIR BÍLAR
Opið mán-fös kl. 10-18 - lau-sun kl. 12-16
Frábært
verð!
Verð frá
2.990.000 kr.
Prinsinn heimsækir Nepal
Harry Bretaprins er staddur í fimm daga heimsókn í Nepal til þess að kynna sér aðstæður. Þar er fólk enn að
takast á við afleiðingar jarðskjálftans sem varð í apríl í fyrra. Átta þúsund manns fórust í skjálftanum og 21
þúsund særðust. Fréttablaðið/EPa
Tyrkland Árásarmaðurinn sem
drap fjóra á einni helstu verslunar-
götu Istanbúlborgar á laugardag
tilheyrði hryðjuverkasamtökunum
Íslamskt ríki. Efken Ala, innanríkis-
ráðherra Tyrklands, greindi frá þessu
á blaðamannafundi í Ankara í gær.
Maðurinn, sem sprengdi sjálfan sig,
hét Mehmet Ozturk og var 24 ára
tyrkneskur ríkisborgari.
Minnst fjórir létu lífið í árásinni
og þar að auki særðust 36 manns. Í
fyrstu var talið að Íslendingur væri
meðal þeirra særðu, en borgaraþjón-
usta utanríkisráðuneytisins staðfesti
í gær að svo væri ekki.
Tyrkir eru meðal þeirra ríkja sem
styðja loftárásir Bandaríkjamanna
gegn Íslamska ríkinu í Írak og Sýr-
landi. Tyrkland hefur áður orðið
fyrir árásum af hálfu hryðjuverka-
samtakanna, nýlegasta árásin var
gerð í janúar þegar tólf ferðamenn
létu lífið í grunaðri sjálfsmorðsárás.
Árásin á laugardag var fjórða
hryðjuverkaárásin í Tyrklandi á
þessu ári og sú sjötta frá því í júlí á
síðasta ári. Í október síðastliðnum
létu yfir hundrað manns lífið þegar
tveir karlmenn sprengdu sig í loft
upp á friðarsamkomu í Ankara.
Árásin var sú mannskæðasta á seinni
tíð í Tyrklandi. Ásamt vígamönnum
Íslamska ríkisins hafa uppreisnar-
menn meðal Kúrda verið ábyrgir
fyrir árásunum.
Recep Tayyip Erdoğan, forseti
Tyrklands, segir hryðjuverkasamtök
beina árásum sínum að óbreyttum
borgurum því samtökin séu að tapa
baráttu sinni við tyrkneskar öryggis-
sveitir. Erdoğan hét því að vinna bug
á hryðjuverkamönnum í Tyrklandi í
kjölfar árásar í Ankara þann 13. mars
síðastliðinn. thordis@frettabladid.is
Fjórir fórust í árás ISIS
Árásarmaður sem talinn er vera liðsmaður Íslamska ríkisins drap fjóra í Tyrk-
landi. Þetta er fjórða árásin þar í landi á þessu ári. Forsetinn heitir aðgerðum.
Árásin á laugardag var fjórða hryðjuverkaárásin í tyrklandi á þessu ári og sú sjötta
frá því í júlí á síðasta ári. Fréttablaðið/EPa
2 1 . m a r s 2 0 1 6 m Á n U d a G U r6 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð