Fréttablaðið - 24.09.2016, Side 24

Fréttablaðið - 24.09.2016, Side 24
Birkifræum er hægt að skila á starfsstöðvar Endurvinnslunnar í Knarrarvogi 4 og Dalvegi 28 eða til Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti. BIRKIFRÆ- SÖFNUN Mikið fræ er á birki í haust. Hekluskógar auglýsa eftir aðstoð almennings við fræsöfnun. Fræ þurfa að vera þurr. Tökum við fræjum til 31. október. E inn ástsælasti vísinda-skáldskapur sögunnar, Star Trek, verður heiðr-aður í Bíói Paradís í kvöld.Star Trek á 50 ára afmæli í ár en fyrsti þátturinn fór í loftið 8. september 1966. Af því til- efni halda Bíó Paradís og Nexus veg- lega afmælishátíð. Haldin verður skemmtidagskrá í öllum sölum, pöbb-kviss og kynn- ing á Star Trek spilum frá Nexus. Þá verður hægt að gæða sér á afmælis- tertu með Star Trek þema, fá sér drykk á Quarks Bar og láta taka mynd af sér í transporternum. Aðdáendur sem vilja gleðjast á þessum stærsta Star Trek viðburði sem haldinn hefur verið hérlendis eru hvattir til þess að mæta í bún- ingum. Gísli Einarsson, framkvæmdastjóri Nexus, segir þættina fyrst og fremst heilla vegna bjartsýnnar framtíðar- sýnar. „Mannkynið er búið að leysa öll sín vandamál og breiðir út fagn- aðarerindið um geiminn. Það eru svo bara geimverurnar sem eru með vesen,“ segir Gísli. „Vísindaskáld- skapur á alltaf sína dyggu aðdáendur. Fólk vill heimsækja þessa heima aftur og aftur og þykir eftirsóknarverðar pælingarnar sem einkenna þessa teg- und skáldskapar, sem eru heimspeki- legar, um eðli mannsins og siðferði.“ Hrönn Sveinsdóttir, fram- kvæmdastjóri Bíós Paradísar, segir sinn uppáhaldskarakter vera Spock. „Ég talaði við Brynjar Níelsson í morgun um að klæðast Spock- búningi fyrir mig, en hann gat það ekki, var á leiðinni út á land,“ segir Hrönn. kristjanabjorg@frettabladid.is Stærsti Star Trek viðburður sem haldinn hefur verið á Íslandi Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíós Paradísar, ásamt þeim Baldvin Frey Kristjánssyni og Gunnhildi Eyborgu Reynis- dóttur. FRéttaBlaðið/StEFán Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir hafa slegið í gegn í gamanþáttunum, Þær tvær, sem eru á dagskrá Stöðvar 2 á sunnudagskvöldum. Þetta er önnur þáttaröð sem tekin er til sýninga, en þær fara sjálfar með helstu hlutverk og skrifa handritið. Þær kunna vel við sig í gríni og eiga sér fyrirmyndir sem þær líta upp til í skemmtibransanum. Júlíana minn- ist sérstaklega sketsaþáttaraðar- innar Smack the Pony, með þremur gamanleikkonum í aðalhlutverki. „Ég var um tíu ára og þær höfðu mikil áhrif á mig, þessir þættir voru og eru í algjöru uppáhaldi. Þarna voru konur sem brutu öll form sem ég áður þekkti,“ segir Júlíana frá. Vala Kristín nefnir Amy Poehler sem góða fyrirmynd. Poehler er þekkt gamanleikkona sem varð fyrst þekkt í þáttunum Saturday Night Live. Hún sló svo rækilega í gegn með Tinu Fey þegar þær voru kynnar á Golden Globe verðlauna- afhendingunni árið 2013 og gerðu mikinn usla. „Annars horfi ég skelfi- lega lítið á sjónvarp miðað við að ég vinn við þetta,“ segir Vala Kristín. Júlíana og Vala vita varla hvernig samstarf þeirra hófst. „Við kynnt- umst í Versló. Við eigum bara svo vel saman,“ útskýrir Vala. „Við bullum ótrúlega mikið saman, tölum í belg og biðu og í hringi um alls konar hluti. Það lá beinast við að skrifa sketsa,“ segir Júlíana. – kbg Smack the Pony og Amy í uppáhaldi Vala og Júlíana Sara fara með nærri öll hlutverk og semja gamanþættina Þær tvær sem eru á dagskrá Stöðvar 2 á sunnudögum. FRéttaBlaðið/anton BRinK FImmtíu ára afmæli Star Trek verður haldið hátíðlegt í Bíó Paradís um helgina. Aðdáendur þáttanna eru hvattir til að mæta í búningum en margir eiga sinn uppáhaldskarakter. 2 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r24 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð helgin
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.