Fréttablaðið - 21.03.2016, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 21.03.2016, Blaðsíða 12
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Flísabúðin Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is Finndu okkur á facebook Gæði og g læsileiki e ndalaust ú rval af há gæða flísu m Erna Indriðadóttir ritstjóri lifdununa.is Það ríkja fordómar á Íslandi gagnvart eldra fólki. Rúmlega 38.000 manns eru í dag komnir á eftir-launaaldur, eða orðnir 67 ára og eldri. Og hvað verða þeir þá? Ellilífeyris„þegar“ takk fyrir eða jafnvel bara lífeyris„þegar“. En fyrst keyrir nú um þverbak þegar rætt er um þetta fólk sem „bótaþega“. Eldra fólk er ekki bótaþegar Þessi orð fela í sér að menn séu þiggjendur, þiggi fé af ríki eða lífeyrissjóðum. Hvernig í ósköpunum það vildi til, að fólk sem vann hörðum höndum að upp- byggingu þjóðfélagsins og greiddi sín gjöld og skatta til ríkisins og seinna í lífeyrissjóði, varð allt í einu þiggjendur er mér hulin ráðgáta. Þetta er einfaldlega fólk sem var búið að leggja inn fyrir eftirlaununum sínum. Fólk á dvalarheimilum er ekki vistmenn Þegar menn verða enn eldri og þurfa að leggjast inn á dvalar- eða hjúkrunarheimili, tekur ekki betra við. Þá verða þeir jafnvel „vistmenn“. Rétt eins og stundum talað var um vistmenn í fangelsum, á Kleppi eða á Kópavogshæli á meðan þær stofnanir voru og hétu. Sjálft orðið vísar til fólks sem ræður sér ekki sjálft eða getur ekki séð um sig sjálft og er stundum notað um þá sem hafa gerst brotlegir við lög samfélagsins. Hvorugt á við um það fólk sem býr á dvalarheimilum eða hjúkrunarheimilum. Það er hvorki afbrotamenn né ófært með öllu um að ráða sér sjálft. Það eru karlar og konur sem búa á eigin heimilum. Búist er við að fólki 67 ára og eldra fjölgi um 65% fram til ársins 2030 og verði þá 63.000. Þetta er fólkið sem hefur byggt upp það samfélag sem við búum við í dag og skilað af sér blómlegra búi en það tók við fyrir 60-70 árum. Þetta er ekki bónbjargarfólk sem „þiggur“ lífeyri frá ríki og lífeyrissjóðum og búi það á dvalar- heimilum, sem fer raunar ört fækkandi í landinu, er það ekki „vistmenn“ þar heldur íbúar. Ég skora á fjöl- miðla og aðra að útrýma þessum orðum úr umræðum um málefni eldri kynslóðarinnar í landinu. Þau bera vitni fordómum sem eiga ekki að líðast. Grái herinn snýst til varnar Þetta er ekki bónbjargar- fólk sem „þiggur“ lífeyri frá ríki og lífeyris- sjóðum. Um miðjan tíunda áratuginn gerðist Ísland aðili að samningi UNESCO um verndun menningar- og náttúruarfleifðar heimsins. Til þess að fylgja markmiðum samningsins eftir er haldin heimsminjaskrá yfir ein- staka staði og viðurkennd verndarsvæði. Þessu skylt er varðveisluskráin en þar er m.a. að finna handritasafn Árna Magnússonar enda þar um ómetanlegan menn- ingararf að ræða. En við Íslendingar erum meira fyrir að skrifa undir samninga en að standa við þá svo sómi sé að. Surtsey og Þingvallaþjóðgarður eru einu íslensku náttúruperlurnar sem er að finna á heimsminjaskrá UNESCO. Í raun kemur það dálítið á óvart miðað við sérstöðu íslenskrar náttúru. Mývatn, með sínu einstaka lífríki og ómældu fegurð, er ein af þessum sérstöku perlum. Eðlilega var því sótt um að koma Mývatni á heimsminjaskrá tveimur árum eftir að Ísland gerðist aðili að samningnum og ekki stóð á höfnuninni þar sem Íslendingar láta renna skólp í jarðveginn og það endar í vatninu. Við erum ekki alveg í lagi. Mikið vatn hefur runnið til sjávar og mikið skólp í Mývatn frá því þessi dómur féll yfir umhirðu Íslend- inga um þessa einstöku náttúruperlu sem á sér ekki hliðstæðu nema í einu stöðuvatni í Japan. En þessi tvö vötn eru þau einu í heiminum þar sem er að finna hinn sérstæða kúluskít. Japanir hafa lengi haft þann háttinn á að fjarlægja allt skólp sem rennur innan jarðvegssvæðis vatnsins, og vernda þannig lífríki þess og náttúru, en hér höfum við ekki þann háttinn á. Þvert á móti. Í liðinni viku var greint frá því hér á síðum þessa blaðs að miklar breytingar væru að eiga sér stað í lífríki Mývatns til hins verra. Árni Einarsson, forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn (RAMÝ), greindi frá þessu og jafnframt því að breytingarnar megi rekja til ofauðgunar í vatninu af mannavöldum. Árni bendir á að hér sé um flókið mál að ræða en að í raun sé aðeins eitt til ráða til þess að stemma stigu við þessari mjög svo neikvæðu þróun: Það er að tryggja að sem allra minnst af næringarefnum frá mannabyggð (nitur eða köfnunarefni og fosfór) berist í grunnvatnið og þannig í Mývatn. Skútustaðahreppur er fámennt sveitarfélag, svo fámennt að það hefur eðlilega ekkert bolmagn til þess að takast á við vandann, og því ber stjórnvöldum að taka á málinu. Ekki síst þar sem í gildi eru sérlög fyrir Mývatn og Laxá, en eins og Jón Óskar Pétursson sveitar- stjóri hefur bent á þá hafa óskir til yfirvalda um aðstoð við frárennslismál enn engu skilað. Fundað hafi verið með umhverfisráðherra, þingmönnum og fjárlaganefnd og allir sýnt málinu áhuga og skilning. Það getur í besta falli talist vandræðalegt að málið skuli strandað á áhuga og skilningi. Tími aðgerða í málefnum Mývatns er löngu runn- inn upp og Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auð- lindaráðherra, hlýtur að láta málið til sín taka og það strax. Ef það er ekki hlutverk ráðherra, með fulltingi Umhverfisstofnunar, að koma náttúruauðlind á borð við Mývatn til bjargar við aðstæður sem þessar þá er fokið í flest skjól fyrir íslenskri náttúru. Tími aðgerða Það getur í besta falli talist vand- ræðalegt að málið skuli strandað á áhuga og skilningi. Sigmundur og Helle Mál málanna um þessar mundir eru erlendar eignir eiginkonu forsætisráðherra. Já-fólk for- sætis keppist nú um að benda á að það sé ekki ólöglegt að eiga eignir erlendis sem er hugsan- lega rétt. Hins vegar hundsar já-fólkið þá pólitísku staðreynd að hér er um að ræða sama forsætisráðherra sem hvetur Íslendinga til að kaupa íslenskt til að styrkja gengi gjaldmið- ilsins. Sambærilegt dæmi kom upp árið 2010 í Danmörku þegar kom í ljós að Stephen Kinnock, eiginmaður Helle Thorning-Schmidt, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, greiddi skatta sína í Sviss en bjó í Danmörku. Þá þótti fólki nærri óhugsandi að hún yrði forsætis- ráðherra eftir að hafa predikað að Danir ættu að greiða háa skatta í sterkt velferðarkerfi. Athæfi Kinnocks var ekki ólög- legt en Thorning-Schmidt þurfti að biðjast afsökunar og opna bókhald fjölskyldunnar til að eiga sér pólitíska framtíð. Framsóknarfirringin Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknar, snerti á málinu í viðtali við RÚV í gær. Hann sagði engum spurningum ósvarað og traust á milli stjórnarflokkanna væri óskadd- að. Þetta sagði hann þó þvert á yfirlýsingar tveggja stjórnar- þingmanna um að sú væri ekki raunin. stefanrafn@frettabladid.is 2 1 . m a r s 2 0 1 6 m Á N U D a G U r12 s k o ð U N ∙ F r É T T a B L a ð i ð SKOÐUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.