Fréttablaðið - 24.09.2016, Page 12
Dómsmál Forsvarsmenn Atlantic
Green Chemicals krefjast þess að fá
lóð sem hafnarstjóri hafði lofað þeim
í Helguvík úthlutaða, einnig krefjast
þeir þess að breyting á deiliskipulagi
á svæðinu frá 2015 verði felld úr gildi.
Aðalmeðferð dómsmálsins Atlant
ic Green Chemicals (AGC) gegn
Reykja nesbæ, Reykjaneshöfn og
Thorsil hófst á fimmtudag, en áður
hafði málinu verið vísað frá. Forsaga
málsins er sú að AGC stefndi Reykja
neshöfn, Reykjanesbæ og Thorsil ehf.
vegna deilna um úthlutun lóðarinnar
Berghólabrautar 4 í Helguvík.
Jón Jónsson, lögmaður Atlantic
Green, segir deiluna um málið aðal
lega snúast um það hvort loforð,
sem fólst í tölvupósti frá hafnar
stjóra Reykjaneshafnar til AGC, gildi.
„AGC var tilkynnt að Reykjaneshöfn
væri reiðubúin að úthluta félaginu
þessari lóð og á grunni þessa loforðs
vinnur AGC sitt umhverfismat og
klárar það. Staðsetningin skipti máli
vegna þess að þeir höfðu í huga að
nota afgangs varmaorku í sína fram
leiðslu,“ segir Jón.
„Þetta verkefni lá niðri um tíma
og um mitt ár 2014 varð AGC þess
vart að hluti af þeirri lóð sem félag
inu var lofað tilheyrir lóðinni sem
Thorsil er að semja um vegna kísil
vers við Reykjaneshöfn.
Þetta dómsmál gengur út á það að
þeir eigi rétt á að fá þessa lóð úthlut
aða, í raun og veru krefjast forsvars
menn AGC þess. Einnig krefjast þeir
þess að nýtt deiliskipulag við Helgu
víkurhöfn frá 2015, sem gerir ráð fyrir
að þessi lóð verði gerð að stærri lóð
sem Thorsil fengi afhenta, verði fellt
úr gildi,“ segir Jón Jónsson. – sg
bmvalla.is
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 163855
Nýttu þér ráðgjöf landslagsarkitekta okkar.
Þeir aðstoða þig við efnisval og hjálpa þér að
útfæra hugmyndir þínar um fallegan garð.
Frí ráðgjöf landslagsarkitekta
Bókaðu tíma
í síma 412 5050
Kláraðu
innkeyrsluna
fyrir haustið
Við aðstoðum þig að velja
rétta efnið í innkeyrsluna.
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
LYKILL AÐ
BETRI KJÖRUM
KYNNTU ÞÉR AFSLÁTTARKJÖR
VR-KORTSINS Á VR.IS
sýrlanD Sýrlenski stjórnarherinn
varpaði í gær, með aðstoð Rússa,
sprengjum í gríð og erg á svæði upp
reisnarmanna í austurhluta borgar
innar Aleppo. Sýrlandsstjórn sagðist
staðráðin í að ná þessum svæðum
aftur á sitt vald. Þetta var annar
dagurinn í röð sem loftárásir voru
gerðar á þessi svæði.
Fréttastofan Al Jazeera segir að
þrjár af fjórum bækistöðvum hjálp
arstarfsmanna í borginni hafi orðið
fyrir árásum. Tvær þeirra séu nú
óstarfhæfar. Þá hafa þrjár læknamið
stöðvar einnig orðið fyrir loftárásum.
Hátt í þrjú hundruð þúsund
manns eru talin búa enn á svæðum
uppreisnarmanna, sem árum saman
hafa mátt þola linnulitlar loftárásir
frá stjórnarhernum.
Lengi hefur illa gengið að koma
hjálpargögnum inn á þessi svæði,
sem stjórnarherinn situr um.
Skammvinnt vopnahlé rann út
í sandinn um síðustu helgi eftir að
hafa staðið í tæpa viku.
Bæði Rússar og Bandaríkjamenn
reyna nú, ásamt fulltrúum bæði Sýr
landsstjórnar og uppreisnarmanna,
að koma á vopnahléi aftur, þótt tak
markaðar vonir séu bundnar við að
það takist alveg á næstunni.
John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, segir að eina leiðin
til að koma á vopnahléi sé að þeir
sem hafi getu til að stunda loftárásir
hætti því einfaldlega.
„Ef ekkert meiri háttar af því tagi
gerist þá teljum við engan tilgang í
því að gefa út fleiri loforð eða áætl
anir eða tilkynna um eitthvað sem
ekki er hægt að fylgja eftir eða gera
að veruleika,“ sagði hann í gær.
Bandaríkin hafa sagt það vera í
verkahring Rússa að fá sýrlenska
stjórnarherinn til þess að halda
aftur af sér, en í staðinn reyni
Bandaríkin að halda aftur af upp
reisnarmönnum.
Borgarastyrjöldin í Sýrlandi hefur
nú staðið í fjögur og hálft ár og kost
að hundruð þúsunda lífið. – gb
Harðar árásir
á íbúa í Aleppo
Þrjár læknamiðstöðvar og tvær bækistöðvar hjálpar-
starfsfólks urðu fyrir sprengjum í Aleppo gær. Litlar
vonir eru um að vopnahlé komist þar á aftur.
Sýrlenskur hjálparstarfsmaður í Aleppo kannar skemmdirnar eftir loftárás á bæki-
stöð björgunarsveitanna. NordicphotoS/AFp
Krefjast þess að fá
lóð Thorsil úthlutaða
Atlantic Green
Chemicals var
tilkynnt að Reykjaneshöfn
væri reiðubúin að úthluta
félaginu þessari lóð og á
grunni þessa loforðs vinna
þeir sitt um-
hverfismat.
Jón Jónsson, lög-
maður Atlantic
Green Chemicals
2 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð