Fréttablaðið - 21.03.2016, Blaðsíða 44
Góð leið til að efla starfsandann
og auka gleðina á vinnustaðnum
er að hafa fastan lið í tilverunni á
borð við föstudagskaffi. Slíkt kaffi
er hægt að útfæra á ýmsa vegu og
þarf ekki einu sinni að fara fram
á föstudegi, mánudagar eru full-
komnir líka enda ekki úr vegi að
byrja vikuna á góðum bita.
Ein góð leið er að skipta starfs-
mannahópnum upp í föstudags-
kaffihópa, þannig sér hver hópur
um kaffi fyrir vinnufélagana á til-
teknum degi.
Veitingarnar geta verið af ýmsum
toga en reynslan sýnir að metnað-
urinn vex með hverju kaffi. Klass-
ískt er þó að mæta með brauð og
einhvers konar salat. Hér er upp-
skrift að fyrirtaks túnfisksalati
sem rífur í bragðlaukana og klikk-
ar aldrei.
túnsfiskssalat
1 dós túnfiskur í vatni
¼ rauðlaukur, smátt saxaður
1-2 cm rauður chili pipar,
smátt saxaður.
2 harðsoðin egg, stöppuð
niður
¾ til 1 dós sýrður rjómi
Ferskar kryddjurtir eftir
smekk, á borð við graslauk
og karsa. Einnig má nota
basilíku. Magn eftir smekk.
Saxað smátt.
Í lokin er oft fallegt að strá söx-
uðum graslauk/karsa yfir salatið
og dreifa jafnvel smá rauðum chili
þegar borið fram.
Föstudagskaffi
klikkar ekki
Það er góð hugmynd hjá stjórnendum fyrirtækja að gera vel við starfsfólk sitt og við-
skiptavini með reglulegu millibili. Þannig verður starfsfólkið ánægðara í vinnu og því lík-
legra að það beri hag fyrirtækisins fyrir brjósti og leggi sig sem mest fram. Ánægðir við-
skiptavinirnir verða trúir fyrirtækinu og bera því vel söguna sem gæti leitt af sér fleiri við-
skiptavini.
Því er um að gera að nýta sér tækifærin sem liggja í stórhátíðum eins og páskum sem eru
nú á næsta leiti. Lítið páskaegg í fallegum umbúðum sem viðskiptavinir fá í lok viðskipta
eða liggur á skrifborði starfsmanns að morgni dags getur haft mikið að segja og gæti
reynst þúfan sem veltir hlassinu þunga.
Vel hugsað um starfsfólk
og ViðskiptaVini
Það er hægt er að gera ótal margt
á vinnustöðum til að létta vinnu-
andann og bæta um leið sam-
skipti milli starfsmanna án þess
að það þurfi að kosta mikið.
Margir vinnustaðir hafa úti-
vistarklúbba af ýmsu tagi, t.d. í
tengslum við göngur, hjólreiðar
eða hlaup. Þar sameinast góð lík-
amsrækt og létt andrúmsloft sem
tengir starfsmenn saman í já-
kvæðu umhverfi.
Í aðdraganda stórhátíða er
hægt að slá upp ýmsum skemmti-
legum leikjum og viðburðum, t.d.
skreyta vinnustaðinn, fara í alls
kyns gjafaleiki eða slá upp hátíða-
máltíðum af ýmsum gerðum.
Þótt starfsmenn séu misáhuga-
samir um íþróttir eru ýmis stór-
mót vel til þess fallin að slá upp
skemmtilegum partíum. Heims-
og Evrópumót í fótbolta, Ólymp-
íuleikar og stórmót í handbolta
koma þar fyrst upp í hugann en
hægt er að skreyta vinnustaðinn,
setja upp getraunleiki og margt
fleira.
Léttleikinn í
fyrirrúmi
Alltaf tengd með
Vodafone RED Office
Einfaldaðu lífið og auktu afköstin með því að hafa
fjarskiptin og Office á sama stað!
Nánari upplýsingar á vodafone.is eða
í síma 599 9500.
Vodafone
Við tengjum þig
Gögnin þín
allstaðar
Betri
samvinna
Öryggið
tryggt
Fyrirtækjaþjónusta kynningarblað
21. mars 20168