Fréttablaðið - 24.09.2016, Qupperneq 40
Lilja Björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
NÝ TUZZI SENDING
Blússa 13.980
Stærðir 36-48
Litir: Svört, grá, ljós og rauð
Lógó með adressulínu
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is = Coopet Hewitt light (má vera book ef það er minna en 8pt)
Óeirðin hið innra
Ljósmyndir sem fjalla um hvers kyns óeirð eru viðfangsefni
sýningarinnar Þættir úr náttúrusögu óeirðar sem myndlistarmaðurinn
Unnar Örn Auðarson opnar í dag í Harbinger sýningarrými.
Sýning listamannsins Unnars Arnar
Auðarsonar, Þættir úr náttúrusögu
óeirðar (On the Natural History
of Unrest), í Harbinger fjallar um
óeirð. Á sýningunni eru sýndar ljós-
myndir sem birta óeirð af einhverju
tagi. Þær sýna hvers kyns samkom-
ur sem farið hafa fram hérlendis,
mótmæli, fjöldagöngur, jafnvel há-
tíðir eða formlegar athafnir vald-
hafa. Ljósmyndirnar spanna tíma-
bilið frá 1880 til dagsins í dag en
verkið er að mestu leyti unnið upp
úr heimildum af Ljósmyndasafni
Reykjavíkur. „Ég hef mikið verið
að skoða ljósmyndir í minni mynd-
list og þá aðallega myndir eftir aðra.
Undanfarin tvö ár hef ég einblínt á
hugtakið óeirð. Ég velti fyrir mér
muninum á óeirð og óeirðum. Óeirð
held ég að búi í öllum einstaklingum
en óeirðir er eitthvað sem fjöldinn
framkallar, kannski þar sem margir
koma saman sem haldnir eru óeirð
og sleppa henni lausri í einhverju
formi,“ útskýrir Unnar.
Lýkur pæLingum um Óeirð
Í tengslum við sýninguna gefur
Unnar Örn út bók samnefnda sýn-
ingunni sem inniheldur um níutíu
myndir. Hluti verka sem Unnar Örn
sýnir hefur oft áður verið í formi
prentaðs efnis og bætist bókin því í
safn verka sem hann hefur gefið út
á síðustu tíu árum. Með útgáfu bók-
arinnar og sýningunni í Harbinger
er Unnar Örn að binda enda á pæl-
ingar sínar um óeirðina en verk með
áþekku viðfangsefni voru meðal
annars í sýningunum Brotabrot úr
afrekasögu óeirðar: II. hluti á Lista-
safni ASÍ árið 2014 og á sýningunni
Niðurinn í Safni Jóns Sigurðsson-
ar á Hrafnseyri við Arnarfjörð árið
2015. Spurður að því hvort hann
hafi komist að einhverri
niðurstöðu að loknum
þessum pælingum segir
hann að það búi óeirð í
okkur öllum. „Stund-
um hleypum við henni
út en stundum ekki, ég
held aftur á móti að það
sé mjög mikilvægt að líta á
þessa óeirð sem stóran hluta af því
að vera manneskja og mikilvægt að
geta fundið henni einhvern farveg.
Óeirð er ekki einstakt dæmi heldur
hluti af samhangandi sögu og það
er þessi saga sem ég hef áhuga á.“
ein samfeLLd saga
Áhugann á þeirri sögu segir Unnar
hafa kviknað þegar hann hafi skoð-
að ljósmyndir í gagnasöfnum og
gömlum blöðum og tímaritum.
„Þegar maður blaðar í gegn um
þetta efni sér maður að það eru
ákveðnir hlutir í borgarmenning-
unni sem eru sérstaklega skráð-
ir og ljósmyndarar hafa haft mik-
inn áhuga á. Til dæmis hátíðar-
höld og ýmiss konar mótmæli. Það
er til mikið af myndum af fjöldan-
um, þessum hópi af fólki sem er
saman kominn af einhverri ástæðu.
Þegar maður rýnir í sögu
hóps fólks sem maður teng-
ir ekki endilega við skilur maður
til dæmis ekki af hverju fólk hitt-
ist árið 1905 og mótmælti lagningu
ritsímans en fattar svo að þetta er
ein samfelld saga, saga óeirðar –
þeirra sem eru á öðru máli. Þetta
eru vissulega ólíkir hópar fólks og
ólíkar ástæður sem liggja að baki en
það er sama hugmyndin sem er til
grundvallar og mikilvægt að finna
óeirðinni farveg. Ég er þó ekki al-
mennt að hvetja til beinna aðgerða
þó ég telji að þær séu mjög mikil-
vægur hluti af því að vera til og ég
held að óeirðin sé eitthvað sem fylgi
manni í öllu því sem maður gerir,“
lýsir listamaðurinn Unnar Örn.
Sýningin verður opnuð í dag klukk-
an fjögur og er opin til sunnudagsins
23. október. Harbinger sýningarrými
er opið fimmtudaga til laugardaga
frá tvö til fimm.
Sýning Unnars Arnar Auðar-
sonar, Þættir úr náttúrusögu
óeirðar, verður opnuð í dag.
MYND/GVA
Í myndum á sýningunni er beitt annarri grunntækni ljósmyndarinnar og þær
sýndar negatífar. Verkin eru neikvæð, ljósi og skugga hefur verið snúið við, og gefa
til kynna ástand óeirðar.
2 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r6 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n