Fréttablaðið - 24.09.2016, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 24.09.2016, Blaðsíða 36
Fyrsta myndin, Bridget Jones’s Diary, var frumsýnd árið 2001 og síðan eru liðin heil fimmtán ár. Sú seinni kom í kvikmyndahús 2004. Síðan hafa báðar myndirn- ar átt velgengni að fagna í endur- sýningum sjónvarpsstöðva. Með fyrstu myndinni var sleginn dá- lítið annar tónn en var í sjón- varpsþáttunum Sex and the City sem voru gríðarlega vinsælir frá árunum 1998 til 2004. Í nýju myndinni er Darcy (Colin Firth) enn viðloðandi líf Bridget þótt hjónabandið hafi fjarað út en Daniel Cleaver (Hugh Grant) hverfur á braut. Í staðinn kemur nýr sjarmör, Jack Qwant (Patrick Dempsey). Bridget er 43 ára, hún er barns- hafandi og áhorfendur fá að fylgjast með ferli meðgöngunn- ar og þegar hún verður móðir í fyrsta skipti. Höfundur Bridget Jones er Helen Fielding, enskur rithöf- undur, fædd 19. febrúar 1958. Hún sló í gegn með bókunum um Bridget Jones. Bækur sem fjalla um einhleypa konu á fertugs- aldri sem býr í London og reynir að ná tökum á lífi sínu og líkams- þyngd. Fyrsta bókin kom út árið 1996 og sú næsta 1999. Bækurn- ar voru gefnar út í 40 löndum og voru seldar í meira en 15 milljón- um eintaka. Það var því greini- lega vöntun á lesefni á þessum nótum fyrir konur. Bíómyndirnar urðu ekki síður vinsælar á alþjóðlegum vett- vangi. Búast má við að þriðja myndin, Bridges Jones’s Baby, fái ekki minni aðsókn. Bókin Bridget Jones’s Baby: The Diaries fylgir myndinni úr hlaði og kemur út í Bretlandi 11. október. Helen Fielding fæddist í Yorks- hire á Englandi. Hún starfaði sem blaðamaður og síðan sjónvarps- fréttamaður. Helen ferðaðist víða á blaðamanns árum sínum, til Afr- íku, Indlands og Mið-Ameríku. Í dag er hún í fullu starfi sem rit- höfundur og býr jöfnum höndum í London og Los Angeles. Það eru mörg ógleymanleg atriði í Bridget Jones myndun- um. Það er hægt að skemmta sér yfir þeim minningum og rifja þau upp. Búningar í Bridget Jones þóttu margir kostuleg- ir og margir leita þangað þegar farið er í búningapartí. Hver man ekki eftir jólapeysum, náttfötun- um eða stórum ömmunærbuxum? Eða þessum orðum? Bridget: Wait a minute – nice boys don’t kiss like that. Mark Darcy: Oh, yes, they fuck- ing do. Við spurðum nokkrar konur hvert væri eftirminnilegasta atriði þeirra úr Bridget Jones myndunum. Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 elín albertsdóttir elin@365.is renee Zellweger og Patrick dempsey kynna bridget jones’s baby í new york. Hver man ekki eftir þessu atriði úr fyrstu myndinni? ömmunærbuxur bridget jones vöktu heimsathygli. óheppin en Fyndin bridget Jones Kvikmyndin bridges jones’s baby var frumsýnd hér á landi í gærkvöldi. Þetta er þriðja myndin um þessa skemmtilegu en oft óheppnu konu sem fólk um allan heim hefur dýrkað og dáð. Margar konur geta samsamað sig persónunni, konunni sem vill vera fullkomin í starfi og útliti en á í stöðugri baráttu við aukakílóin, tóbaksfíknina og mislukkuð ástarsambönd. vinsælt lag Mörg laganna sem flutt voru í Bridget Jones’s Diary urðu vin- sæl. Sérstaklega má nefna lagið Have You Met Miss Jones? Með söngvaranum Robbie Williams. helga Möller SönGkonA Það fyrsta sem kemur upp í hugann er at- riðið með stóru nærbuxunum. Gat svo sannar- lega sett mig í þessi spor og elska sjálf svona þægilegar nærbuxur og stelst í þær af og til :) Margrét eir SönGkonA Það er náttúrlega alltaf frábært móment … fyrir mig sem söngkonu og kynsystir þegar hún „BLAST- AR“ út af lífs og sálarkvölum (já og ég meina kvöl- um, ekki prentvilla) „ All by myself … AnYMoRE !!!!” Ég held að við eigum öll okkur Celine Dion mo- ment, hvort sem það er á skralli með vinum, á bömm- er heima eða í bílnum. Það er svo gott að syngja. sigurlaug Margrét Jónasdóttir DAGSkRáRGERðARMAðuR klárlega slagsmál- in á milli Marks Darcy og Dani- els Cleaver við gosbrunn- inn, algjörlega ómótstæðileg slagsmál. heiðdís lilJa Magnúsdóttir LöGFRæðinGuR Litríkar aukapersónur eru aðalsmerki Bridget Jones myndanna og atriðið sem kemur fyrst upp í huga mér er einmitt borið uppi af tveimur eftirminnilegum auka- persónum: Pamela, mamma Bridget snýr aftur heim til Colins, eiginmanns síns, eftir að hafa gefist upp á app- elsínugula sjónvarpsmarkaðsgerpinu með hvíttuðu tennurn- ar, honum Julian. Hún gengur hikandi inn í stofuna seint um kvöld, leggur ferðatöskuna frá sér og sest við hlið manns síns í sófanum. Eftir andartaks- þögn segir hún svo, bljúg og einlæg: The thing is – well, close up, he was al- most purple. You were such a lovely normal color.“ Þær gerast varla fal- legri, ástarjátningarnar. hvað segJa þær? Fæst í apótekum, Krónunni, Fjarðarkaup, Hagkaup, Nettó og Græn heilsa. Duft í kalt vatn eða boost Styður: Efnaskipti og öflugri brennslu Minni sykurlöngun Slökun og svefn Vöðva og taugastarfsemi Gott á morgnana og kvöldin 1/3 tsk = 350mg - ekkert bragð Mikil virkni Náttúrulegt Þörunga magnesíum ENGIN MAGAÓNOT 2 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r2 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.