Fréttablaðið - 21.03.2016, Blaðsíða 43
Faktoría er fyrirtæki sem var
stofnað árið 2014 og býður fyrir
tækjum möguleika á aðgengi að
kröfufjármögnun. „Eigendur
Faktoríu skynjuðu þörf á skamm
tíma fjármögnun til fyrirtækja á
núverandi markaði og vildu nýta
þekkingu sína til að uppfylla þá
þörf,“ segir Þorvaldur S. Krist
jánsson, forstöðumaður viðskipta
sviðs Faktoríu. Hann segir fyrir
tækið hafa reynda hugbúnaðar
menn innan borðs sem hafi mikla
þekkingu á merkingu viðskipta
krafna ásamt tengslaneti inn í
tæknideildir bankanna. „Þessi
þekking var nýtt til að búa til
kerfi sem gæti auðveldlega veitt
fjármagn til fyrir tækja með und
irliggjandi kröfu eða kröfur sem
tryggingu fyrir fjármagni.“
Svona virkar þjónustan
Þorvaldur útskýrir að þjónusta
Faktoríu virki þannig að fyrir
tæki hafi sitt svæði inni í Fakto
ríukerfinu þar sem kröfur þeirra
sjáist. „Kröfur eru speglaðar úr
innheimtukerfum bankanna og
hægt að óska eftir tilboði í þær
sem fyrir tækið velur. Þegar til
boð hefur síðan verið samþykkt
af hálfu viðskiptavina, þá fá við
skiptavinir okkar greitt inn á sinn
reikning að öllu jöfnu á næsta hálf
tímanum. Þegar greiðandi greiðir
kröfu sem hefur verið fjármögn
uð þá lítur hún eins út í banka við
komandi og áður, en greiðslan fer
beint til Faktoría.“
Kröfufjármögnun Faktoríu er
ólík kröfukaupum þar sem fyr
irtæki raunverulega selja kröf
una til fjármögnunarfyrirtækja.
„Með því að fjármagna líkt og
Faktoría gerir þá er hægt að fjár
magna hærri prósentu en ella og
það hefur ekki neikvæð áhrif á
viðskiptasamband fyrirtækja og
þeirra viðskiptavina,“ lýsir Þor
valdur.
Hröð afgreiðsla
Hefðbundin kröfufjármögnun
hefur verið til staðar hjá bönk
unum í formi lánalína með veði í
öllum kröfum fyrirtækja, ásamt
viðbótartryggingum hvort sem
það er í formi sjálfskuldarábyrgða
eða með veði í fasteignum. „Með
kröfufjármögnun Faktoríu geta
fyrirtæki nálgast fjármagn í
rekstur með auðveldum hætti og
án frekari trygginga en undir
liggjandi kröfusafns. Afgreiðsla
gengur hratt fyrir sig eftir að við
komandi fyrirtæki fær tilboð sent
en Fakt oría reynir eftir fremsta
megni að afgreiða umsóknir við
skiptavina innan dagsins. Ferlið
frá því að viðkomandi er kominn í
viðskipti og þar til hann fær fjár
magn út á kröfur getur því tekið
mjög stuttan tíma.“
Viðskiptavinir úr ýmsum geirum
Faktoría er ungt fyrirtæki og
þar starfa fjórir starfsmenn. Við
skiptavinir Faktoríu eru fyrir
tæki í öllum geirum. „Við erum
með mikið af heildsölum og inn
flutningsaðilum, þjónustufyrir
tæki, fyrirtæki í byggingariðnaði
og verktaka. Þörf viðskiptavina
okkar er mismunandi en allir sjá
þeir þörf á að geta nýtt Faktoría
á einhverjum tíma í framtíðinni,“
segir Þorvaldur.
Hann tekur sem dæmi fyrir
tæki sem þarf að leggja út mikla
fjármuni fyrir innflutningi á vöru
erlendis frá, sem þarf að stað
greiða, en fær ekki greitt fyrr en
við afhendingu. „Þessi viðskipta
vinur getur fengið tilboð í kröfu
sem er með eindaga eftir 35 daga
og fengið fjármagn samdægurs til
að panta af sínum birgja. Aðrar að
stæður þar sem viðskiptavinir sjá
þörf á þjónustu Faktoríu er þegar
greiða þarf laun eða virðisauka og
sjóðsflæði inn til fyrirtækis er of
sveiflukennt. Þá getur viðkomandi
stytt greiðslufrest í staðgreiðslu
með tilstilli Faktoríu.“
Nýr möguleiki í kröfufjármögnun
Faktoría býður fyrirtækjum möguleika á aðgengi að kerfi sem getur auðveldlega veitt fjármagn til fyrirtækja með undirliggjandi kröfu eða
kröfur sem tryggingu fyrir fjármagni. Með þess konar fjármögnun er hægt að fjármagna hærri prósentu og það hefur ekki neikvæð áhrif á
viðskiptasamband fyrirtækja og þeirra viðskiptavina. Viðskiptavinir Faktoríu eru fyrirtæki úr öllum geirum sem hafa mismunandi þarfir.
Viðar Ingason viðskiptafulltrúi, Þorvaldur Símon Kristjánsson, forstöðumaður viðskiptasviðs, og Þórunn Stella Hermanns-
dóttir viðskiptafulltrúi eru starfsmenn Faktoríu sem var stofnað árið 2014 og býður fyrirtækjum möguleika á aðgengi að
kröfufjármögnun. MYND/VILHELM
Búðu þig undir
skapandi framtíð
Stefán Tryggvason
Hótelstjóri á Hotel Natur,
Þórisstöðum
Arnaldur Starri Stefánsson
Móttökustjóri á Hotel Natur
Ferðin frá hugmynd að farsælu fyrirtæki með skýra
framtíðarsýn kallar á öflugan samstarfsaðila.
Kynntu þér þjónustu okkar á
arionbanki.is/fyrirtaeki
Fyrirtækjaþjónusta Arion banka
2016
Nú erum við búin að kaupa næstu
jörð. Það bíða ótal tækifæri.2004
Við vorum búin að vera
kúabændur í 10 ár. Þá ákváðum
við að breyta búinu í sveitahótel.
1
5
-2
1
6
7
–
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Kynningarblað FYrIrtæKjaÞjóNuSta
21. mars 2016 7