Fréttablaðið - 21.03.2016, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 21.03.2016, Blaðsíða 42
Vinnueftirlitið gaf út bæklinginn Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum árið 2008. Þar er fjallað um helstu þætti heilsu- eflingar en þeir eru að draga úr streitu og bæta líðan, bæta nær- ingu, auka hreyfingu og að inn- leiða áfengis- og tóbaksvarnir. Hér verður aðeins tæpt á nær- ingarhlutanum en hann snýr að öllu starfandi fólki. Fólk í fullri vinnu ver stórum hluta vökutímans í vinnunni og því mikilvægt að það hafi að- gang að hollum og næringarrík- um mat. Hann hefur ekki aðeins áhrif á lund og líðan heldur getur heilsan og starforkan beinlínis verið undir því komin að hollur matur sé í boði frá degi til dags. Það er því hagur vinnuveitenda að stuðla að og hvetja starfsmenn til að borða hollt. Á stærri vinnu- stöðum eru gjarnan mötuneyti sem hægt er að leggja línurnar með en minni vinnustaðir geta líka lagt ýmislegt af mörkum til að stuðla að góðu mataræði starfsmanna. Helstu leiðir til að stuðla að góðu mataræði á vinnustað eru l að auka aðgengi að hollum mat og takmarka framboð á óholl- ustu. l að bjóða ókeypis ávexti og grænmeti l að hafa gott aðgengi að köldu og fersku vatni l að bjóða gott fundarfæði Ef mötuneyti er á staðnum mælir Vinnueftirlitið meðal annars með eftirfarandi l að boðið sé upp á mikið úrval af fersku og elduðu grænmeti með mat eða á salatbar l að grænmeti sé í sem flestum réttum þar sem það á við l að einungis sé boðið upp á vatn með matnum l að ofnsteikja frekar en pönnu- eða djúpsteikja og nota hæfilegt magn af fitu. l að draga úr notkun salts við matargerð en nota þess í stað aðrar kryddtegundir án salts l að bjóða upp á fisk að minnsta kosti tvisvar í viku l að draga úr framboði á sykr- uðum vörum eins og kexi og kökum. l Þá er mælt með því að vinnu- staðir reyni eftir fremsta megni að gera holla matinn aðlaðandi með því að hafa hann á lágu verði og í sem mestu úrvali. Almennt ætti að takmarka fram- boð á sætmeti, kökum og gos- drykkjum. Þá er mælst til þess að starfsmönnum sé boðið upp á ókeypis ávexti og grænmeti á vinnutíma. Eins að hafa gott að- gengi að köldu fersku vatni og hafa vatnsvélar, vatnsbrunna eða vatnskönnur aðgengilegar sem víðast. Til að auka fjölbreytni mætti bjóða upp á kolsýrt vatn án bragðefna. Þá er sérstaklega mælst til þess að boðið sé upp á niðurskorna ávexti, grænmeti, gróft brauð og gæðaálegg á fund- um í stað þess að halda áfengi, sætmeti og annarri óhollustu að fólki. Sjá nánar á vinnueftirlit.is Halda skal hollustu að starfsfólki Heilsuefling á vinnustöðum felur í sér víðtækar aðgerðir til þess að bæta heilsu og líðan starfsmanna. Hún kostar yfirleitt talsverða yfirlegu en skilar sér í afkastameira, betra og hraustara starfsfólki. Heilsuefling snýst um aðgerðir sem vinnustaðurinn getur farið í til að ýta undir jákvæða heilsuhegðun starfsmanna. Aðgengi að hollum mat er þar veigamikill þáttur. Það er mikilvægt að hafa úrvalið fjöl- breytt og gera hollustuna aðlaðandi. Þannig verður hún frekar fyrir valinu.Mælst er til þess að vinnustaðir bjóði upp á ókeypis grænmeti og ávexti fyrir starfsmenn. Búðu þig undir skapandi framtíð Stefán Tryggvason Hótelstjóri á Hotel Natur, Þórisstöðum Arnaldur Starri Stefánsson Móttökustjóri á Hotel Natur Ferðin frá hugmynd að farsælu fyrirtæki með skýra framtíðarsýn kallar á öflugan samstarfsaðila. Kynntu þér þjónustu okkar á arionbanki.is/fyrirtaeki Fyrirtækjaþjónusta Arion banka 2016 Nú erum við búin að kaupa næstu jörð. Það bíða ótal tækifæri.2004 Við vorum búin að vera kúabændur í 10 ár. Þá ákváðum við að breyta búinu í sveitahótel. 1 5 -2 1 6 7 – H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA FyrirtækjaÞjónuSta kynningarblað 21. mars 20166
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.