Fréttablaðið - 24.09.2016, Page 28

Fréttablaðið - 24.09.2016, Page 28
Það sem almennir not-endur verða venjulega varir við á internetinu er aðeins lítill hluti þess.Þetta er hinn opni hluti sem er efnisskráður og leitarvélar eins og Google geta flett upp og birt skráninguna. Sá hluti sem hefur ekki verið skráður á þann veg er stundum kallaður djúpvefurinn, eða „dark web“. Það þykir mörgum not- endum þó villandi uppnefni. Það sé tæknilega merkingarlaust og ruglandi. Það sem hægt er að segja með vissu er að undir yfirborði hins skráða nets er hægt að vafra um án þess að skilja eftir sig slóð. Nafnleysið getur haft mikla kosti fyrir netnotendur sem þurfa að tryggja öryggi sitt eða vilja frið frá markaðsöflum. Þar er mikill fjöldi stórra gagna- grunna og bókasafna og vefsíður sem krefjast innskráningar frá viður- kenndum notendum. Mikil aukning á notkun Tor Huldunet eru hluti af þjónustu Tor í þeim skilningi að það þarf að beita sérstökum ráðstöfunum til að tengj- ast þeim. Umferð um huldunetin hefur stóraukist síðustu ár. Í júlí 2013 voru um 800.000 notendur á dag á Tor-netkerfinu um allan heim. Fjöldi daglegra notenda var um 2,5 milljónir árið 2014 og eykst enn. Europol greindi í umfangsmikilli skýrslu á síðasta ári frá því að með- fram aukinni notkun hulduneta hafi glæpastarfsemi á þeim aukist til muna. Slíkir glæpir krefjist nýrrar nálgunar lögreglu. Nálgun sem kalli á mun öflugri alþjóðlega samvinnu lögregluliða. Evrópska tölvu- og netglæpamið- stöðin sem Europol starfrækir er fyrirmynd að slíkri samvinnu. Ríkislögreglustjóri gerir einnig grein fyrir þessu í skýrslu sinni um helstu ógnir á sviði tölvu- og net- glæpa sem gefin var út á þessu ári. Hvað eru huldunet? Huldunet veita notendum sínum nafnleynd. Til þess að ná fram leynd á staðsetningu og nafni eru inter- netsamskiptin flutt á milli fjölda mismunandi staðsetningarpunkta (netþjóna/tölva) og samskiptaslóð- inni eytt jafnóðum. Þetta kemur í veg fyrir að hægt sé að rekja upp- hafsstaðinn. Dæmi um slík netkerfi eru Tor (The Onion Router) og I2P (Invisible Internet Project). Vandi löggæslunnar er í skýrsl- unni sagður sá að glæpamenn mis- noti nafnleysið. Í raun hafi myndast glæpamarkaður á netinu þar sem alls kyns ólögleg starfsemi er í boði. Þar á meðal viðskipti með ólögleg lyf og fíkniefni, sala á vopnum og stolnum vörum, ofbeldi gegn börnum, leigu- morð, mansal og sala á stolnum greiðsluupplýsingum. Einnig standi til boða að kaupa sem þjónustu fjölda tölvu- og netglæpa svo sem klæðskerasniðnar tölvuárásir á ein- staklinga eða fyrirtæki/stofnanir (DDoS-árásir, lykilorðaþjófnaður, ruslpóstur o.fl.). Tor er ómissandi Smári McCarthy og Oktavía Hrund Jónsdóttir Píratar eiga það sameigin- legt að nota Tor mikið í lífi og starfi. Smári hefur meðal annars kennt rannsóknaraðferðir til að rekja ólög- lega starfsemi í gegnum Tor í Tyrk- landi og Úkraínu. „Alls staðar þar sem góðir hlutir geta gerst geta slæmir hlutir einnig gerst,“ segir Smári. „Megnið af ólög- legu starfseminni eru sölusíður fyrir vímuefni, falsaða peninga, og þess háttar. Einnig er eitthvað af klámi, mislöglegu, og hryðjuverkasamtök nota stundum Tor til að fela sam- skiptasíður sínar,“ segir Smári. Oktavía segir heiminn allan geta verið hættulegan. Netið sé engin undantekning. „Notum bara sömu reglur á Tor eins og annars staðar, til dæmis ekki að sækja í skuggaleg horn eða sund,“ bendir hún á og minnir á að þrátt fyrir þessi skugga- sund á nafnlausa netinu þá sé Tor ómissandi. „Tor hefur gefið fólki aðgengi að upplýsingum til dæmis í sambandi við kosningar þar sem ritskoðun hefur lokað á t.d. BBC, Al-Jazeera og aðra miðla. Það opnar upplýsinga- flæði fyrir fólk sem er að berjast fyrir réttindum og getur ekki eða þorir ekki að tjá sig opinberlega út af mögulegum afleiðingum, svo sem fangelsi og ofbeldi. Tor er ómiss- andi.“ Forðast leyniþjónustur Smári hefur starfað við upplýsinga- öryggismál og við ýmis mál þar sem tækni og mannréttindi fara saman í rúman áratug. „Ég hef undanfarin ár unnið sem yfirmaður tæknideildar hjá Organ- ized Crime and Corruption Report- ing Project, þar sem ég sá m.a. um öryggis mál fyrir rúmlega 200 rann- sóknarblaðamenn í Austur-Evrópu og Mið-Asíu. Á undan því var ég „Principal Consultant“ í upplýs- ingaöryggisdeild hjá alþjóðlegu ráðgjafarfyrirtæki, og þar á undan framkvæmdastjóri IMMI, Alþjóð- legrar stofnunar um upplýsinga- og tjáningarfrelsi, þar sem ég sit nú í stjórn.“ Smári notar helst Tor þegar hann vill ekki að hægt sé að fylgjast með ferðum hans á netinu. „Það kom sér mjög vel í síðasta starfinu mínu, þar sem ég var mjög oft að leita að upp- lýsingum um hættulega glæpamenn, eða að reyna að forðast að leyniþjón- ustur ýmissa landa gætu fylgst með okkur,“ segir Smári. Hann notar Tor aðallega til að skoða venjulegar vefsíður með einni undantekningu. „Undantekningin er ein fréttaveita um öryggismál sem nokkrir vinir mínir reka, en hana má aðeins nálgast í gegnum Tor,“ segir Smári. „Blaðamenn og mannréttinda- baráttufólk notar Tor daglega til að fela slóð sína, til að minnka líkurnar á eftirliti með sér og ofbeldi gegn sér. Raunin er sú að rafrænt eftirlit er sjaldnast lokamarkmiðið. Það er gríðarlega oft sem rafrænt eftirlit með blaðamönnum og starfsfólki mannréttindasamtaka er undanfari árása,“ bendir hann á. Kennir fólki að leynast á netinu Oktavía hefur unnið við að aðstoða blaðamenn og mannréttinda- aðgerðasinna um allan heim í örygg- ismálum til að verja þá hættu. „Bæði hvað varðar netöryggi, líkamsöryggi og það sem við köllum sálaröryggi,“ útskýrir Oktavía. „Ég tel það vera grunnstoð mannréttinda í heim- inum að stjórnvöld og fyrirtæki líti mannréttindi okkar allra sömu augum á internetinu eins og í raun- heimum,“ segir hún. Oktavía er afar fær í nafnleysi í netnotkun og kennir fólki að fara leynt á netinu. „Alls staðar eigin- lega. Í Bandaríkjunum, Simbabve, Danmörku, Spáni, Keníu, Líbanon, mörgum löndum í Suður-Asíu, Mið- Ameríku, Evrasíu og víða í hinum arabískumælandi heimi. Ég hef til Fleiri velja að dyljast á netinu Smári hefur kennt rannsóknaraðferðir til að rekja ólöglega starfsemi á netinu í Tyrklandi og Úkraínu. Oktavía hefur kennt fólki að dylja sig á netinu víða um heim. FréTTablaðið/Hanna Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Undir yfirborði internetsins eru falin net, sum mikilvæg uppljóstrurum og vísinda- mönnum og önnur sem eru vettvangur glæpastarfsemi. Æ fleiri færa sig undir yfir- borðið til að vernda friðhelgi einkalífs síns. Blaðamenn og mannréttinda- Baráttufólk notar tor daglega til að fela slóð sína, til að minnka líkurnar á eftirliti með sér og ofBeldi gegn sér. Smári McCarthy 2 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r28 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.